Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 6

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 6
6 Nýtt S. O. S. Calamai skipstjóri hleypur út á brúar- vænginn. Hann trúir ekki sínum eigin augum. Stockholm hefur beygt á stjórn- borðshlið. Nú gerir liann það, sem hann átti að vera búinn að gera fyrir hálfri stundu. En ástæðan er sú, að Nordensen skipstjóri hélt, að Andrea Doria mundi víkja til stjórnborðs en ekki bakborðs. ,,Skip stefnir á okkur á 65 gráða horni," er nú tilkynnt. „Eru sklrúmin lokuð?“ spyr Calamai skipstjóri. Franchini lítur á vegginn, þar sem skil- rúmin eru merkt með rauðu ljósi. „Jú, öll skilrúmin eru lokuð.“ Á Stockholm hafa menn líka séð hina hræðileg’u hættu á næsta leiti. Skipun er send niður í vélarrúm: „Fulla ferð á- fram!“ F.f til vill heppnast Andrea Doria að beygja fyrir stefni Stockholms á síðustu stundu. Á Stockholm sjá menn aðeins græna ljósið á Andrea Doria. Nú mun þetta risahafskip sýna Stockholm breiðsíðuna. díf tii vill sleppur Doria lieil úr hættunni? Ef til vill------- Vélar skipsins vinna af ítrasta afli ti! þess að komizt verði hjá árekstri. En Stockholm færist líka nær. Það líð ur alltof langur tími þaugað til svo stór skip geta dregið verulega úr hraðanum. * Klukkan 23,20. Það er nótt og bjöllur glymja. Auk þess hljómar merkjalúður- inn. Nú kemur glóandi, rautt auga út úr þokunni. Og grænt líka-------- „Góður guð hjálpi okkur!“ stynur ein- hver. „Þeir stéfna beint á okkur. Tvö augu ----“ Enn ein skipun. Síðasta skipunin, en nú er allt um seinan: „Stýri lrart á bakborða!“ „Liggur við bakborð!“ Ut úr móðu næturinnar kemur heljar- bákn, rautt, draugalegt ljósið bregður leiftri á nokkra menn á stjórnpalli. Það er eins og ógnandi auga, verður stærra og ægilegra ——. „Fulla ferð afturábak!“ „Fulla l'erð afturábak!“ En á samri stundu rennur ísbrjóts- stefni Stockholms inn í síðuna á Andrea Doria. Stálplöturnar bresta, dimmt brot- hljóð frá skipshliðinni. Niðri í skipinu Iieyrist mikill hávaði. Andrea Doria leggst þungt á bakborða, knúin ógurlegu höggi. „Látið vélarnar ganga áfram með íullum krafti®“ hrópar einlrver á stjórn- pal 1 i Andrea Doria til StoCkholms-manna. '„I.osið ykkur ekki frá okkur fyrr en við höfum bátana tilbúna!“ Þetta hefði getað hindrað sívaxandi hlið- arhalla Andrea Doria, sem veldur því, að ekki er unnt að koma helmingnum af bátunum á flot. En vélar Stockliolms liöfðu þegar verið settar fulla ferð afturábak. Með braki og brestum losnar skipið frá átján metra breiðri rifunni, sem það hafði sett í byrð- ing Andrea Doria. Andrea Doria réttir sig í svip, ruggar tvisvar til beggja liliða, en leggst svo á hægri hlið og liggur þar kyrr. „Eigum við að gefa aðvörunarmerki?“ spyr fyrsti stýrimaður skipstjórann. „Nei, ekkert uppþot óttasleginna far- þega. Andrea Doria sekkur ekki fyrr en að mörgum klukkustundum liðnum. En látið loftskeytamanninn senda út S O S. Gefið honum upp nákvæma stöðu skips- ins!“ „C Æ D,“ sendir skipið. „Come quick- ly, danger! Komið fljótt til hjálpar, liætta!“

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.