Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Side 18
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
SænSkur Sigur
Sænski
kylfingurinn
Niclas Fasth
sigraði með
tveggja högga
mun á opna
Evrópumótinu í
golfi sem fram
fór í Munchen.
Fasth lauk keppni
á 13 höggum
undir pari en Portúgalinn Jose-Filipe
Lima og Þjóðverjinn Bernhard Langer,
sem verður fimmtugur í sumar, urðu
jafnir í 2. sæti á 11 höggum undir pari.
Langer vann sig upp um 9. sæti á
lokahringnum, sem hann lék á 5
höggum undir pari.
Yfirtaka MancheSter
citY í uppnáMi
Yfirvöld í Tælandi eru að rannsaka
uppruna þeirra peninga sem Thaksin
Shinawatra er að nota til þess að kaupa
Manchester City. Þessi fyrrverandi
forsætisráðherra fékk nýlega samþykkt
81.6 milljóna punda tilboð í félagið.
Kaupin eru hins vegar í uppnámi vegna
spillingarmála og fyrr í mánuðinum
ákváðu yfirvöld í Tælandi að frysta eignir
hans í Tælandi, en Shinawatra þykir hafa
hagnast á óvenjulegan máta í tíð sinni
sem forsætisráðherra. „Hvaðan
peningarnir sem notaðir voru til þess að
kaupa Manchester City komu er hulin
ráðgáta en við munum komast að hinu
sanna, sagði Chalongphob Sussangkarn
fjármálaráðherra landins um málið.
capello hafði rangt fYrir Sér
David Beckham lét hafa eftir sér við
fjölmiðla að hann sé yfir sig ánægður að
hafa náð að spila
fyrir Real Madrid
að nýju eftir að
hafa fallið í ónáð
hjá Capello
þjálfara
Madridarliðsins.
Capello sagði í
janúar að
Beckham hefði
spilað sinn
síðasta leik fyrir klúbbinn eftir að hann
samdi við LA Galaxy. „Ég sannaði fyrir
Capello að hann hafði rangt fyrir sér, en
það má ekki gleyma því að hann var
nógu mikill maður til þess að láta mig
spila þrátt fyrir að hann hefði útilokað
það áður. Mér finnst hann vera maður
að meiri eftir það. „Hann kom samt
aldrei til mín og viðurkenndi að hafa
haft rangt fyrir sér,“ sagði Beckham.
ciSSe verður ekki lánaður
Rafa Benitez framkvæmdastjóri
Liverpool segir ekki koma til greina að
lána Djibril Cisse annað tímabil. Ef lið
vilji njóta krafta hans þurfi þau að gjöra
svo vel að reiða fram það fé sem þarf til
þess að kaupa leikmanninn. Cisse var í
láni í Frakklandi með Marseille á síðasta
tímabili. „Ef eitthvað lið vill hann verður
það að kaupa hann,“ sagði Benitez í
samtali við opinbera vefsíðu félagsins.
Talið er að lið sem hafi áhuga á honum
þurfi að reiða fram um 8 milljónir punda
til þess að fá leikmanninn í sínar raðir.
Hið árlega Arctic Open mót fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri um helgina:
Sigurpáll Geir vann miðnæturgolfið
Sigurpáll Geir Sveinsson, kylf-
ingur úr golfklúbbnum Kili, sigraði
á hinu árlega miðnæturmóti Arctic
Open um helgina en mótið fór fram
á Jaðarsvelli á Akureyri. Þetta er í
fimmta sinn sem Sigurpáll sigrar á
þessu móti en hann lék á 68 höggum
eða þremur undir pari. Í öðru sæti
varð Birgir Haraldsson á einu höggi
undir pari og Elfar Halldórsson í því
þriðja á fimm höggum undir pari.
Báðir eru þeir úr Golfklúbbi Akureyr-
ar. Úlfar Jónsson, golfari úr GKG; sem
unnið hefur mótið undanfarin tvö ár
var í öðru sæti eftir fyrri daginn en lék
ekki eins vel á laugardag og endaði í
sjötta sæti. Gamla knattspyrnugoð-
ið úr Vestmannaeyjum Ásgeir Sig-
urvinsson sigraði í keppni með for-
gjöf og telst því vera Arctic meistari
árið 2007. Halla Berglind Arnars-
dóttir hlaut verðlaun fyrir besta skor
í kvennaflokki og David Reynolds
fékk sömu verðlaun í öldungaflokki.
Arctic Open er alþjóðlegt mót sem
fram hefur farið frá árinu 1986. Þátt-
takendur á mótinu hafa aldrei verið
fleiri en í ár eða 212 talsins en golfar-
arnir koma úr öllum landshlutum og
einnig koma margir erlendir golfar-
ar gagngert til að spila á þessu móti.
Erlendir þátttakendur á mótinu í ár
voru þrjátíu talsins. Mikil aðsókn er á
mótið og leita skipuleggjendur þess
nú leiða til að stækka það enn frekar.
Það má því búast við því að fleiri gol-
farar fái tækifæri til að spila á þessu
skemmtilega móti á næstu árum.
Miðnæturgolf Það er alltaf fallegt að
spila golf í miðnætursólinni á Akureyri.
Mynd:GolfklúbburAkureyrar
Thierry Henry er farinn frá Arsen-
al. Áfangastaðurinn er Barcelona, lið
sem hann hefur verið orðaður við í
mörg ár. Brotthvarf hans þarf ekki að
koma á óvart því hann vildi að Arsen-
al keypti alvöru knattspyrnumenn,
ekki einhverja unga og efnilega.
Henry skrifaði undir nýjan samn-
ing við Arsenal eftir úrslitaleikinn í
Meistaradeild Evrópu í fyrra, einmitt
gegn Barcelona. Þá var hann búinn
að vera orðaður við för til Spánar en
ákvað að fylgja hjartanu og skrifaði
undir fjögurra ára samning. Stjórn-
armenn Arsenal voru búnir að gefa
honum loforð um að sterkir, heims-
klassa leikmenn væru á leiðinni. Lof-
orð sem var ekki efnt. Arsenal gekk í
gegnum miklar breytingar innan fé-
lagsins, David Dein hvarf á brott en
hann er sagður hafa verið maður-
inn á bak við tjöldinn og sagður hafa
fengið Henry og stjórann Arsene
Wenger til liðsins. Nú er Henry far-
inn og Wenger ætlar að hugsa málið
þegar samningur hans rennur út eft-
ir næsta tímabil. Ástæðan er að hluta
til að liðið flutti á hinn glæsilega en
rándýra Emirates völl og átti því ekki
pening til að styrkja liðið.
Henry lék í átta tímabil með Ars-
enal og skoraði 226 mörk í 364 leikj-
um. Samt var hann miklu meiri leik-
maður en bara markaskorari. Leikur
hans gekk út á að finna samherja
sína. Hann vann tvo deildartitla með
Arsenal, varð markahæstur fjórum
sinnum og vann FA bikarinn þrisvar
sinnum. Hann komst einnig í úrslita-
leik Meistaradeildarinnar eins og
áður segir þar sem Arsenal tapaði 2-
1 fyrir Barca.
tveir milljarðar fyrir 29 ára
gamlan leikmann
Henry kostar Barca 16 milljónir
punda, rúmlega tvo milljarða króna
og fær að sögn í laun um hálfan millj-
arð á ári. Skattfrjálst þar sem knatt-
spyrnumenn á Spáni eru sagði lista-
menn og þurfa því ekki að borga
skatt. Hann verður þrítugur í ágúst
og ljóst að verðmæti hans á bara eftir
að fara niður á við.
„Ég sagði einhvern tímann að ég
yrði Arsenal-maður að eilífu og ég
var ekki að ljúga neinu þar. Því einu
sinni Arsenal-maður, ávallt Arsen-
al-maður,“ sagði Henry í viðtali við
heimasíðu Arsenal. „Félagið mun
alltaf eiga stað í mínu hjarta og ég
kem til með að sakna allra hjá fé-
laginu. Nú verð ég stuðningsmað-
ur Arsenal og mun ávallt skoða úr-
slitin þeirra. Ég lagði mig allan fram
í þetta verkefni með Arsenal og
vona að þið hafið notið þess sem ég
gerði hér. Ég met allavega það sem
þið gerðuð fyrir mig,“ bætti hann
við og sagði að framherjarnir Robin
van Persie, Emmanuel Adebayor og
Nicklas Bendtner ættu að geta fyllt
í það skarð sem hann skilur nú eft-
ir. „Vonandi gera þeir það, um leið
og þeir gera það munu stuðn-
ingsmennirnir gleyma mér.
Þannig gengur boltinn fyr-
ir sig.“
Það er ýmislegt
hægt að segja um
Thierry Henry,
margir þola
hann ekki
vegna
þess
hvern-
ig hann
fagnar,
eða fagnar
ekki mörkun-
um sínum. Aðr-
ir virða hann fyrir
hraða, tækni, ná-
kvæmni og persónu-
leika sem hann hef-
ur að geyma. Og svo má
ekki gleyma að hann er fjandi
góður knattspyrnumaður.
hvað verður um eið Smára
Með komu Henry til Barcelona
eykst samkeppni um stöðu framherja
í liðinu gríðarlega. Barcelona hefur
nú að geyma fjóra af tíu bestu fram-
herjum heims. Ronaldinho, Samuel
Eto´o og Lio Messi. Að auki er okkar
maður Eiður Smári um hituna.
Gárungarnir segja að Eiður
Smári verði í Barcelona á næsta
tímabili því Samuel Eto´o verði
seldur. Fótboltinn er hins veg-
ar þannig að hlutirnir eru fljótir
að breytast og því erfitt að ráða í
framtíðina nema með kristalkúlu
og göldrum. benni@dv.is
thierry henry verður formlega kynntur sem leikmaður Barcelona í dag. Þessi 29 ára
gamli Frakki hefur unnið allt sem hægt er að vinna á knattspyrnuvellinum nema Meist-
aradeild Evrópu. Nú er spurt hvað verður um framtíð eiðs Smára hjá Barcelona.
Sveik ARSenAL
Ry
Snillingur Það verður ekki af Thierry Henry
tekið að hann er snillingur með boltann.