Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 30
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkassinn
Ég er að velta því fyrir mér hvort
að leikarinn Matt Damon sé ninja-
meistari. Það er jú sérgrein þeirra
að fara um óséðir. Um daginn fór
af stað sú saga að Matt Damon
hafi verið hérna á landinu og feng-
ið sér hress-
ingu á barnum
Sirkus. Stuttu
seinna heyrði
ég að það hefði
verið hreinasta
lygi. Nú var ég
að heyra frá
nokkuð áreiðan-
legum heimild-
um að Matt hafi
í raun verið hér á landinu og ekki
nóg með það heldur hafi hann
kynnst íslenskri stelpu. Stúlkunni
bauð svo Matt til Ítalíu með sér
þar sem þau eru núna saman. Te-
skeið af salti?
Nýjasta afurð Hugleiks Dags-
onar rokselst en hún kom út fyrir
stuttu. Bókin hetir Ókei bæ! og er
víst komin í fjórða sæti á sölu-
lista Pennans Eymundssonar og
er hársbreidd
frá þriðja sæt-
inu. Mér finnst
svolítið skrýtið
hvað Hugleik-
ur og bækur
hans hafa náð
að sigla undir
radar siðferð-
ispostula sam-
félagsins. Ekki
það að ég hafi eitthvað á móti
bókum Hugleiks. Þvert á móti
hittir þetta beint í mark hjá mér og
ég hlæ manna hæst þegar engill
teflir við páfan uppi á himnum
og deyðir svo saklausan mann
með hægðum sínum. Það er bara
skrýtið að meðan verið er að æsa
sig yfir öllu að engum finnist þetta
athugavert.
eitt sem Ég skil ekki alveg og hef
oftar en ekki talað um í pistlum
mínum. Hvernig stendur á því að
svona vægt er tekið á kynferðisaf-
brotamönnum á Íslandi eins og
raun ber vitni. Mikið væri ég til í
að setjast niður
með lögfræðingi
eða dómara og
biðja hann um
að útskýra fyrir
mér hvers vegna
einhver sem
misnotar aðra
manneskju fær
jafn vægan dóm
og raun ber
vitni trekk í trekk. Því mér skilst að
refsiramminn sé til staðar. Hvern-
ig getur þetta líka ekki verið eitt af
baráttumálum stjórnmálaflokk-
ana? Að taka á refsingum vegna
kynferðisglæpa. Fyrir mér er þetta
bara óskiljanlegt með öllu.
Þar sem Ég hef síðustu mánudaga
kynnt lesendur fyrir svokölluðum
USB-græjum svo sem rassa- og
goskæli verð ég að benda á eina
nauðsynjarvöru til viðbótar. USB-
upphitaðir inniskór. Kaldar tásur
innternetið er bara eitthvað sem
fer ekki saman. Að minnsta kosti
finnst einhverjum það. Einhvers-
taðar sá ég líka að hægt væri að fá
Gorge Forman-grillið með USB-
tengi. Alveg
magn-
að.
Ásgeir Jónsson veltir
hlutunum fyrir sér
„Það kom mér mjög á óvart hvað
þau borðuðu fjölbreyttan mat,“ seg-
ir Ólafur Sólimann sem eldaði ofan í
stjörnurnar Demi Moore og Asthon
Kutcher um tveggja mánaða skeið
síðastliðið vor, þegar þau voru við
tökur í Lúxemborg. „Það var búið að
vara mig við því að þau vildu bara
mjög sérstakt fæði en þau borðuðu
eiginlega allt, nema helst mikið unn-
inn mat. Þau vildu mikið hreina fæðu
og ferskt hráefni,“ segir hann.
Demi hrifin af skyri
Ólafur fór þrisvar til Tælands á ár-
unum 1999-2000 og lærði þar sérstak-
lega tælenska matargerð. Stjörnurnar
fengu því að bragða á slíkum réttum
hjá Ólafi. „Ég eldaði mikið tælenskan
mat fyrir þau - en líka indverskan, ít-
alskan og íslenskan.“ Ólafur segist þó
ekki hafa boðið þeim upp á blóðmör
og sviðakjamma. „Nei, ekkert af þessu
gamla íslenska, ég þorði því nú ekki -
en allskyns fiskrétti og svo var Demi
mjög hrifin af skyr-boozti sem ég lag-
aði fyrir hana,“ segir hann.
Fínt fólk
Óskað hafði verið eftir umsókn-
um frá matreiðslumönnum í Evrópu
sem væru reiðubúnir að taka að sér
eldamennsku fyrir stjörnurnar og
Ólafur sló til. „Ég sendi þeim bara
ferilskrána mína og fékk starfið,“ seg-
ir hann. Ólafur kynntist stjörnunum
ágætlega og eldamennskan féll vel
í kramið hjá þeim hjónum. „Mað-
ur hefði nú bara verið látinn fjúka
strax ef þau fíluðu ekki matinn,“ segir
hann. „Það var mjög gaman að vinna
hjá þeim, þetta er mjög fínt fólk og
það kom mér verulega á óvart hvað
þau eru mannleg. Ég bjóst við allt
öðruvísi fólki.“
Sérfæði á páskum
Demi Moore iðkar Kabbalah, eins
og margar aðrar Hollywoodstjörnur
og þurfti vegna þess að borða sérstakt
fæði á tímabili um páskana. Ólafur
segir það vera það eina undarlega
sem kom upp á meðan á dvöl hans
stóð með þeim hjónum. „Þá mátti ég
ekki elda neitt fyrir hana sem inni-
hélt lyftiefni eða eitthvað hvítt - eins
og lyftiduft, ger, egg, hveiti, hrísgrjón
og mjólkurvörur. Það reyndi dálítið
á og maður þurfti virkilega að spá í
hvað maður væri að gera.“
Í sambandi við stjörnurnar
Ólafur starfar um þessar mund-
ir sem yfirkokkur á B5 við Banka-
stræti en telur ekki ólíklegt að hann
gæti átt eftir að starfa fyrir stjörnurn-
ar aftur síðar. „Ég hef verið í tölvu-
póstsambandi við þau, en þau starfa
náttúrulega aðallega í Bandaríkjun-
um og eru með sína kokka þar. En ef
þau færu til Evrópu myndu þau hafa
samband aftur,“ segir Ólafur.
Ólafur Sólimann Lárusson hefur undanfarin ár unnið mikið er-
lendis - einkum í Lúxemborg, en hann útskrifaðist sem matreiðslu-
maður frá veitingastaðnum Lækjarbrekku árið 1994. Í fyrra komst
hann í tæri við stjörnurnar, þegar hann starfaði sem matreiðslu-
maður Demi Moore og Ashton Kutcher - en þau voru þá við tökur
á kvikmyndinni Flawless í kvikmyndaveri í Lúxemborg.
Í dag Á morgun
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xx
+17
2
xx
xx
xx
+12
7
+12
4
+12
6
+14
4
xx
xx
+12
2
xx
+13
3
xx
xx
+12
2
xx
xx
xx
+14
2
+12
4
xx
xx
xx
xx
-xx
Tengsl
... Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari
á það sameiginlegt með...
...Guðjóni Val Sigurðssyni að hafa
spilað með KA. Guðjón á það
sameiginlegt með...
...Kyung-Shin
Yoon að hafa
verið markahæst-
ur í þýsku
úrvalsdeildinni.
Yoon á það
sameiginlegt
með...
...Stefan
Kretzschmar að
hafa leikið á HM
1995 á Íslandi.
Kretzschmar á
það sameiginlegt
með...
...Arnóri Atlasyni að hafa leikið hjá
Magdeburg. Arnór á það sameigin-
legt með...
...Ásgeiri Erni
Hallgrímssyni að
hafa orðið
Evrópumeistari
U21. Ásgeir á það
sameiginlegt
...Loga Geirssyni að
leika með Lemgo.
Logi á það
sameiginlegt
með...
...Sigfúsi
Sigurðssyni
að vera með
húðflúr.
Sigfús á það
sameginlegt
með...
...Stefan Lovgren að hafa leikið í
þýsku úrvalsdeildinni. Lovgren á
það sameiginlegt með...
...Bjarka
Sigurðssyni að
hafa verið
með honum í
heimsliðinu.
Bjarki á það
sameiginlegt
með...
...Alfreð að hafa unnið B-keppnina
1989.
hrÆrði
sKYr fYrir
Demi mOOre
Ólafur Sólimann Eldaði fyrir
Hollywoodstjörnur í Lúxemborg.