Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 32

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Síða 32
32 Nýtt S. O. S. lans þverá var orðin að beljandi, straum- hörðu fljóti. Straumurinn hafði grafið undan brúarstólpununi og brúin hrunið. Ghandi ók lestinni eins langt eftir upp- fyllingunni og hægt var. Þar var vegurinn um hálfan metra upp úr flóðinu. Soga fór aftur inn í kyndaraplássið. Hann og lestar- stjórinn báru saman ráð sín. Snúa við til Cuttack! Það var ekki hægt að svo stöddu, því nóttin var að skella á. Það hefði verið allt of mikil áhætta, að leggja út í um- flotna brautarkaflann undir nóttina. Þá var betra að bíða næsta dags á þurru! Tíminn leið; það var myrkt af nóttu. í illa lýstri eimlestinni heyrðist ekkert utan fivjesið í gufunni, er hún var tekin af, og regnið, sem buldi á lestinni. Skyndilega heyrðist einkennilegt þrusk. Lestarstjórinn hlustaði með athygli. Þetta hljóð gat ekki komið frá vélinni. Þetta ein- kennilega hvæs gat ekki stafað frá litblæstri gufunnar! Ghandi leit nákvæmlega eftir öllum tækjum. Ekkert óvenjulegt var að sjá. Hann tendraði hliðarljós lestarinnar og beygði sig út tir lestinni og horfði rann- sakandi niður. Allt í einu urðu atigu hans stjörf af skelfingu. í járnstiganum, sem lá upp í vagninn, sá liann kobraslöngu með uppspertum haus og gapandi, Iivæsandi gini. Hann hörfaði til baka í ofboði og skellti járn- hurðinni í lás. ,,Kobraslanga!“ lirópaði hann. Hann greip skörung mikinn, stakk honum tit um gluggann og reyndi að lirekja sHinguna nið- ur úr stiganum. Það heppnaðist, er hann hafði greitt óvættinuin nokkur högg. Kyndarinn kom honum til lijálpar. Hann þreif ljtisker af • einum króknum. Hann lýsti gaumgæfilega út fyrir lestina. Blóðið storknaði í æðum þeirra við þá sjón, er nú blasti við þeim! Uppfyllingin, er þeir næmdust á, var bókstaflega þakin slöngum! Þær voru þar hundruðum sarnan, af öll- um stærðum og gerðum. Þær höfðu flúið hingað undan flóðinu, því hér var eini þurri bletturinn á stóru svæði. I dauðans skelfingu börðust þær nú um hvern þurr- an blett. Þær undu sig hver utan um aðra og reyndu að skríða upp eftir lestinni. Þær voru í hópum á þrépum og Stöngum. Við- bjóðslegt samsafn hræddra, hvæsandi skrið- rýra, sem höfðu þá einu hugsun að forða sér undan þessu ægilega vatnsflóði. HRYLLILEGUR DAUÐDAGI BLASTI VIÐ. Náfölir af skelfingu ltorfðu þeir félag- ar hvor á annan. „Eg held, að við ættum að færa lestina ofaní vatnið aftur, svo slöngurnar verði að lirekjast í burtu,“ sagði iestarstjórinn crir nokkra þögn. „En annarhvor okkar verður að fara eftir t'agnþökunum og að- vara farþegana. Þeir verða að loka öllum gluggum og dyrum.“ „Eg skal fara,“ sagði kyndarinn. Hann steig upp á kolavagninn og hélt svo áfram eftir vagnaröðinni. Lestarstjórinn lieyrði. að kyndarinn barði þung högg á vagnþök- in og hrópaði viðvörunarorð til farþeg- anna. F.ftir stundarkorn kom kyndarinn aftur í stjórnklefann, holdvotur og þreytt- ur. Vonandi gengur allt vel, liugsaði lestar- stjórinn. Hann setti í gang og lestin þok- aðist til baka, metra eftir metra. Slöngurtv ar áttu að fá ráðrúm til að yfirgefa lestina. Lestin lagði út í vatnið og það dýpkaði á Jtenni jafnt og þétt. Slöngurnar skynjuðu hættuna ósjálfrátt. Kyndarinn átti fullt í

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.