Innsýn - 01.05.1979, Síða 5
5
Hvernig er starfseminni
háttað almennt? t.d. yfir-
ferð a námsefni, föndur,
leikir?
Hver fundur hefur ákveð-
ið form. Við byrjum á því
að fara með æskuloforðið og
syngja skátasönginn. í>vi
næst er lesið vers úr Biblí-
unni og beðin bæn. Þá er
farið með fánaheitið og sung-
inn fánasöngur. Næst er
söngstund, fyrst með andleg-
um söngvum, síðan með skáta-
söngvum, en oft er lesin smá
saga sem skiptir söngstund-
inni.
Að söngstund lokinni
fara börnin hvert í sinn hóp
með sínum foringja og er þá
farið yfir námsefnið. Að
loknu hópstarfi er sá tími
sem eftir er fiindarins not-
aður til leikja.
Dálitið höfum við reynt
að vera með föndur en þar
sem við erum í húsnæði frá
öðrum er það mjög erfitt.
Það sem háir okkur mest eru
húsnæðisvandræði. Því þetta
hús er mjög áskipað og erf-
itt að komast að. Fyrsta
árið vorum við t.d. með alla
fundi fram undir jól heima
hjá Jóni og Boggu. Það hef-
ur líka komið fyrir síðan að
við höfum orðið að víkja úr
"Kvennó" og er þá ekki annað
að gera en fara heim með
hópinn. ÞÓ höfum við getað
komist í skólastofu í vetur
þegar verst hefur staðið á
í "Kvennó".
Eru þetta allt aðvent-
istar?
Nei, fæst eru frá aðvent-
heimilum. Fyrri árin aðeins
2. börn. í vetur bættust svo
4 við frá Keflavxk og nú
eru 3 héðan.