Innsýn - 01.05.1979, Qupperneq 13
13
sandi. Þetta festist við
fæturna á þeim og myndar
harðan skurn. Svo geta gæs-
irnar gengið langar leiðir
án þess að fá sár á fæturna.
Hvers vegna ætti kú að
vera með stílgleraugu? Hafið
þið séð nokkra kú á íslandi
með gleraugu? Nei, ég hugsa
ekki. Þessar sérstöku kýr
búa á steppunum í RÚsslandi
og það er ekki þægilegur
staður. Allt er á kafi í
snjó 6 mánuði á ári og kýrn-
ar eiga erfitt með að finna
sér gras að éta.
Þetta er nú nógu slæmt,
en ekki er allt búið enn.
Þegar sólin skín, verður
birtan af snjónum svo mikil
að þær blindast og finna því ■»
ekki þessar fáu grastuggur,
sem standa upp úr snjónum.
Einhver tók eftir þessu og
ákvað að eitthvað yrði að
gera fyrir veslings dýrin.
Lausnin var auðvitað
dökk gleraugu. En þetta
var nú hægara sagt en gert.
Hvernig ætlarðu að fara að
því að setja gleraugu á kú
þannig að þau tolli og séu
þægileg, því ekki er gott að
hún rífi þau af sér jafnóðum.
Það tók langan tíma að
leysa þetta vandamál, en
mannin\mn sem vildi hjálpa
dýrunuul tókst það á endanum.
Núna ganga allar kýr á Rúss
rússnesku steppunum með sól-
gleraugu og snjóblinda er
ekki lengur neitt vandamál,
Hefur þú nokkurn tíma
séð múlasna £ síðbuxum?
Það fengirðu að sjá ef þú
heimsæktir eyjuna Re úti fyr-
ir Frakklandsströnd. Þessi
dýr, sem vinna á vínekrunum
hafa gengið í síðbuxum í
mörg hundruð ár. Vegna þess
að múlasninn hefur fjóra
fætur, þarf hann tvennar
buxur. Einar fyrir aftur-
lappirnar og aðrar fyrir
framlappirnar.
Af hverju ætli múlasnarn-
ir gangi £ buxum? JÚ, það
er til að vernda þá gegn .
flugum, sem mikið er af á
eyjunni. Þessar flugur geta
bitið hroaðalega en þær
bita ekki i gegnum buxurnar.
BÓndakonurnar sauma bux-
urnar á dýrin úr alls konar
efnum og afgöngum og eru þær
þvi oft skrautlegar á að
lita. ÞÚ gætir séð múlasna
i buxum þar sem tvær skálmar
væru bláröndóttar og tvær
rauðköflóttar. Eða þá þær
væru rósóttar í öllum mögu-
legum litum.
Svo þegar þú heyrir um
gæsir sem ganga í skóm, kýr
með sólgleraugu eða múiasna
i litskrúðugum buxum þá er
það svolitið hlægilegt, en
mundu að það segir okkur að
einhver hafi verið svo hug-
sunarsamur og góður að reyna
ð gera lifið léttara fyrir
ýrin.