Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Side 8
mánudagur 25. júní 20078 Fréttir DV Allt frá því að Siad Barre, þáver- andi forseti Sómalíu, missti völd- in hefur ekki tekist að mynda starf- hæfa ríkisstjórn í landinu. Í sex mánuði á síðasta ári náðu harð- línumenn stjórn hluta landsins í sínar hendur. Þeir voru hins veg- ar hraktir frá völdum af ríkisstjórn landsins sem nýtur stuðnings her- manna frá Eþíópíu og fjármagns frá Bandaríkjunum. Þessar tvær fylkingar takast nú á um völdin og engin leið að spá hvor hefur betur. Á meðan deyja þúsundir almennra borgara og hjálparstarfsmenn kom- ast hvergi að. Standa í vegi fyrir friði Sómalska þjóðin er múhameðs- trúar en uppgangur samtaka harð- línumanna eða íslamista eins og þeir eru stundum nefndir var þyrn- ir í augum Bandaríkjamanna. Innrás eþíópíska hersins í land- ið hefur verið réttlætt sem hluti af baráttunni gegn uppgangi hryðju- verkasamtaka í heiminum. Hins vegar skapaðist friðsamlegra and- rúmsloft í landinu á sex mánaða valdatíma þeirra en hafði ríkt þar árin þar á undan. Til að mynda gafst Sameinuðu þjóðunum tækifæri á að bólusetja níutíu prósent barna í landinu á þessum tíma en það hafði verið óhugsandi árin á undan. Í stjórnartíð núverandi ríkis- stjórnar hefur aldrei ríkt friður en hún tók við í október 2004 og helsta verkefni hennar var að skapa frið. Í grein The Economist er því hins vegar haldið fram að það séu forseti landsins, Abdullahi Yusuf Ahmed og forsætisráðherrann, Ali Moham- ed Ghedi sem standi í vegi fyrir frið- arviðræðum. Þeir hafa ekki verið til- búnir að setjast að samningaborði með fulltrúum íslamista, ekki einu sinni þeim sem teljast til hófsamari fylkinga þeirra. Þess í stað hafa þeir aukið völd Hawiye, ættbálksins sem ræður mestu í Mogadishu, höfuð- borg Sómalíu. Nýjar baráttuaðferðir Um sautján hundruð manns eru taldir hafa látist í átökum í höfuð- borginni í mars og apríl. Langflest- ir óbreyttir borgarar þó Eþíópíu- menn fullyrði að meirihlutinn hafi verið liðsmenn hersveita harðlínu- manna. Bandaríkjamenn og Eþ- íópíumenn segja sveitirnar vera á bandi al-Qaeda en baráttuaðferðir þeirra minna um margt á aðferð- ir uppreisnarmanna í Írak og hafa þeir meðal annars beitt sjálfsmorð- sárásum sem hingað til hafa ver- ið óþekktar í Sómalíu. Bandaríkja- menn hafa stutt eþíópíska herinn fjárhagslega í átökunum sem hefur réttlætt veru sína í landinu sem þátt í vörnum síns eigin lands. Forsæt- isráðherra Eþíópíu segir her sinn ekki fara fyrr en friður hafa náðst á Átök harðna og engin lausn í Vopn gerð upptæk Hermenn eþíópíska hersins stilla upp vopnum sem gerð voru upptæk víðs vegar um höfuðborgina mogadishu. Stjórnleysi hefur ríkt í Sómalíu síðustu sextán ár. Í dag takast á um völdin millibilsríkisstjórn sem Eþíópíumenn og Bandaríkjamenn styðja og hins veg- ar múhameðstrúaðir harðlínumenn. Ástandið er slæmt í landinu og hjálpar- starfsmenn komast ekki með matvæli til hundruð þúsunda manns. Abdullahi Yusuf Ahmed, forseti Sómalíu afstaða forsetans til andstæðinga sinna er talin standa í vegi fyrir friðarviðræðum. Sprengjurústir í Mogadishu ástandið í borginni er talið minna á þýskar borgir undir lok seinni heimstyrjaldarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.