Reykjanes - 12.12.2013, Side 8

Reykjanes - 12.12.2013, Side 8
8 12. desember 2013 Heimsókn í Jónshús Í lok nóvember skruppum við hjónin í aðventuferð eldri borgara á vegum Icelandair til Kaupmannahafnar. Alltaf jafn yndislegt að heimsækja borgina. Hópurinn fór í heimsókn í Jónshús. Það var fróðlegt að hlusta á Jón Runólfsson, staðalhaldara segja frá sögu og starfsemi hússins. Einnig fræddi okkur Sigrún Gísladóttir, fv. skólastjóri um húsið. Margvísleg starfsemi fer fram alla daga vikunnar í Jónshúsi. Meðal fastra viðburða hússins eru: Sunnudagskaffi, kóræfingar þriggja íslenskra kóra, ís- lenskuskólinn fyrir grunnskólanem- endur, kirkjuskóli yngri barna, kon- ukvöld, bókmenntakvöld, félagsvist, safnaðarfundir, fermingarfræðsla, kirkjlegar athafnir, AA fundir, Al Anon fundir, opið bókasafn og prjónakvöld auk ýmissa félags og menningartengdra viðburða. Enginn Íslendingur, sem fer til Kaupmannahafnar ætti að láta heim- sókn í Jónshús framhjá sér fara. Best er að fara inná www. jonshus. dk þar sem allar upplýsingar er að finna. S. J. Skuldaleiðréttingin: Glíman hafin – en henni er ekki lokið Dagurinn 30. nóvember var stór dagur og mun eiga sinn sess í sögubókum framtíðar- innar. Þann dag kynnti ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks tillögur um skuldaleiðréttingu á verðtryggðum stökkbreyttum hús- næðislánum. Eignalausa kynslóðin Alveg síðan að Hrunið varð haustið 2008 hafa heimili landsins beðið eftir aðgerðum. Núverandi ríkisstjórn lof- aði aðgerðum því það er mun dýrara fyrir samfélagið að skilja heimilin eftir í skuldum og heila kynslóð eftir eignalausa, en að leysa vandann. Sér- fræðingahópurinn að baki skuldaleið- réttingunni hefur nú skilað afar vandaðri skýrslu og á heimasíðu For- sætisráðuneytisins má finna skýrsluna, Spurt og svarað, glærukynninguna og fleira sem að gagni kemur til að átta sig á í hverju aðgerðirnar felast: http:/ / www. forsaetisraduneyti.is/ Leiðréttingin Leiðréttingin er almenn aðgerð sem felst í að verðtryggð húsnæðislán verða færð niður um fjárhæð sem svarar verðbótum umfram 4,8% sem féllu til á tímabilinu desember 2007-ágúst 2010. Tekið verður tillit til fyrri úrræða, m. a.110% leiðarinnar. Hámarksfjárhæð niðurfærslu er 4 milljónir á heimili og leiðréttingin verður gerð á fjórum árum. Þessi leið mun ekki hafa þenslu- hvetjandi áhrif á samfélagið að mati sérfræðinga. Gert er ráð fyrir að leiðréttingin fari fram um mitt árið 2014 og úrræði séreignarsparnaðar hefjist sama ár. Þeir sem nýta sér bæði úrræðin geta fengið um 20% höfuðstólslækkun fyrir lok árs 2017 að gefnum forsendum um verðbólgu, lánsfjárhæð og launaþróun. Nær til flestra heimila Skattfrjálsan séreignasparnað geta allir nýtt sér, ekki bara skuldarar heldur líka ungt fólk sem býr í foreldrahúsum og leigjendur. Með því að bjóða upp á þennan möguleika þá nær aðgerðin til 100 þúsund heimila í landinu af 125 þúsund, en aðeins 21 þúsund heimila eru skuldlaus. Aðrir skulda eða leigja. Gagnrýnt hefur verið að hátekjufólk muni græða mest á séreignarsparnað- arleiðinni en það er ekki rétt, þar sem þakið er 500 þús. kr. á heimili á ári, sem miðast þá við að samanlögð mánaðar- laun heimilis séu um 700 þús. kr. Sú staðreynd að þak sé á leiðréttingunni upp á 4 millj. króna tryggir líka að fyrst og fremst sé verið að koma til móts við millistéttina og bæta kjör sem flestra heimila en flestir skulda minna en 25 milljónir króna. Þörf á frekari aðgerðum til að leysa vandann Heimilin eru grunneining samfélags- ins. Ef þau virka ekki þá er kyrrstaða. Aðgerðaráætlun í tíu liðum um lausn á skuldavanda heimilanna var sam- þykkt á Alþingi í sumar: http:/ / www. althingi.is/ altext/ 142/ s/ 0009. html Skuldaleiðréttingin var aðeins einn liður í þeirri áætlun. Það er ljóst að verkefnin framundan eru fjölmörg. Skuldaleiðréttingin ein og sér leysir ekki vanda allra, en hún er skref í rétta átt. Framundan eru bjartari tímar og nýtt framfaraskeið íslenskrar þjóðar. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins Stórkostleg ljósadýrð Margir Íslendingar hafa heimsótt Tívolí í Kaup-mannahöfn. Langflestir hafa komið þar við á sumartíma og hrifist af umhverfi og öllu sem þar er boðið uppá. Fyrir nokkrum árum var það tekið upp að opna Tívolí um miðjan nóvember og setja allt í jólalegt. Það er stórkostlegt að sjá öll jólaljósin. Það er mikil fegurð. Fullt er af alls konar sölubásum, veitingastaðir eru opnir. Meira að segja eru nokkur leiktæki opin. Hér koma nokkrar svipmyndir. Hópurinn í ferðinni Jónshús Glæsileg axlabönd Jóns. saga hússins. Þjóðfundurinn 1851. emil Guðmundsson,fararstjóri. Jón runólfsson. sigrún Gísladóttir. Jón sigurðsson.

x

Reykjanes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.