Reykjanes - 03.10.2013, Síða 10
10 3. október 2013
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
Járngerður
Flott fréttabréf
Járngerður, fréttabréf Grinda-víkurbæjar, er komið út. Fréttabréfinu er dreift í öll hús
í Grindavík. Blaðið er 24 bls. og
fjölbreytt að vanda. Þar er m. a. sagt
frá könnun um líðan og hagi ung-
linga í Grindavík, sagt frá blómlegu
félagsstarfi eldri borgara, starfsemi
slökkviliðsins, vinarbæjarheimsókn
til Piteå í Svíþjóð og Rovaniemi í
Finnlandi, atvinnu með stuðningi,
framkvæmdum, Vinnuskólanum og
ýmsu fleira.
Í grein bæjarstjóra kemur fram að
nær allir starfsmenn Grindavíkur-
bæjar búa í Grindavík, gamla myndin
er á sínum stað, sagt frá starfsmanna-
degi bæjarins, Grindavíkurhöfn,
nýjum aðalvarðstjóra lögreglunnar,
sumarlestri og bókasafnsdeginum,
hjólreiðabænum Grindavík, metað-
sókn á tjaldsvæðið og Umhverfis-
verðlaunum.
Það er til mikillar fyrirmyndar
hjá bæjaryfirvöldum í Grindavík að
senda öllum íbúum svona fréttabréf.
Garðvangur skýrsla:
Þörf á öllum
hjúkrunarrýmun
sem nú eru opin
Á stjórnarfundi Sambands sveitar-félaga á Suðurnesjum 16. sept-ember s. l. var fjallað um heil-
brigðis-og öldrunarmál.
S. S. S. þakkar Sveitarfélaginu Garði og
Sandgerðisbæ fyrir vel unna og athygl-
isverða skýrslu um heilbrigðis- og öldr-
unarmál á Suðurnesjum sem unnin var
af Haraldi L. Haraldssyni. Niðurstöður
skýrslunnar eru sláandi og draga enn
og aftur fram hvað framlög ríkisins til
opinberrar þjónustu á Suðurnesjum eru
mikið lægri en tíðkast í öðrum lands-
hlutum. Kemur þar meðal annars fram
að framlög framkvæmdasjóðs aldraðra
á árunum 2001-2010 voru langlægst til
Suðurnesja. Einnig kemur fram að ef
fjöldi hjúkrunarrýma á hverja 1.000 íbúa
í hverju heilbrigðisumdæmi eru skoðuð
hallar verulega á Suðurnesin.
Ljóst er að þrátt fyrir að öll hjúkr-
unarrými sem nú eru á svæðinu verði
haldið opnum áfram eftir að Nesvellir
opna þá uppfylla þau rými engan
vegin áætlaða þörf hjúkrunarrýma
á Suðurnesjum. Samt er gert ráð fyrir
því að fjölda rýma muni loka á svæð-
inu og færast til Nesvalla. Raunveru-
leg fjölgun rýma við Nesvelli er því
óveruleg. Slíkt er óásættanlegt enda
ljóst að þörf er á öllum hjúkrunar-
rýmum sem nú eru opin og öllum
þeim sem bætast við á Nesvöllum
og meira til.
Framkvæmdastjóra er falið að óska
eftir fundi með félags og – trygginga-
málaráðherra um málefnið og þá
alvarlegu stöðu sem málefni aldraðra
eru komin í á Suðurnesjum líkt og
fram kemur í skýrslunni.
Sandgerði keppir 1. nóvember
Sandgerðisbær tekur nú þátt í spurninga- og skemmtiþættinum Útsvari á RÚV í fyrsta sinn og
teflir fram öflugu keppnisliði en það
er skipað þeim Einari Valgeiri Ara-
syni, Bylgju Baldursdóttur og Andra
Þór Ólafssyni. Þeim til halds og trausts
verður símavinurinn Hlynur Þór Vals-
son.
Fyrsta viðureign Sandgerðisbæjar í
keppninni verður við lið Tálknafjarðar
föstudaginn 1. nóvember.
Sandgerðisbær óskar liðinu góðs
gengis í keppninni.
Meðfylgjandi er mynd af Útsvarsliðinu
ásamt bæjarstjóranum, frá vinstri:
Andri Þór Ólafsson, Bylgja Baldurs-
dóttir, Einar Valgeir Arason og Sigrún
Árnadóttir bæjarstjóri.
Grindavík
Kennarar með nem-
endum í matartímum
Matartíminn í Hópsskóla á að vera gæðastund hjá nem-endum. Mikilvægt er að
þessi tími dagsins sé notalegur, börnin
nærist vel og viðhafi góða siði. Skóla-
matur ehf eldar mat fyrir skólann og
eru flestir nemendur í áskrift. Í vetur
er sérstök áhersla lögð á að kennarar
fylgi nemendum sínum í hádegismat,
sitji hjá þeim og aðstoði. Með því leggja
kennarar sitt lóð á vogarskálarnar í að
tryggja gott næði og að börnin borði vel.
Garður vill
kaupa Menn-
ingarhúsið
að Útskálum
Á síðasta fundi Bæjarráðs
Garðs var eftirfarandi bókað:
Formaður og bæjarstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála og viðræðum við Sóknarnefnd
Útskálasóknar og Landsbankann
varðandi grunn safnaðarheimilis
við Útskálakirkju og skuldastöðu
sóknarnefndar við Landsbankann
vegna þess. Jafnframt var farið yfir
stöðu mála varðandi Menningarhúsið
að Útskálum og viðræðum við Lands-
bankann vegna þess máls.
Formaður bæjarráðs lagði til að gert
verði formlegt tilboð um kaup sveitar-
félagsins Garðs á Menningarhúsinu.
Samþykkt samhljóða að fela bæjar-
stjóra að gera formlegt kauptilboð í
Menningarhúsið að Útskálum, með
fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.