Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 5

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Qupperneq 5
Nýtt S. O. S. 5 hann liafði lokið skýrslu sinni. Stýrimaðurinn sýnir skipstjóra stöðuna á radarskerminum. „Hefur Andrea Doria gefið þokumerki?“ „Já, oft. En engin merki um, að hún muni víkja!“ „Hver er hraðinn nú?“ „Tuttugu og einn hnútur.“ ‘ „Hvenær sáuð þér „Doria“ fyrst í rad- arnum?" „í sautján sjómílna fjarlægð. Fjarlægðar- mælisvæðið var stillt á 20 sjómílur.“ Carsten-Johannsen bendir á sjókortið. „Doria var fjórar gráður á stjórnborða, þegar fjarlægðin var átta mílur.“ Nordensen skipstjóri horfir á sjókortið. „Þcr hafið haldið þremur sjómílum norðar, en ég skipaði fyrir í kvöld. At- hugið bókina, þar sem stefnan er fyrir- skipuð!“ Carstens-Johannsen þegir. Skipstjóran- um verður ekki þokað. Hann hélt, að betra væri, að þeir væru meira að segja einní sjómílu norðar enn!“ Og tíminn líður. * Klukkan er 23,10. „Hvað er að frétta af Stockholm?“ spyr Calamai skipstjóri í þriðja sinn. „Hefur hann ekki enn skýrt frá, hvaða stefnu hann ætlar að halda?“ „Nei. Engin tilkynning,“ ei svarað. „Endurtakið loftskeytið!“ skipar Cala- mai. „Segið, að við munum breyta stefn- unni.“ „Stockholm siglir enn sömu stefnu," tiT kynnir sá, er gætir radarins. „Ef þeir \áldu nú gefa stefnumerki með þokulúðrinum,“ sagði Franchini. „Þoku- lúðurinn þeirra þegir alltaf.“ „Sigluljós framundan eitt strik á stjórn- borða!“ kallar háseti, er var á vakt á brú- arvængnum. Skipstjórinn hleypur upp í brúna. Stockholm er nú um það bil tvær sjó- inílur frá Andrea Doria. „Hann snýr á bakborða,“ segir Franch- ini, er hafði gripið sjónaukann. Þokan verður myrkari. Nú sjást aðeins ljósin á framsiglunni. „Ef Stockholm víkur til norðurs, meg- um við ekki gera það líka,“ sagði Calami skipstjóri. „Við megum sem sagt ekki víkja á stjórnborða eins og siglingaregiur mæla fyrir um. Þá komumst við ekki fram hjá skipinu." Calamai reiknar í ákafa. Niðurstaðan verður, að ef hann víkur hart á stjórn- borða, verður þvermál snúningshrings- ins 2200 metrar miðað \ ið 19 hnúta hraða. Ef hinsvegar væri \ ikið á 16 hnúta hraða yrði þvermál hringsins 1730 metrar. Þar sem Stockholm er nokkuð til hægri við Andrea Doria, nnindi hið síðarnefnda ekki komast framhjá Stockholm, ef beygt vaæi hart á stjórnborða. í næturmyrkri og þoku verða allir útreikningar oft óná- kværnir. En ljóst er, að hann verður að víkja til vinstri. „Hart á bakborða!“ skipar Calamai skipstjóri. Skipunin er framkvæmd í einu vet- fangi. Stýrisvélin er sett í gang. Samstund- is er send skipun í vélarrúmið: „Fulla ferð áfram!“ „Ef við víkjum á bakborða með ýtrasta afli, komumst við enn fram hjá Stock- holm,“ sagði Calamai skipstjóri. „Svo fram- arlega sem hann heldur núverandi stefnu." Franchini og hinir stýrimennirnir eru á sama máli. Skipið leggst hart á stjórnborðssíðu og réttir sig svo aftur. „Rautt ljós framundan!“ kallar einn skipverjanna í brúnni.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.