Innsýn - 01.05.1979, Page 9
9
I ?”
"Nei, ég á við að óvinurinn reynir að hafa áhrif á okkur
því að hann veit að Biblían gerir hann óvirkan og gegnsæan.
- "Hann er ábyggilega dauðfeginn ef við lesum ekki Biblíuna."
"Já, því að þá á hann auðvelt með að plata okkur eða rugla
\ okkur."
I
' - "En hvernig get ég komið mér til að lesa hana?"
"Fyrst og fremst er það löngun sem leiðir til ákvörðunar.
Það er létt að ákveða að gera það sem mann langar til"
- "Vist langar mig, en hvað geri ég þegar ég tek hana upp?"
"Sem sagt, hvernig á að fara að því að lesa hana?"
- "Já, einmitt."
"Biblian er bókasafn með Guð sem ritstjóra. Bækurnar og
höfundar eru einstaklingar eins og við. Guð hefur séð um
að heildin segi okkur hvernig hann, frá upphafi til enda,
elskar okkur og vill leiða okktar til sín þrátt fyrir hve
oft við yfirgefum hann og förum okkar eigin leið."
’\
- "já, en sjáðu það er svo margt ljótt í Gamla testamentinu
- stundum alveg hryllilegir atburðir. Á ég að gefa þér
dæmi?"
"Nei þess þarf ekki, því að þau sýna aðeins að Biblían er
raunsæ bók sem fjallar um gott og illt en ekki aðeins um
dýrðlinga og draumheimin."
- "Á ég þá að læra af mistökum annarra?"
"já, við gerum það í daglegu lifi svo við ættum að geta
gert það frá Biblíunni líka. En miðdepill Biblíunnar er
maðurinn sem gerði engin mistök."