Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 22

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 22
22 Nýtt S. O. S. um fram á ásanit hjálparmönnum. Þeir gera klárt til að hægt sé að festa dráttar- taugar í skipið, ef með þarf. „Ecco, þarna koma þeir,“ segir einn mannanna á brúnni og bendir í vestur. „Dráttarskipin----“ Þessi litlu en kraftmiklu skip færast nær. Klukkan er farin að ganga átta um morguninn, þegar skipin eru loks komin að Andrea Doria. Skipstjórarnir á drátt- arskipunum sjá mikla vatnsbunu streyma út úr bakborðssíðu Andrea Doria. „Þeir virðast dæla enn af fullum krafti,“ sagði Mc Connor, er var einn yfirmann- anna. „Kannske komum við kláfnum til Nantucket-eyju áður en hann sekkur. * Nú ber það til tíðinda á Stockholm eða öllu heldur yfir skipinu, að kopti stefnir að skipinu og hnitar yfir því liringi. Það gengur illa að láta koptann nema stað- ar beint yfir skipinu, því dagmálagolan Iirekur hann jafnan frá því. Stockliolm lætur illa að stjórn, sem von er, þar sem framskipið er eins og brotin sardínudós. Loks kasta koptamenn niður kaðli og í enda hans er bundið hengirúm. ' Nú kemur skipslæknirinn upp á þilfar. H<)fuð barnsins er allt reifað sáraumbúð- um. Læknirinn og hjúkrunarkonan sveipa barnið í teppi og leggja púða varlega um höfuð þess. Augu barnsins horfa biðjandi á lækninn; [)au lýsa hryggð og ótta. „Flugmaðurinn góði flytur þig til mömmu á sjúkraltúsið,“- sagði læknirinn í huggunarrómi. „Hún mamma þín bíð- ur eftir þér.“ Hjúkrunarkonan þýðir orð læknisins á nokkur tungumál. Svo er barnið bundið fast niður í hengi- rúmið. Tugir manna veifa og hrópa samtímis. Flugmaðurinn á koptanum hefur tekið eftir merkinu. Þá er rúmið dregið upp; koptinn fer þráðbeint upp til að byrja með. „Norrna fer í himininn,“ segir barn, sem stóð út við borðstokkinn, og starir á eft- ir flugvélinni. Barnið veit ekki, hversu mikill sannleikur er fólginn í orðurn þess. Norma litla dó í sjúkrahúsi í Boston, án þess að þekkja löreldra sína, er höfðu bjargazt. Norma litla var ekki sú einasta, er koptarnir sóttu. Um kl. 8,32 varð Stock- holm að nema staðar í annað sinn. Tveir koptar svifu yfir afturlyftingunni. Fimm menn, illa slasaðir, voru bornir upp á þil- farið og lagðir í hengirúmin, er koptarnir drógu svo varlega upp. Að því loknu tóku þeir stefnu á Nantucket-eyju. Tveir þeirra, er koptarnir sóttu, dóu í sjúkrahúsinu í Nantucket. Þrír komust til fullrar heilsu. Flugmaðurinn sá lík reka á sjónum. * Kl. 9,02. Nú heyrast þungar drunur niðri í Andrea Doria. Öðru hvoru heyr- ast bung högg, eins og barið sé í skips- síðuna með þungum hömrum. „Það er farmurinn!“ segir einn mann- anna í brúnni. Þeir finna, að gólfið riðar undir fótum þeirra. Andrea Doria sígur enn meira á stjórnborða, en réttir sig aftur Iítið eitt. „Hliðarhallinn er sextíu og átta gráð- ur,“ tilkynnir einhver, sem er við stjórn- tækin. Calamai skipstjóri veit, að nú muni hið versta ske. Honum verður litið til aftur- lyftingar skipsins. Fáninn blaktir við luin, eins og venjulega. Hann blaktir léttilega í vestangolunni, rétt eins og ekkert hafi skeð. Annar dráttarbáturinn fer nú mjög ná- lægt Andrea Doria.

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.