Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Hávaðareglur í smíðum Ný hávaðareglugerð er í smíð- um hjá Umhverfisráðuneytinu og gefst almenningi kostur á að koma athugasemdum á fram- færi. Drög voru gerð að reglugerð- inni fyrir þremur árum en vegna fjölda athugasemda umsagnar- aðila var ákveðið að gera ný drög. Markmið með nýrri reglugerð eru meðal annars að auka skýr- leika laganna, draga úr réttar- óvissu, endurskoða gildandi hávaðamörk og fylla í eyður sem komið hafa fram í framkvæmd eldri reglugerðar. Tekið verður við athugasemdum almennings til 15. september á netfangið postur@umhverfisraduneytid.is Konur með lægri laun Föst mánaðarlaun kvenna voru tíu til tólf prósentum lægri en karla á síðasta ári samkvæmt gögnum sem ParX hefur safnað um launagreiðsl- ur, hér á landi, undir leiðsögn Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands. Föst mánað- arlaun kvenna voru að meðaltali átján prósentum lægri en karla. Átta prósent af þessum launamun kynjanna verður skýrður með menntun- armun, starfi, aldri eða starfs- aldri. Eftir stendur þó að föst mánaðarlaun kvenna eru tíu prósentum lægri en karla. Garðyrkjuskólinn til Flúða? Ísólfur Gylfi Pálmason, sveit- arstjóri Hrunamanna, hefur lagt fram tillögu um að flytja Garð- yrkjuskóla ríkisins að Flúðum. Það er héraðsfréttablaðið Glugg- inn sem greinir frá þessu. Ísólfur segir að skólinn eigi sér mikla framtíðarmöguleika og sé spenn- andi stofnun. Skólinn hefur verið starfræktur á Reykjum frá árinu 1939. Ísólfur segir skólann hafa verið í ákveðinni tilvistarkreppu og fjársvelti. Á síðustu árum hafi áhugi fólks á umhverfismálum og ræktun aukist til muna og því tilvalið að uppfæra skólann með það að leiðarljósi. Sýknuð af rítalínsmygli Kona sem ætlaði að heim- sækja unnusta sinn á Litla- Hraun var á föstudag sýknuð af því að hafa ætlað að smygla rítalíni inn í fangelsið. Þegar konan kom í móttöku fang- elsisins brást fíkniefnahund- ur þannig við að ástæða þótti til að leita á henni. Konan neitaði að leitað yrði á sér og fór. Lögregla stöðvaði bíl hennar í grenndinni og fann á henni rítalíntöflur og spraut- ur. Upphaflega sagðist konan hafa ætlað að fara með lyfin til unnusta síns en dró þann framburð til baka. „Ísland hefur eins og flestar aðr- ar þjóðir skrifað undir svo kallað- an Vínarsamning um stjórnmála- sambönd,“ segir Elín Flygenring, prótókollsstjóri hjá Utanríkisráðu- neytinu. Á þriðjudaginn fjallaði DV um framkvæmdir sem standa yfir á lóð rússneska sendiráðsins en að verkinu koma eingöngu rússneskir starfsmenn sem eru á rússneskum kjarasamningum. Íbúar í kringum svæðið hafa margir hverjir verið óánægðir með umgengni á svæð- inu enda eru heilu staflarnir af ryð- guðum olíutunnum steinsnar frá lóðum íbúanna. Elín segir að ekki sé hægt að kalla sendiráðslóðirnar fríríki heldur hafa þau svo kölluð frið- helgisréttindi og bendir í því sam- hengi á lög númer sextán frá árinu 1971 sem kveða á um rétt sendi- ráða og starfsemi þeirra. Í lögun- um sem samþykkt voru segir að sendiráðssvæðið skuli njóta frið- helgi en 22. grein kveður á um það. Þar segir ennfremur að full- trúar frá móttökuríkinu, það er Íslandi, geti ekki farið inn á lóð- ina nema með samþykki forstöðu- manns sendiráðsins. Í 33. grein þessara sömu laga segir að starfs- menn á vegum sendiráðsins eigi að njóta friðhelgi til athafna, sem þeir framkvæma innan skyldu- starfa sinna. Ef starfsmenn sendi- ráðsins hafa ekki fast heimilsfang hér á landi, líkt og verkamennirn- ir við rússneska sendiráðið, skulu þeir undanþegnir öllum sköttum og gjöldum. Samkvæmt þessum lögum hef- ur Ísland takmarkaðar heimildir til að skipta sér af starfsemi sendiráð- anna. Lóðir sendiráðanna eru frið- helgar samkvæmt lögum og full- trúar frá Íslandi geta ekki farið inn á lóðina nema með leyfi sendiráðs- ins. Elín segir að kvartanir vegna framkvæmda á lóðum sendiráð- anna séu ekki algengar. „Ég man ekki eftir því að hafa fengið eina einustu kvörtun vegna starfsemi sendiráðanna eftir að ég tók við þessu starfi í september síðastliðn- um.“ Aðspurð segir Elín ef kvartan- ir berast til prótókollsins sé tekið á þeim en það fari eftir eðli þeirra hverju sinni. „Hvert mál er skoð- að fyrir sig, en við höfum ekki lent í neinum vandræðum með sendi- ráðin,“ segir Elín. einar@dv.is Lóðir sendiráða varðar með lögum Takmarkaðar heimildir til afskipta af starfsemi sendiráðanna: Frá lóð rússneska sendiráðsins Nágrannar undra sig á frágangi við vinnuna. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur boðið forstjóra Alcan að stækka ál- verið á landfyllingu. Einar Mar Þórðarsson stjórnmálafræðingur segir að það myndi brjóta í bága við vilja íbúanna. Einar Mar Þórðarsson stjórnmála- fræðingur segir að lagalega séð hafi íbúakosning nánast ekkert vægi en pólitískt sé væri það ekki sniðugt fyrir bæjarstjórann í Hafnarfirði að fara út í stækkun á álverinu. Lúðvík Geirsson sagði hinsvegar á fundi með forstjóra Alcan í síðustu viku að til greina kæmi að stækka álverið á landfyllingu. Íbúakosningar hafa verið mikið í umræðunni undanfarin ár og nýleg dæmi eru um slíkar kosningar hér á landi, til dæmis í Hafnarfirði. Marg- ir hafa engu að síður efast um vægi slíkra kosninga. Í helgarblaði DV sem kom út síðasta föstudag sagði Michel Jaques, forstjóri Alcan, að á fundi sín- um með Lúðvíki Geirssyni, bæjar- stjóra Hafnarfjarðar, að það kæmi til greina að stækka álverið þrátt fyrir að íbúarnir hefðu hafnað því í kosn- ingum. Michel Jaques segist engu að síður virða niðurstöður kosninganna. Þetta kemur mörgum líklega spánskt fyrir sjónir því ef Alcan ætlar að ráð- ast í stækkun álversins, og þar að auki vegna tillögu bæjarstjórans, þrátt fyrir að íbúarnir hafi hafnað stækkuninni er varla verið að bera mikla virðingu fyrir niðurstöðu kosninganna. Um hvað var kosið í íbúakosn- ingunum? Tæknilega séð var ekki verið að kjósa um hvort stækka mætti álverið eða ekki heldur hvort stækka mætti álverið á þennan hátt eða ekki. Íbú- arnir höfnuðu þessu deiliskipulagi og margir Hafnfirðingar hafa líklega ekki aðeins verið að hafna þessu ákveðna deiliskipulagi heldur stækkun yfir höf- uð. Fyrir þeim hljóta stækkunaráform Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra, að skjóta skökku við. Michel Jaques seg- ir að á fundi sínum með Lúðvíki hafi Lúðvík komið fram með tillögu um að stækka álverið með landfyllingu. Í að- alskipulagi bæjarins er gert ráð fyrir því að höfnin verði færð og hafi bæj- arstjórinn komið fram með þá tillögu að nýta sér það. „Tæknilega var auðvitað verið að kjósa um þessa ákveðnu deiliskipu- lagstillögu, þeir sem voru að kjósa, það er að segja íbúar Hafnafjarðar, voru vissulega fyrst og fremst að kjósa um það hvort þeir vildu stækka ál- verið eða ekki og jafnvel að greiða at- kvæði með eða á móti þessu álveri,“ segir Einar Mar Þórðarson, stjórn- málafræðingur. Brýtur í bága við vilja íbúanna Einar Mar segir að óhætt sé að full- yrða að bæjarstjórinn væri að brjóta í bága við vilja íbúanna sem tjáðu hug sinn í kosningum með því að stækka álverið hvort sem það væri á land- fyllingu eða með einhverjum öðrum hætti. „Mér finnst mjög ótrúlegt að bæjarstjórnin komi með einhverja nýja tillögu eða breyti tillögunni í þá átt að álverið stækki án þess að leyfa íbúunum að kjósa um hana,“ segir Einar og bætir við að það gæti auð- vitað verið að farið væri út í aðrar kosningar sem snéru að álverinu. „Ég held nú samt að það væri klókast fyrir þennan meirihluta að láta kyrrt liggja alveg þetta kjörtímabil,“ segir Einar. Ekkert lagalegt vægi en mikið pólitískt „Lagalegt vægi íbúaskosninga, eins og þær er settar upp í dag, er nán- ast ekki neitt en pólitískt vægi þeirra er mjög mikið. Það ætti allavega að vera mjög mikið,“ segir Einar Mar. „Því held ég að það væri mjög erfitt fyrir núver- andi meirihluta að fara að fikta eitt- hvað í þessu deiliskipulagi eða þessari niðurstöðu sem meirihluti íbúa Hafn- arfjarðar komst að þá er hætt við því að þeim verði hafnað í næstu sveita- stjórnarkosningum,“ segir Einar. „Íbúakosningar eru ákveðin skila- boð og með því er verið að gefa íbú- unum kost á því að segja hug sinn í ákveðnum málum. Eins og íbúakosn- ingarnar í Hafnafirði voru settar upp var það alveg ljóst frá upphafi að það væri verið að kjósa um ákveðna deili- skipulagstillögu og bæjarstjórn gat á hvaða tíma sem er breytt þeirri til- lögu. Mér finnst nú samt ótrúlegt að núverandi bæjarstjórn ætli að breyta þessari tillögu. Það eru sterk skilaboð til bæjarstjórnarinnar. ÍBÚAKOSNINGAR HAFA EKKERT LAGALEGT VÆGI Lúðvík Gerisson Hefur sagt að til greina komi að stækka álverið þótt íbúar hafi hafnað stækkun. Íbúakosning í Hafnafirði Íbúarnir í Hafnarfirði kusu í raun um það hvort stækka ætti álverið eða ekki. Tillögur um stækkun voru felldar. KristÍn HrEFna blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.