Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 30

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Blaðsíða 30
Nýtt S. O. S. :)u í honum var, því nú lagði hinn báturinn inn í ólguna. Hann var skipaður jafnmörg- um mönnum og sá fyrri. Honum lieppn- aðist lendingin einnig slysalaust, fékk þó allstóran sjó á leiðinni og stórsjó um leið og hann kenndi grunns. Sumir mennirnir misstu fóta, er þeir ætluðu að hlaupa upp úr bátnum, en margar hendur voru við- búnar til hjálpar. En þótt löðrið væri djúpt og útsogið æði þungt, komust allir ómeiddir upp í fjöruna. En mjög voru allir blautip og sumir dasaðir. Þegar allir þessir menn voru komnir á þurrt land, kom sá, ,er stýrði fyrri bátn- um og kynnti sig sem kaptein, og lét í ljós fögnuð sinn yfir því, að allir menn hans voru þannig kornnir slysalaust á land, og allir voru þessir útlendu nienn með auðsjáanlegu gleðibragði yfir þvi að liafa fast land undir fótum. Og sönn var ánægja okkar íslending- anna og gleði yfir, að svona giftusamlega tókst þessi mjög tvísýna landtaka þessara sjómanna. Næst var gengið að því að taka úr bát- unum, það sem í þeim var. Þar voru tösk- ur og vatnsheldir pokar, sem höfðu að geyma nokkuð af fatnaði. Hafði sjór ekki gengið svo mjög í þetta, svo að strand- mennirnir gátu að einhverju leyti farið í þurr föt. Öllu var hraðað sem mest. Það var geng- ið frá farangri og bátssegl breitt yfir og fljótt lagt at' stað til bæja, en það var all- löng leið, tveggja til þriggja stunda ferð og dagur að kvöldi kominn. Aðeins einn hestur vár með í förinni og voru strandmenn látnir hvíla sig á honum til skipta. Þeim hitnaði vel af göngunni og \'oru furðu hressir. Nokkuð gátum við talað saman, enda þótt enginn væri lærður á annars mál. Eerðin gekk vel, enda var gangfæri gott og veður ennþá sæmilegt. Farin var bein- j Nýtt S O S / Áður útkomið á þessu ári 8 hefti. Aðalefni þeirr er: i i. hefti: KAUPSKIP SIGLIR NEÐANSJÁVAR 'j 2. hefti: í RÍKI DAUÐANS ) 3. hefti: OLÍUSKIP í BJÖRTU BÁLI 1 4. hefti: „CATFISH“-ÁRÁSIN. 7 5. hefti: NORÐURSJÓR - GRÖF SKIPANNA J 6. hefti: SKIPTAPI í SÚEZSKURÐI 7. hefti: RAWALPINDI SÖKKT J 8. hefti: VONLAUS BARÁTTA í 9. hefti: UPPREISN UM BORÐ. Utanáskriftin er: „Nýtt S O S“ Pósthólf 195, Vestmannaeyjum.

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.