Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Side 8

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Side 8
8 Nýtt S. O. S. Kl. 23,jo. Nokkrar tilkynningar hata borizt. Strandvarnaliðið tilkynnir: „Níu skip nálgast slysstaðinn. „Cap Ann“ er nú í átta sjómílna fjarlægð.“ Calamai skipstjóri talar við yfirvélstjóra í síma. „Á að tilkynna farþegunum, að skipið sé að sökkva?“ spyr fyrsti stýrimaður. Calamai hristir höfuðið. „Nei. Yfirvét- stjóri segir, að dælurnar hafi meira en undan. Skipið mun iialdast ofafisjávar nokkrar klukkustundir enn. Við skulum ekki valda uppþoti að ástæðulausu. Þegar björgunarbátar frá öðrum skipum leggja að skipshliðinni, tilkynnum við í hátalara skipsins, að farþegar skuli fara í bátana." Þokunni léttir. Fölum bjarma tungls- ins slær á bæði skipin, annað dauðada'tnt. hitt ilta útleikið. * 26. júli, kl. 0,20. Stockholm sendir loft- skeyti: Höfum orðið fyrir miktum skemmd um. Stafn allur brotinn. I. lest full af sjó. Hjálp nauðsynleg.“ „Lítur illa út lijá þeim hinum megin?“ segir einn liásetanna í brúnni við félaga sinn. Kl. 0,22. Annar loftskeytamaður gengur til skipstjórans. „Rétt núna var að berast skeyti frá Stockliolm: Til Andrea Doria: Setjið út báta ykkar. Við geturn tekið á móti þeim.“ Calamai skipstjóri skrifar á loftskeyta- eyðublaðið: „Höfum of mikinn liliðar- lialla. Getum ekki komið bátunum á flot! Gjörið svo vel að senda björguriarbáta til okkar tafarlaust!“ „Sendið þetta þegar í stað!“ skipar hann loftskeytamanninum. Kl. 0,38. Gufuskipið „Cap Ann“ til Andrea Doria: Erum að nálgast slysstað- inn. Björgunarbátar tilbúnir. Höfum tvo báta.“ Skömmu síðar kemur skeyti frá franska risaskipinu „Ile de France“: „Erum á leið ti! ykkar með fyllsta hraða. Komum um kl. 1,45.“ Um alla ganga á Andrea Doria eru menn á harðahlaupum. Óttasleginn og æstur farþegi inópar há- stöfum: „Við sökkvum eftir tíu mínútur!" „Þvaður!“ segir einn þjónanna og réttir konu sundbeltið sitt. „Skipið getur hald- izt á floti margar klukkustundir." „Það er alveg sama! Titanic var þrjár klukkustundir ofansjávar, þó létu yfir þús- und manns lífið!“ hrópaði annar. Á bátaþilfarinu eru nú þrír björgunar- bátar tilbúnir. Farþegar taka að flykkjast þangað. „Konur og börn fyrst!“ hrópar stýri- 'maðurinn. Nokkrir menn reyna að komast upp í bát, þar sem áhöfnin er reiðubúin við blakkirnar. „Farið frá!“ kallar fyrirliðinn. „Þetta er minn bátur!" hrópar gamall maður.

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.