Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2007, Síða 45
Meistarinn
Kristín Skúladóttir Matgæðingurinn
DV Helgarblað Föstudagur 25. maí 2007 45
Kristín Skúladóttir hjúkrunarfræð-
ingur býður upp á tvær ólíkar upp-
skriftir í dag. „Súpuuppskriftin kem-
ur frá mömmu og er alltaf jafn vinsæl
í fjölskyldunni. Hægt er að gera hana
sem hversdagsmat og vera þá með ýsu
og rækjur og léttan rjóma, en meira
spari með því að nota fleiri tegund-
ir af fiski og humar og hörpudisk og
feitan rjóma,“ segir Kristín sem einn-
ig ætlar að kenna lesendum að búa til
chilli-sultu. „Chilli-sultan er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Hún er góð sem
meðlæti með ostum, kæfu og paté, en
langbest finnst mér hún með góðum
rjómaosti á ristuðu brauði.“
Fiskisúp
smjör eða olía til steikingar
1 stór laukur
1-2 hvítlauksrif
1 stór gulrót
2-3 sellerístönglar
1 paprika
3 meðalstórar kartöflur
1 dós tómatmauk
1 lárviðarlauf
2-3 meðalstórar kartöflur
1 tsk basilíka
1 tsk sítrónupipar
salt eftir smekk
4 bollar vatn
1 grænmetisteningur
800 g fiskur
1 bolli rækjur
1 peli rjómi eða matreiðslurjómi
Laukur og hvítlaukur saxað
smátt og grænmetið skorið í ten-
inga. Látið krauma í smjöri/olíu í smá
stund. Þá er tómatmauki og kryddi
bætt út í og látið malla í nokkrar mín-
útur. Vatni og grænmetisteningi bætt
við og látið sjóða í 5-10 mín. Fiskur-
inn settur út í og suðan látin koma
upp. Þá er rjóminn settur út í og síðast
rækjurnar og rétturinn hitaður í gegn.
Borið fram með góðu brauði.
Til tilbreytingar er gott að bæta við
til dæmis humri og hörpudiski.
Chilli-sulta
4 rauðir chillipiparávextir
1 stór rauð paprika
300 g sykur
150 ml eplaedik
gulur sultuhleypir (melatin)
Chillipipar skorinn langsum og öll
fræ hreinsuð úr. Paprikan einnig fræ-
hreinsuð. Allt sett saman í mixer með
sykri og eplaediki og saxað smátt. Sett
í pott og soðið saman í 5-10 mínútur.
2 matskeiðum af gulum sultu-
hleypi bætt í og soðið í 1-2 mínútur til
viðbótar.
Sett á hreinar krukkur.
Súpuuppskrift
frá mömmu
og bragðgóð sulta
„Ég skora á Þórunni Sæv-
arsdóttur hjúkrunarfræðing
sem ég vinn með á Landspít-
alanum. Hún er mikil matar-
kona og lumar eflaust á mörg-
um góðum uppskriftum.“
Chianti Classico
og Ítalskir dagar
ítalía er mesta vínræktarland verald-ar og toskanía eitt helsta vínhérað landsins. Chianti er svæðið á milli Pisa, Flórens, arezzo og si-ena. Chianti er skipt í 8 héruð og
er Chianti Classico miðsvæðið milli
Flórens og siena. meginþrúga svæð-
isins og undirstaða Chianti-vínanna
er sangiovese. Hún þarf mikinn hita
og þurrk en nær sér ekki á strik í
köldu árferði.
Chianti-nafnið hefur verið
notað frá 14. öld en svæðið
hefur stækkað verulega
frá fjórða áratug síðustu
aldar. Forsætisráðherra ít-
alíu, Bettino ricasoli,
lagði til staðal eða upp-
skrift að Chianti-vínum
fyrir hálfri annarri öld.
samkvæmt henni er
70% sangiovese, 15%
Canaiolo Nero og 10%
af hvítvínsþrúgunum
trebbiano og malvas-
ia, sem notaðar voru
til að mýkja tannínið í
vínunum. töluvert
hefur verið slakað á þessum kröfum á
síðustu tveimur áratugum en
sangiovese-þrúgan er enn ráð-
andi.
Lengi vel voru Chianti-vínin
þekkt sem frekar tilþrifalítil vín í
litlum flöskum með tágakörfu
utan um og voru gjarnan
notaðar sem kerta-
stjakar. Framleið-
endur sem ekki
fóru eftir hefð-
bundnum stöðl-
um lentu utan
flokkunarinnar en
vegna mikilla
gæða þeirra var
farið að tala um
„ofur-toskaníu-
vín“. Þetta hefur
breyst mikið á síð-
ustu árum og eru
sumir jafnvel farnir
að tala um „ofur-Chi-
antivín“.
Ég prófaði þrjú vín frá
Chianti og hvet les-
endur til að nýta sér ít-
alska daga í ríkinu. tilboð-
in gilda til mánaðamóta.
Pálmi jónasson
vínsérfræðingur DV
Campomaggio
Chianti Classico 2004
Vínið er að mestu gert úr sangiovese-þrúgunni. Þykkt
og dumbrautt að lit. dökk ber í nefi, kirsuber, sólber,
döðlur og krydd. Plómur og jafnvel bláber í munni.
Ljúft og gott vín þótt það sé hvorki sérlega flókið né
margslungið vín. Bestu kaupin af þessum þremur
vínum. 1490 krónur en 1390 krónur á
ítölskum dögum.
Félsina Berardenga
Chianti Classico 2005
Berardenga-svæðið er í suðaustanverðu Chianti
Classico. Þetta vín er eingöngu gert úr sangiovese-
þrúgunni og er sett á eikartunnur í 12 mánuði.
dumbrautt að lit. angan af berjamó, leðri og sólberj-
um. Bláber og sólber í munni með krydd- og jarðar-
keim. 2190 krónur en 1990 krónur á
ítölskum dögum.
Castello di Querceto
Chianti Classico 2005
Francois-fjölskyldan rekur eitt þekktasta víngerðarhúsið
í greve. Vínið er úr sangiovese (92%) og Canaiolo (8%)
og þroskast í eikartunnum í 10 til 12 mánuði. í nefi
talsverður hnakkur og skógarbotn, ásamt hefðbundnum
berjum og kryddi. sveskjur og krækiber í munni. Frekar
mikið tannín sem skilur eftir sig örlitla beiskju í
eftirbragði. Eins og mér finnst oft raunin með ítölsk vín
þá var flókin og mikil lykt við opnun en með tímanum
varð einföld jarðarlykt ráðandi. Batnaði ekki eftir því sem
leið á kvöldið og olli að því leyti nokkrum vonbrigðum.
Ágætis vín engu að síður sem fær að
halda þriðja glasinu. 1790 krónur.
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt