Innsýn - 01.05.1979, Blaðsíða 8

Innsýn - 01.05.1979, Blaðsíða 8
8 LEST ÞÚ NOKKUÐ Í BIBLÍUNIS -"jú,jú, ég fékk 7 í kristinfræði maður, hvað heldur þú." Já, nei, ég meina hvort þú lest hana svona fyrir sjálfan þig? " -"Nei, það er nú lítið sem maður gerir af því." "Jæja, en þú átt kristilegt heimili bak við þig. Hvernig stendur á þessu? - "Ég veit að maður á að lesa hana, en það er bara aldrei tími til þess." "Sem sagt þú hefur ekki tíma til að lesa neitt nema námsbækur." - "Nei, ég segi það nú ekki alveg svona." "Er áhugi nokkur fyrir hendi þá?" - "Já en þetta er svo mikið sem maður skilur ekki." "En segðu mér^ ef ég gæfi þér bók sem segði þér um hulinn fjársjóð sem öllum væri kleift að finna,myndir þú þá leggja á þig að reyna að skilja bókina þótt hún virtist torskilinn í fyrstu?" - "Ég veit hvert þú ert að fara, því ég hef heyrt svona dæmi áður. ÞÚ ert að reyna að máta mig. Ef ég segi nei, þá er ég vitlaus en ef ég segi já, þá er ég sjálfum mér ósamkvæmur. Auðvitað vil ég finna fjársjóð og ég veit að ef ég les Biblxuna finn ég mikinn fjársjóð. Af hverju er ég svona slappur í þessu?" "Getur það verið að einhver reyni að hafa áhrif á þig?" - "Nei, nei, strákarnir eru flestir eins og ég - þetta er bara leti."

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.