Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Side 34

Nýtt S.O.S. - 01.10.1958, Side 34
34 Nýtt S. O. S.------ Þegar Ægi hvolfdi Aðfaranótt föstudags 12. febr. 1944 réru flestir bátar úr verstöðvunum við Faxaflóa, Vestmannaeyjum og víðar. Undir morgun gerði afspyrnuveður af suðvestri. Þegar rokið skall á, var vélbáturinn Æg- ir úr Garði staddur NV.—V. út af Sand- gerði um það bil 16 sjómílur frá landi. Ryrjaði hann að draga línu sína kl. 8 um morguninn, en brátt varð hann að hætta vegna veðurofsans. Hélt hann síðan upp í með hægri ferð og um hádegisbilið var hann kominn að bauju vélbátsins Óðins, en hún var um 8 sjómílur undan landi í NV.—V. frá Sandgerði. Skipverjar á Ægi létu síðan horfa beint upp í við baujuna þar til kl. 2 e. h., að þeir héldu á liægri ferð austur og skáhallt undan veðrinu, þar til þeir sáu Garðskaga. Voru þeir þá 4 til 5 sjómílur undan Garð- skagaflös. Fram til þessa hafði báturinn varið sig öllum áföllum, en allt í einu reið geisi- mikill sjór aftan undir bátinn. Þegar þetta skeði voru í stýrishúsinu skipstjórinn, Þor- lákur Skaftason, og Sigurður Björnsson. Segist skipstjtóranum svo frá, að hann hafi séð ölduna ríða að bátnum og fundið að báturinn lyfti sér i hana að aftan og tekið skriðið með henni unz hann virtist kom- inn upp undir öldutoppinn, en þá stakst Jiann með leifturhraða á bakborðskinnung -og hvolfdi. Skipstjórinn var fastur við ein- hvern hlut, sem liann vissi ekki hver var. Fannst honum hann sökkva dýpra og dýpra. Hann segist tvisvar liafa sopið sjó, og telur, að hann hafi ekki allan tímann haft fulla meðvitund. Eftir á að gizka tvær mínútur rétti báturinn sig aftur. Sá Þorlák ur þá, að Sigurði skaut upp fyrir aftan bát- inn, en hvarf samstundis og sást ekki eft- ir það. Meðan á þessu stóð höfðust vélstjórinn og tveir liásetar við fram í lúgamum. Er þeir komu upp var ekki árennilegt um að litast, því að stýrishúsið var horfið, siglurn- ar báðar brotnar og hékk sú stærri föst á reiðanum, nokkur sjór var kominn í lest og vélarrúm og vélin stöðx'iið.. F.in lúgan a lestinni liafði brotnað og gluggahús yfir Júgar sópazt burtu. Eftir þennan stórsjó kom lag í nokkrar mínútur. Svo að segja í sömu svifum og þetta skeði, bar þarna að vélbátinn Jón Finnsson og eftir örstutta stund hafði hann lagzt að Ægi á hléborða. Tókst tveimur skipverjum Ægis að komast yfir í hann í þessari atrennu, og í næsta skipti björg- uðust hinir tveir, sem eftir voru. Skip- verja þá á Ægi, er björguðust sakaði ekki nema hvað skipstjórinn meiddist nokkuð á liægra fæti, en á honum hékk iiann fastur við bátinn. Jón Finnsson og aðr- ir bátar, er þarna voru staddir, leituðu að Sigurði Björnssyni, en urðu hans hvergi varir. Þorsteinn Jóhannesson frá Gauksstöð- um, skipstjóri á Jóni Finnssyni, og skip- verjar lians sýndu mikinn dugnað og á- ræði við björgunina. Daginn eftir eða sunnud. 13. febr hóf ísl. flug\’él leit að vélbátnum Óðni og sá hún þá Ægi á reki tim 2 sjómílur norður af Akranesi og rak hann í átt á Melasveit. Hann fannst síðar rekinn við Ás í Mela- sveit, lítið brotinn og náðist út. í þessu sama \eðri sökk Björn II. frá Akranesi, en menn björguðust, og þrír bátar fórust með allri áhöfn. Voru það bátarnir: Óðinn úr Garði og Njörður og Freyr úr Vestmannaeyjum. *

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.