Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 16

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 16
16 Nýtt S. O. S. og vermouth. Æðruleysi hans er engin uppgerð. Soncini hefur ekki verið bar- þjónn alla ævina. í styrjöldinni var liann á beitiskipinu ,,Pola“, sem var sökkt. Hann var á tnndurspillinum „Attendole“, er einnig var sökkt, og seinna á tundur- spillinum „Bande Nere“, er einnig var sökkt, en menn björguðust. Soncini verður litið á hljóðfærin, sem hafa runnið í lirúgu út að vegg vegna hallans, brotin og brömluð. Aldrei fram- ar mun hljómsveitarstjórinn okkar, hann Mazzoni, standa hnarreistur á palli og stjórna sinni stóru hljómsveit, hugsar bar- þjónninn. Þá skorðar hann sig upp við barborðið, smeygir sér úr hvíta smókingn- um sínum, klæðist hlýjum jakka, bindur klút um hálsinn og setur húfu á höfuðið. „Get ég kannske hjálpað yður?“ spyr hann hina fögru dansmey, Agnese Bar- ata við Mailander Scala, er leiddi móður sína, sjötíu og sex. ára að aldri upp á Jrilj- ur. Það er talsverðum erfiðleikum bund- ið að koma konunni yfir skáhallt Jrilfarið að stiganum. Soncini hjálpar báðum kon- unum. Miðskips er Andrea Doria nú aðeins fjóra metra upp úr sjó. „Við verðum að láta móður yðar renna niður í bátinn,“ sagði Soncini. „Nei, við bíðum unz Jrilfarið er jafn- hátt björgunarbátnum,“ svaraði ungfrú Barata. Soncini snýr sér þá að því, að hjálpa konu, sem er að reyna að koma manni sínurn í bát, en hann er veikur. Það gekk yel að koma manninum niður í bátinn, enda Jxrtt hann væri bundinn niður í stól. Nokkru seinna kemur Soncini þar, sem hann hafði hitt dansmeyna og móður henn ar. Þau eru horfin. Agnese Barata og gamla konan eru hvergi sjáanlegar Nöfn þeirra fundust síðar á lista yfir hina látnu. — Soncini bjargaði syni leikkonunnar Ruth Ramon, Dickie litla. Svo fór hann frá borði með síðasta bátnum, jafn rólegur og hann hafði á sínurn tíma yfirgefið sökkvandi herskipin „Pola" og „Bande Nere“. * Kl. 3,28. Á stjórnpalli Ile de France, sem er eitt stærsta farþegaskip Frakka; 43,450 brúttólestir, stendur skipherrann, Raoul de Beaudéan. Vélsíminn glymur án afláts. Það er ekki eins auðvelt og ætla mætti, fyrir slíkt risaskip, að lialda sig alltaf í sönni fjarlægð frá Andrea Doria. Auk þess liggur Cap Ann mjög nálægt, svo og Stockholm, sem lætur illa að stjórn eins og nú er komið. Vindar og straumar gera sitt til, að erfitt er, að halda svona stórum skipum í horfi. Ile de France nálgast Andrea Doria til Jress að björgunarbátarnir Jjurfi ekki að fara óþarflega langa leið. í eldhúsum Ile de France eru nú fram- leiddir nokkrir hektólítrar af svörtu kaffi, til Jjess að geta gefið skipbrotsfólkinu eitthvað heitt að drekka. Michel Delafon, yfirlæknir á Ile de France, hefur með hjálþ nokkurra skipverja og tveggja hjúkrunar- k\ enna, komið upp bráðabirgðasjúkraskýli. Fólk, sem hefur fengið taugaáfall, húð- skrámur, högg og sár verður að komast sem fyrst undir læknishendur. Hundruð teppa eru tekin í notkun, Jrví flestir, sem bjargazt hafa eru annað tveggja, gegn- votir eða klæðalitlir. Margir koma í sund- urtættum samkvæmisklæðnaði eða á nátt- fötum einum og börn undantekningarlít- ið í þunnum náttkjólum. Tíu björgunarbátar frá Ile de France eru í stöðugum flutningum milli skipanna, undir stjórn stýrimanna og vélstjóra. Risahá rís skipshlið Ile de France yfir

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.