Innsýn - 01.05.1979, Page 15
Heilrœði.
OLLUSTA*
gefum náttúrunni sjálfri
TÆKIFÆRI
Þegar te, kaffi, tóbak
og áfengi á í hlut, er að-
eins eitt öruggt og það er:
Reykja ekki, smakka ekki,
ekki að prófa. Te og Kaffi
hafa sams konar verkun og
áfengi og tóbak. í sumum
tilvikum er jafn erfitt fyr-
ir þá sem eru háðir te og
kaffi að hætta eins og er
fyrir drykkjumanninn að
segja skilið við áfengið.
Þeim, sem reyna að hætta við
te og kaffi, mun líða illa
í byrjun en það varir ekki
lengi þar til þeim finnst
þeir vera orðnir frískir á
"ný". Meltingarfærin þurfa
tíma til að jafna sig eftir
þessa ofnotkun. Gefðu
líkama þínum tækifæri til að
safna kröftum, þannig að
hann geti fullnægt verki
sínu á sómasamlegan hátt.
Sumir halda því fram að
þeir geti alls ekki breytt
því, sem þeir eru búnir að
15
venja sig á. Þeir halda
því fram að þeir muni missa
heilsuna. En þetta er ein
af freistingum Satans. Það
eru þessi hættulegu örvandi
efni sem koma heilsunni í
hættu og sem undirbúa veginn
fyrir bráða sjúkdóma. Það er
þetta sem eyðileggur hæfi-
leika meltingarfæranna og
brýtur niður múr náttúrunnar
móti sjúkdómum, og leyfir
dauðanum að ganga í garð
fyrr en ella.
MATUR ?
Oft eigum við soðnar
kartöflur afgangs, sem við
vitum ekki hvað við eigum að
gera við. Herna er ein leið.
KARTÖFLUB UFF
250 gr. soðnar kartöflur
(stappaðar)
200 gr. rifinn ostur
2 tsk. kartöflumjöl
1 egg
jurtakraftur
Öllu blandð saman og
búnar til kökur, brúnað á
pönnu.
Borið fram með lauk og
grænbaunajafningi. Einnig
er gott að hafa karrýsósu.
framhald á baksíðu