Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 24

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 24
24 Nýtt S. O. S. — stjórinn og nokkrir yfirmenn aðrir, er reyndu til síðustu stundar að bjarga skip- inu, eru farnir frá borði. Aðeins aftur- hluti skipsins er enn upp úr sjó.“ En Andrea Doria sekkur ekki enn, aft- urlyftingin rís iiærra. Hinar voldugu skips- skrúfur lyftast upp úr sjó. Mönnum gæti dottið í hug ægilegt sæskrímsli, sem veif- ar skottinu. Svo leggst Andrea Doria al- veg á hliðina. Ailt í einu sjást mikil boða- föli. Sjórinn streymir í firnamikið gin reykháfsins. Útiiafið lykst yfir þetta glæsilega skip, er örlögin léku svo grátt. Hringiða mynd- ast, bylgjur og boðaföll; svo sléttir hafið yfir hina votu gröf. F.n þó sér enn á lremra siglutoppinn, sem rís skáhallt upp úr sjónum, bara nokkra metra. Svo hverfur hann líka í djúpið. Toppljósið í siglutrénu var í sam- bandi við neyðarraihlöðu. Síðasta ijós Andrea Doria lýsir enn niðri í djúpið, Mýsir leiðina í dauðann eins og ljós á leg- steni. Kl. 10,10. Andrea Doria marar í kafi, vegna þess að enn er í henni samanjrjapp- að ioft, en bara nokkrar mínútur. Svo veltur botninn upp, hægt og hægt, þetta volduga bákn er í dauðateygjum. Áhrifin af þessari sjón eru svo sterk, svo yfirjryrm- :andi, að skipverjarnir á dráttarbátunum segjast aldrei hafa lifað áhrifaríkari stund. 'Hafa þeir þó séð mörg skip farast í styrj- öldinni —. Þá er öllu lokið. Yfir eyðilegu sjónarsviðinu vagga björgunarbátarnir, þeir sem flutu uppi af Andrea Doria. Dráttarbátarnir safna þeim saman. Og enn ríkir óttinn í hjörtum margra, sem enn vita ekki, liver Iiafa orðið örlög ástvina þeirra. Kl. 10,12. Loftskeyti frá strandgæzlu- skipi til strandgæzluliðsins: „Andrea Doria er sokkin. Skipstjóranum bjargað síðast við tíunda mann. * Loftskeyti frá Ile de France: „Læggj- umst að skipakví Compagnie Générale Transatlantique í New York kl. 17. Vænt- um jæss, að séð verði um, að skipbrots- fólkið geti farið af skipsfjöl tafarlaust. Verðum að láta úr höfn eftir tvær stund- ir vegna áætlunar okkar til Cherbourg. Hpfum bjargað 753 rnanns, 576 farþeg- um og 177 skipverjum. Commandant de Beaudéan." Því meir sem Ile de France nálgast ströndina, því fleiri verða flugvélarnar sem hringsóla yfir Jressu stóra úthafsskipi. Tugir kopta með blaðaljósmyndara sveima kringum skipið og yfir því og J>að er myndað frá öllum hliðum. En Jregar skipið nálgast höfnina í New York korna lögregluflugvélar á vettvang og halda flugvélum blaðamannanna í hæfi- legri fjarlægð. ÖII skip, sem mæta Ile de France heilsa með skerandi eimpípu- blæstri og auðvitað verður að svara að sjó- mannasið. Taugar skipbrotsmanna verða yfirspenntar af öllum þessum hávaða, flug- vélaclyn og öskri þokulúðranna. Sumir fara nú að gráta, óstöðvandi gráti. Hávað- inn magnast um allan helming ,er Ile de France nálgast hafnarbakkann. Átta litlir dráttarbátar ýmist draga eða ýta Ile de France að hafnarbakkanum. Blossar myndavélanna glampa í sífellu í augum skipbrotsfólksins, er Jrað gengur á land í New York. Blaðaljósmyndarar hafa lagt undir sig þök næstu bygginga og taka þaðan sjónvarps- og fréttamyndir. Aðgangur að hafnarbakkanum, þar sem Ile de France liggur, er bannaður. Fyrir utan bíður löng röð bíla. Það eru ekki lúxusbílar eins og venjulega bíða

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.