Vesturland - 24.10.2013, Síða 4
4 24. október 2013
Vesturland
10. tBl. 2. ÁrGanGur 2013
Útefandi: Fótspor ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Ábyrgðarmaður: Ámundi
Ámundason, auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang:
amundi@fotspor.is. auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.is.
ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, sími: 898-5933 & netfang: geirgudsteinsson@simnet.is.
umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 6.400 eintök. dreifing: Íslandspóstur.
Fríblaðinu er dreiFt í 6.400 eintökum í allar íbúðir á akranesi,
dreiFbýli á akranesi og í borgarnesi. blaðið liggur einnig Frammi
á helstu þéttbýlisstöðum á Vesturlandi
Senn fer í gang kosningavetur og munu störf bæjar- og sveitarstjórna á Vesturlandi sem og í öðrum landshlutum mótast af því. Það verða prófkjör, forval eða með öðrum hætti ákveðið eins og bara með upp-
stillingu, og reikna má með að krafturinn verði meiri þegar líður að þorra. Þá
fá kjósendur að sjá hvað þeim stendur til boða, hverjir skipa framboðslistana.
Rétt eins og áður eru margir kallaðir til, en fáir útvaldir. Einhverjar hreyfingar
eru þegar meðal íbúa stærstu byggðarlaganna á Vesturlandi um um framboð,
sumir hafa ákveðið að hella sér í slaginn, aðrir eru að kanna jarðveginn og
reyna að komast að því hvort einhver grundvöll sé fyrir framboði þeirra
meðal flokkssystkinanna og enn aðrir eru jafnvel að huga að sérframboðum
sem eru þá óháð pólitískum flokkum. Svo fara aðrir jafnvel í framboð fyrir
nýja lista, og gera sér auðvitað von um bullandi brautargengi. Nú opnast
möguleikar fyrir þá sem hafa verið í ,,bakröddunum”, en telja að nú sé þeirra
tími kominn. Til að ná kjöri til setu í bæjar- eða sveitarstjórn þarf viðkomandi
að búa í sveitarfélaginu, væri ekki athugandi að sama regla gilti um Alþingi?
Það er stundum rætt um jafnt hlutfall karla og kvenna á framboðslistum,
og það er af hinu góða, en stundum verður þetta hlutfall sérkennilegt þegar
hópurinn er allur saman kominn. Í sumum sveitarfélögum er hlutfallið
jafnvel hagstætt konum. Í Snæfellsbæ eru þær fjórar af sjö bæjarfulltrúum
og það sama er í Grundarfjarðarbæ, þrjár af sjö í Dalabyggð, þrjár af sjö í
Stykkishólmsbæ, fjórar af níu í Borgarbyggð, þrjár af sjö í Hvalfjarðarsveit
en aðeins tvær af níu í Akraneskaupstað. Þessar upplýsingar eru byggðar
á niðurstöðum kosninganna 2010 en einhverjar breytingar kunna að hafa
orðið á kjörtímabilinu.
Sum sveitarfélög hafa tekið upp þann sið, að vísu í afar litlu mæli, og fara með
fundi sveitarstjórnar út til íbúanna. Það ættu þau sveitarfélag sem stærst eru
að flatarmáli að taka til alvarlegrar athugunar, gera síðan hlé á fundinum til
að gefa fundargestum kost á að bera fram fyrirspurnir og spjalla við bæjar-
fulltrúa um sín hugðarmál. Nú í aðdraganda prófkjöra eða uppstillinga ber að
kanna hug frambjóðenda til þessa. Ef þessi tilraun að koma til íbúana hefur
mistekist, þá ber einnig að segja frá því. Alvarlegur á upplýsingum um það
hvað er að gerast í sveitarstjórninni leiðir bara til áhugaleysis íbúa sem er alls
ekki hagkæmt, hvorki fyrir hinn almenna íbúa eða kjörna fulltrúa þeirra.
Vonandi verður ráðin bót á því, kannski gerist það með nýju blóði í nýjum
bæjar- og sveitarstjórnum sem koma til starfa í í júnímánuði 2014. Hver veit!
Geir A. Guðsteinsson
ristjóri
Jafnt hlutfall
karla og kvenna á
kosningavetri
Leiðari
Hvalfjarðarsveit:
Beiðni Akraneskaupstaðar um
sameiningarviðræður hafnað
Hugmyndum um sameingu Akraneskaupstaðar, Borgar-byggðar og Hvalfjarðarsveitar
var hafnað á fundi sveitarstjórnar Hval-
fjarðarsveitar fyrir skömmu. Bæjar-
stjórn Akraness fór fram á viðræður um
slíka sameiningu á dögunum. Ástæðan
fyrir höfnuninni er talin einkum vera
sú að viðræður væru ótímabæar þar
sem skammt væri síðan skammt væri
síðan sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit
hafi orðið til við sameiningu fjögurra
sveitarfélaga 20. nóvember 2004, þeirra
Hvalfjarðarstrandarhrepps með 154
íbúa, Innri-Akraneshrepps með 121
íbúa, Leirár- og Melahrepps með
132 íbúa og Skilmannahrepps með
152 íbúa. Samtals fjögur sveitarfélög
með 559 íbúa og fækkaði þá sveitarfé-
lögum á landinu í 95 talsins. Í dag er
íbúafjöldi Hvalfjarðarsveitar um 630
manns. Fleiri sameiningar hafa orðið á
Vesturlandi á undanförnum árum. 23.
apríl 2005 sameinuðust Borgarbyggð
með 2.593 íbúa, Borgarfjarðarsveit með
670 íbúa, Hvítársíðuhreppur með 84
íbúa og Kolbeinsstaðahreppur með 100
og til varð sveitarfélagið Borgarbyggð
með 3447 íbúa en í dag er íbúafjöldi
sveitarfélagsins um 3.600 manns. Ári
seinna, eða 20. febrúar 2006, samein-
uðust Dalabyggð með 638 íbúa og
Saurbæjarhreppur með 77 íbúa undir
nafni Dalabyggðar með 715 íbúa og
voru þá sveitarfélög í landinu orðin 82
talsins. Flest urðu sveitarfélög í landinu
229 talsins árið 1950 samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofunnar en eru í dag
74 talsins.
Á fundi Byggðaráðs Borgarbyggðar
7. okóber sl. var lagt fram bréf frá
Akraneskaupstað þar sem óskað er
eftir viðræðum við Hvalfjarðarsveit,
Skorradalshrepp og Borgarbyggð um
sameiningu sveitarfélaga. Páll Brynjars-
son sveitarstjóri greindi frá því að hann
hafi fengið fundarboð frá bæjarstjóra
Akraness þar sem kynnt verður sam-
þykkt bæjarstjórnar Akraness.
Samþykkt bæjarstjórnar
Akranes
Á fundi bæjarstjórnar Akranes 24.
september sl. var eftirfarandi tillaga
samþykkt með atkvæðum allra bæj-
arfulltrúa: ,,Bæjarstjórn Akraness
samþykkir að óska eftir viðræðum
við sveitastjórnir Hvalfjarðarsveitar,
Skorradalshrepps og Borgarbyggðar
um hvort sameining þessara sveitar-
félaga gæti orðið íbúum þeirra hag-
kvæm. Ef jákvæður vilji verður til að
skoða málið frekar munu þessi fjögur
sveitarfélög gera með sér samkomulag
um framhald málsins. ” Í greinagerð
með tillögunni segir m. a. að á uund-
anförnum árum hafi fjölmörg verkefni
færst á hendur sveitarfélaga frá ríkinu.
Að flestra mati hafi þessi tilflutningur
bætt þjónustu og má þar nefna rekstur
grunnskóla og rekstur málefna fatlaðra.
Áðurnefnd sveitarfélög hafa um árabil
átt í nánu samstarfi vegna sameigin-
legra hagmunamála og má í því sam-
bandi nefna Orkuveitu Reykjavíkur,
Faxaflóahafnir, almenningssamgöngur
og yfirtöku á málefnum fatlaðra. Mik-
ill vilji er til þess að aukin og flóknari
verkefni færist til sveitarfélaga svo
sem rekstur heilsugæslu og löggæslu.
Til þess að þessi þróun haldi áfram
og tryggi um leið bætta þjónustu við
íbúa er ljóst að sveitarfélögin þurfa að
stækka. Á aðalfundi Samtaka sveitarfé-
laga á Vesturlandi kom fram í máli inn-
anríkisráðherra að ekki yrði af frekari
sameiningu sveitarfélaga með lagaboði
heldur eingöngu vegna frumkvæðis
íbúanna sjálfra. Aukið samstarf eða
sameining fyrrnefndra sveitarfélaga
er forsenda bættrar þjónustu við íbúa
þeirra og tryggir um leið samkeppn-
ishæfni þeirra allra.
Saurbæjarkirkja á Hvalfjarðarströnd.
Hvatningarverðlaun og umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar: :
Furugrund 44 fallegasta lóðin
Hinar árlegu umhverfisviður-kenningar Skipulags- og umhverfisnefndar Akra-
neskaupstaðar voru afhentar 30.
september s. l. Að þessu sinni hlutu
eigendur að Furugrund 44, Guð-
mundur Sæmundsson sjómaður á
FAXA og Ingibjörg Eygló Jónsdóttir,
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
umhirðu húss og lóðar í flokknum
fallegasta einkalóðin. Lóðin er
einstaklega vel hirt með mikinn fjöl-
breytileika í gróðri. Þar má m. a. finna
plöntur úr íslensku flórunni, rósir,
jarðaberjaplöntur, glæsilegt eplatré
o. fl. Guðmundur og Ingibjörg hlúa
vel að nánasta umhverfi og eiga miklar
þakkir skildar fyrir umhirðu á göngu-
stíg við lóðina.
Hvatningarverðlaun til fyrirtækja
hlaut Gísli Stefán Jónsson ehf. fyrir
lóðina að Ægisbraut 11. Á árinu 2013
hefur lóðin tekið miklum stakka-
skiptum til batnaðar. Lóðarhafi og
eigandi fyrirtækisins Gísli Stefán Jóns-
son, hefur sýnt mikinn metnað í því
að gera lóð sína og nánsta umhverfi
snyrtilegt og aðlaðandi.
Í ávarpi Regínu Ásvaldsdóttur bæj-
arstjóra lagði hún áherslu á mikilvægi
góðrar umhirðu húsa og lóða sem
breytir ásýnd bæjarins og eykur lífs-
gæði íbúa. Guðmundur Valsson, for-
maður nefndarinnar sagði í ræðu sinni
að viðurkenningarhafar væru öðrum
íbúum til fyrirmyndar og hvatningar
til betri umhirðu í bænum okkar.
,,Við erum í garðinum mörgum
stundum og það er einstaklega gef-
andi,” segir Ingibjörg Eygló Jónsdóttir.
,,Það halda sumir að á Akranesi sé ekki
hægt að vera með fallega garða, hér sé
svo oft rok og rigning. Það er mesti
misskilningur, en stundum hvessir
auðvitað hér og rignir. Trjágróður er
hér orðinn nokkur og veitir skjól og
svo veitir Akrafjall auðvitað skjól þegar
vindur stendur úr þeirri átt.
Lóðin að Furugrund 44 er með mikinn fjölbreytileika í gróðri og vel hirt.
Prestkosningar í Staðastaða-
prestakalli annan laugardag
Átta umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Staðastaðarpresta-
kalli í Vesturlandsprófastsdæmi sem aug-
lýst var laust til umsóknar nýlega. Um-
sóknarfrestur rann út 26. september sl.
Umsækjendur eru:
• Arnaldur Máni Finnsson, guð-
fræðingur
• Séra Bára Friðriksdóttir
• Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur
• Elín Salóme Guðmundsdóttir, guð-
fræðingur
• Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur
• Ólöf Margrét Snorradóttir, guð-
fræðingur
• Páll Ágúst Ólafsson, guðfræðingur
• Séra Ursula Árnadóttir
Sóknarbörn í Staðastaðarprestakalli
hafa farið fram á almenna prestskosn-
ingu í prestakallinu í stað þess að val-
nefnd velji sóknarprestinn. Slíkt er
leyfilegt ef þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakallinu fer fram
á það. Ákveðið er að kosning sóknar-
prests í Staðastaðarprestakalli, Vestur-
landsprófastsdæmi fari fram milli kl.
10:00-18:00, laugardaginn 2. nóvem-
ber 2013 í félagsheimilinu Breiðabliki
í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Prestssetrið að Staðarstað.