Innsýn - 01.03.1980, Blaðsíða 18

Innsýn - 01.03.1980, Blaðsíða 18
18 Fíllinn viá Tembeling kna Muda vaknaði við það að pabbi hans kallaði á hann. Hann settist upp á svefn- mottunni sinni, teygði sig, tók skyrtuna og smeygði henni yfir höfuðið. Hann teygði úr sér, geispaði, og þurrkaði stírurnar úr augunum. Það var ennþá kolsvört nótt fyrir utan litla húsið, sem í raun var aðeins eitt herbergi og stóð alveg nið- ur við Tembeling ána. Muda kíkti út, það eina sem hann greindi voru dökkir skuggar bananatrjánna og kókoshnetu- pálmanna. Áin rann hratt fram hjá og tunglskinið glitraði á vatninu. Hann vissi að rétt neðan vió hús- ið lægi bátur fjölskyldunn- ar, bundinn við fljótandi trj Adrumb. Pabbi kveikti á kókos- oliulamþánum. "Drífðu þig nú Muda," sagði hann, "berðu ananasinn, ég skal taka bananaknippin og svo hjálp- umst við að, með kókoshnet- urnar. Á hverjum þriðjudegi var markaðsdagur í Tembeling- þorpi. Þorpið var við ána um 5 kílómetrum ofar. Kaup- mennimir keyptu ávexti, grænmeti og aðrar frumskóga- afurðir af bóndafólkinu. í dag færu margir bátar til Tembelingþorps, hlaðnir alls konar góðgæti. Þegar drengurinn og pabbi hans höfðu lokið við að hlaða bátinn sáust fyrstu geislar morgunsól- arinnar út við sjóndeildar- hringinn. Muda kom með árarnar. Þeir leystu bát- inn, ýttu honum út í strauminn og hoppuðu um borð. Muda sat í skutnum c-g stýrði en pabbi hans ar frammi í stefni, þar /ar best að róa. Þeir urðu að beita öllum ráðum því ei ? i - - -j...r að koma

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.