Vesturland - 26.09.2013, Qupperneq 12

Vesturland - 26.09.2013, Qupperneq 12
Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 8,6m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. Weckman sturtuvagnar STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 S K E S S U H O R N 2 01 2 ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ? Viðgerðir á öllum gerðum af bíla-, mótorhjóla og snjósleðasætum. Húsbílaklæðningar og öll almenn bólstrun. Við erum þekktir fyrir fljóta og góða þjónustu. Hamraborg 5 kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hsbolstrun.is Formbólstrun 12 26. september 2013 Fjölbrautaskóli Vesturlands: Adda Malín Vilhjálmsdóttir áheyrnar­ fulltrúi nemenda í skólanefnd Á fundi aðalstjórnar nemenda-félags Fjölbrautaskóla Vest-urlands ttilkynnti stjórnin skólameistara að Adda Malín Vil- hjálmsdóttir yrði áheyrnarfulltrúi nemenda í skólanefnd og Bergþóra Ingþórsdóttir og Björn Þór Björnsson yrðu fulltrúar nemenda í skólaráði á skólaárinu 2013 til 2014. Aðalfundur foreldraráðs 1. október Aðalfundur foreldraráðs Fjölbrauta- skóla Vesturlands verður haldinn á sal skólans við Vogabraut 5 á Akra- nesi klukkan 19: 30 að kvöldi þriðju- dagsins 1. október nk. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir forráðamenn nemenda eru hvattir til að mæta. Að fundi loknum, milli klukkan 20: 15 og 21: 00, gefst fundargestum kostur á að ræða við skólastjórnendur og námsráðgjafa og foreldrar nýnema, sem luku tíunda bekk í vor, hitta umsjónarkennara barna sinna. Fjölbrautaskóli Vesturlands var stofnaður 12. september 1977 og á því 36 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni afmælisins var farið í leiki á miðjum morgni og fram undir há- degi. Leikirnir voru skipulagðir af íþróttaklúbbi nemendafélagsins. Hvalfjarðarsveit keppir í Útsvari á morgun Reykjavík vann Akureyri í fyrstu keppni vetrarins í spurninga-keppninni Útsvari á RUV. Síðan kepptu Borgarbyggð og Hornafjörður, og vann Borgarbyggð þá keppni. Annað kvöld, 27. september, keppa svo Sel- tjarnarnes og Hvalfjarðarsveit og er þetta í fyrsta sinn sem Hvalfjarðasrsveit sendir lið í þessa keppni, sem er eitt vin- sælasta sjónvarpsefni vetrarins, sama um hvaða sjónvarpstöð er að ræða. Fleiri lið koma frá Vesturlandi. Akranes keppir við Seyðisfjörð 25. október og Snæfellsbær keppir við Mosfellsbæ 29. nóvember nk. Í liði Hvalfjarðarsveitar eru Sævar Ari Finnbogason, Sævar Jónsson og Ásta Mary Stefánsdóttir, og öll búa þau í Hvalfjarðarsveit. Sævar Ari situr í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, bær á Glóru sem er sunnan Akrafjalls, og er háskólanemi í heimskpeki auk þess að vera kennari. ,,Við höfum hist til að stilla saman okkar strengi, það er betra því oft þarf að ræða um svör við spurn- ingunum ef ekkert okkar hefur svarið á hreinu. Ég hef fylgst með þessum þáttum og líst vel á að taka þátt í þessu. Það ríkir oft skemmtilegur hrepparígur milli keppnisliðanna en þegar upp er staðið held ég að menn fari sáttir frá borði. Þetta er fyrst og fremst leikur, því má ekki gleyma,” segir Sævar Ari Finnbogason. Keppnisdagarnir og liðin fram- undan eru þessi: • 27. september, Seltjarnarnes – Hval- fjarðarsveit • 4. október, Fjarðabyggð – Norðurþing • 11. október, Grindavíkurbær – Vest- mannaeyjar • 18. október, Skagafjörður – Fljótsdals- hérað • 25. október, Akranes – Seyðisfjörður • nóvember, Sandgerði - Tálkna- fjarðarhreppur • 8. nóvember, Ísafjarðarbær – Fjalla- byggð • 15. nóvember, Kópavogur - Rangár- þing eystra • 22. nóvember, Garðabær – Reykjanes- bær • 29. nóvember, Snæfellsbær - Mos- fellsbær Á fundinum var tekin mynd af stjórninni og á henni eru f. v. : Almar Knörr Hjaltason, Adda malín Vilhjálmsdóttir, bergþóra Ingþórsdóttir, margrét Helga Isaksen, björn Þór björnsson og Freyja Kristjana bjarkadóttir. Hvalfjörður er falleg sveit, ekki bara á góðviðrisdögum.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.