Innsýn - 01.03.1980, Blaðsíða 14
14
íslendingar hafa komið við sögu fikniefnamála erlendis ekki síður
en hér heima. Hér sést kókaín og miklar f járhæðir í danskri mynt
sem íslendingar i Kaupmannahöfn voru teknir með.
leiðum en áður tíðkaðist?
- Okkar reynsla er sú að
menn skortir ekki hugmynda-
flugið þegar kemur að því
að reyna að smygla fíkniefn-
um inn í landið. Það eru
allar aðferðir reyndar,
smygl með skipum og flug-
vélum, í bréfum, og faragnri
og jafnvel í þeim einstakl-
ingum, sem að smyglinu
standa og á ég þá við til-
raunir til þess að fela
efnin uppi í sér, í enda-
þarmi og jafnvel kynfærum.
Hvaðan koma fíkniefnin?
- í langflestum tilfellum
frá Hollandi og Kaupmannahöfn
ef um er að ræða hass og
hassolíu, kókarn, heróín og
LSD en marihuana kemur yfir-
leitt frá Bandaríkjunum.
Söluverð hér á íslandi er
2-4 falt það verð sem greitt
var fyrir efnið erlendis
svo að hagnaðurinn er mikill
ef fíkniefnin komast inn r
landið. Enda vitum við dæmi