Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 3

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 3
Skopstjórinn á ítalska farþegaskipinu „Andrea Doria“, Piero Calamai, stendur á stjórnpalli. Nóttin er dirnrn og þoka grúf- ir yfir liafinu. Calamai skipstjóri hefur staðið á stjórnpalli sjö stundir samfleytt, utan einar tuttugu mínútur, er hann 'hafði skipti á hvíta einkennisbúningnum sínum fyrir dökkbláan, hlýrri húning. Hann veit, að hann muni ckki yfirgefa stjórnpallinn í nótt. Hann hefur látið færa sér kvöldverðinn inn í kortaklefann. \'ið og \ið berst óinur upp á brúna frá hljómsveitinni, sem er að leika á neðri þiljnm. Örfáir farþeganna ern gengnir til náða. Allstaðar er kamparín á borðum. Kvikmyndasalurinn er fullsetinn. í hinum glæsilegu viðhafnarsölum og á dansgólfinu er giaumur og gieði. Á morgun verður komið til New York, borgar nýja heimsins. Þokulúðúrinn glymur út f .nóttina með jöfnu millibili. „Eg lield,“ sagði Franchini fyrsti stýri- maður, ,,að farþegarnir séu ekki allskostar ánægðir með öskrið í þokulúðrinum. ,,Jæja,“ ég get ekkert við því gert,“ s\araði Calamai skipstjóri. ,,\rið verðum að hugsa um sjómennina á litlu fleytunum sínum. Það er mikið af þeim kring um Nantucket. Jú, við getum vikið fyrir þeim. Við sjáum þá reyndar í radarskerminum. F.n fjandakorni ég treysti því, að einhver þeirra komi ekki þvert fyrir stefnið hjá okkur á síðustu stundu.“ Calami skipstjóri gengur að radarskerm- inum, jiar sem stýrimaður sá stendur, sem er á vakt. „Hvaða fjarlægð er stillt á núna?“ „Tuttugu sjómílur sem stendur.“ Skipstjóri horfir hugsandi á smáblett, sem sést á radarskerminum og fer burt á 25 gráður. „Gæti verið fiskibátur," sagði stýrimaður’ Vísifingurinn rennur yfir skerminn. Fjar- lægðarhringirnir tákna hver hálfa sjómílu. Gráðurnar eru merktar inn á skífurend- urnar. Skipstjórinn gengur aftur inn í brúna. Hann veit, að liér í nánd við Nantucket getur varla verið um að ræða, að önnur skip en fiskibátar sigli gangstæða stefnu við Andrea Doria. Skip á leið til Evrópu eiga, samkvæmt fyrirskipun, að sigla tíu mílum sunnar. Þetta gæti líka ef til vill \erið olíuskip. F.n jrá er það líka mjög hægfara. Calamai starir hugsandi út í þokuna. Hann getur ekki gert sér grein fyrir jiví, af hverju liann er einmitt í dag að hugsa um löngu liðna tíma. Honum verður hugsað til styrjaldaráranna, en Jrá hafði honum heppnazt að koma sundurskotnu skipi sínu í höfn, sem fáir hefðu leikið eftir honum. Þá gengur liann inn í stýrisklefann. Skipið er búið sjálfstýringu. Hver stefnu- breyting er merkt sjálfkrafa með stefnu- rita inn á pappírsræmur. Hérna inni finn- ur maður ekki gustinn, sem orsakast af hraða skipsins. Calamai stendur fyrir fram- an stýrisklefann og horfir inn um glugg- ann. Ósjálfrátt verður honum hugsað til l'yrsta skipsins síns, er liann hóf sjómanns- feril sinn sem fjórði stýrimaður. Þá var enginn vélsími, sjálfstýring og magnet- kompás. Allt þetta hefur Andrea Doria. Snúningsvísir, stýrisvísir, skiptisími, reyk- boði, sjálfstýring og mörg fleiri nýtízku tæki. En mikilvægastur er radarinn. Hann er einskonar auga, sem sér ekki aðeins hvert

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.