Kjarninn - 13.03.2014, Page 28
03/05 HeiLbrigðiSMáL
fjögurra til fimm ára húsum og sums staðar höfum við fundið
ísbrynjur innan á útveggjum að vetrarlagi,“ segir Ríkharður
og bætir við að með þessari uppbyggingu sé einfaldlega verið
að bjóða myglunni upp í dans, eins og hann orðar það.
kallar eftir nýrri byggingareglugerð
Ríkharður telur að banna eigi þessa tegund upp-
byggingar. Með henni séu byggingaverktakar að
leika sér að heilsu fólks fyrir stundargróða. „Enginn
burðarþolshönnuður myndi velja lausn í von og óvon
um hvort hún dugi eða ekki. Slíkir hönnuðir yrðu
strax sviptir starfsleyfi. En byggingaraðilar hika ekki
við að velja lausnir sem líklegar eru til að kalla fram
alvarlegt heilsutjón hjá grunlausum íbúum þessara
húsa,“ segir Ríkharður.
Undanfarin ár hefur verið lítið um óháðar rann-
sóknir í byggingariðnaðinum. Áður rannsakaði
steinsteypunefnd Rannsóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins íslensk hús. Sú stofnun rann síðar inn
í Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem sinnir aðallega
nýsköpun og fær takmarkað fjármagn til þess að
sinna rannsóknum í byggingariðnaði.
Ríkharður segist ekki geta sagt til um hversu stórt
vandamálið sé. Án rannsókna fáist umfang vandans ekki
staðfest og því sé ekki hægt að bregðast við. „Það er löngu
tímabært að opinberir aðilar fylgist betur með byggingar-
iðnaðinum, setji af stað víðtæka rannsókn og dragi ályktanir
með sérfræðingum,“ segir Ríkharður. Hann leggur til að á
meðan verði bannað að byggja hús sem séu einangruð á fyrr-
greindan hátt.
„Það er lögbrot og varðar fangelsi eða sektum að hanna
ríkharður hefur Varað Við byggingaraðferðinni í mörg ár
Byggingaverkfræðingurinn Ríkharður Kristjánsson
hefur langan starfsreynslu í byggingageiranum.
meðal verkefna Ríkharðs má nefna að við lok
sjöunda áratugarins var hann í steinsteypunefnd
sem sá um að útrýma alkalískemmdum. Ríkharður
var hönnunarstjóri Hörpu og verkefnastjóri gler-
hjúpsins. Árið 2012 var hann sviðstjóri Íslenskra
aðalverktaka, þegar húsþök voru rifin af heilu
hverfunum á austurlandi vegna myglu. Í dag er
Ríkharður starfandi verkfræðingur í verkfræði- og
ráðgjafarfyrir tækinu EFLu.
dr. ríkharður kristjánsson
Hefur varað við að ákveðin
byggingaraðferð tefli heilsu
fólks í hættu.