Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 26

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 26
26 Nvtt b. (). S. * Meðan útgerðarfélögin annarsvegar og tryggingarfélögin hins vegar deila um tugmilljóna upphæðir og stórblöð heims- ins birta langar frásagriir svo að segja dag og nótt, beinist hugur ungra ævintýra- manna að flaki Andrea Doria, eins og mölflugur sækja í Ijósið. Köfuri og leit að verðmætum í skips- báknum, sem liggja á hafsbotni, er orðin uppáhaldsíþrótt þúsunda ungra manna, jafnvel tugþúsunda. Á stóru svæði með- fram ströndinni verður varla þverfótað fyr- ir ungum mönnum með kafarahjálma, súrefnistæki, kvikmyndavélar og ýmiskon- ar tæki önnur; allir ætla þeir að freista gæfunnar. Sjóbaðstaðirnir og gistihúsin við ströndina eru yfirfull af mönnurn, er ástunda þetta nýja sport. Nokrkir ungir menn eyða sumarleyf- inu á Nantucket-eyju, þeirra á rneðal eru Peter Gimbel og frú hans, Joseph Fox og Mc Keon blaðamaður. Sú staðreynd, að einar 45 sjómílur frá ströndinni liggur risaskipið Andrea Doria á Iiafsbotni, svipt- ir þá allri ró. Þeir bregða við skjótt, leigja sér fiskiskútuna „Waleth“, flytja nauðsyn- legan útbúnað um borð og svo er haldið af stað á slysstaðinn. Gult dufl vaggar á bárunum yfir legstað Andrea Doria. Fiskibáturinn veltur á undiröldunni. „Sem sagt, hérna liggur hún,“ tók Fox til máls. „Því er verr, að hérna úti á hafi <er ekki hægt að setja legstein á „gröfina". Þá mætti letra á hann svöhljóðandi graf- skrift: „Fórst á áttugustu og níundu ferð sinni yfir Atlantshafið, 26. júlí 1956, klukkan 9,30!“ „Vinur minn einn, sagði Mc Keon, „var farþegi á Andrea Doria í fyrstu ferð henn- ar. Þá sigldi skipið ekki til Ameríku, held- ur var þetta skemmtiferð til Kanaríeyja. Áhrifamenn frá mörgurn löndum heims voru boðnir í þessa för svo og blaðamenn. Á heimleiðinni var haldið grímuball. Sú gríma, er þótti bezt gerð, hlaut verðlaun. Sá, sem bar hana kallaði sig „skipbrots- mann“. Þetta var stúdent, klæddur rifn- um náttkjól en yfir kjólnum var hann í sundvesti, er bar áskriftina: Andrea Doria. Marga farþegana hi'yllti við þessu smekk- leysi, en þrátt fyrir það féll úrskurður dóm- nefndarinnar á þennan hátt.“ Kona Peters Gimbel hengir á hann bak- töskuna með súrefnisgeyminum. Þá dregur liann kafarahjálminn yfir höfnðið. Fox félagi hanslgerir slíkt hið sama. Nokkrum mínútum síðar stökkva ungu mennirnir báðir í hafið. Þeir kafa niður með blöðkunum á frosk búninguinum og anda með iöfnum, djúp- um sogum. Súrefnisflöskurnar þeirra eru í bezta lagi. Gúmfötin veita líkamanum festu og verja hann kulda. Það líður ekki á löngu unz þeir finna yfirbyggingu Ardrea Doria undir fóturn sér. Skipsflak- ið gnæfir 20—30 nretra upp frá hafsbotni, svo r.ð þeir félagar þurfa ekki að kafa nema 45 metra niður. Fox k\eikir á rafmagnsljóskastaranum. Risastór marglitta klessist upp að honum eins og þykkt slím. Honum tekst að ýta ófögnuðinum af sér með báðum höndum. * Kafararnir koma niður á bakborðssíðu flaksins og þeir fara inn á skemmtigöngu- þilfarið. Andrea Doria liggur ekki myrkri hulin á hafsbotni. Grænleitnm bjarma slær á snjóhvíta yfirbygginguna og hann lýsir upp viðhafnarsali og skemmtigöngu- þilfarið. Það er eins og þetta risaskip hvíli í grænni líkkistu, því sjórinn er næstum gegnsær. Dauðakyrrð grúfir nú yfir Andrea Dor-

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.