Nýtt S.O.S. - 01.02.1960, Qupperneq 26
„Eg skal vera þögull sem gröfin,“ svarar Striibe.
Þá segir skipherrann honum frá því, að liann sé ekki vonlaus um að
rekast á bát frá eyjunni Ascersion, sem geti hjálpað þeim um varahluti.
Enn sé hér um bil 12 klukkustunda ferð til eyjarinnar.
„En þér verðið að þegja yfir þessu,“ segir skipherrann með áherzlu. „Eg
vil ekki vekja neinar árangurslausar vonir hjá skipshöfninni."
„Já, það skal ég gera!“ svarar Striibe, og einnig í brjósti hans kviknar
vonarneisti. „Þegar gamli maðurinn er þetta viss, þá hugsa ég að þetta
verði," hugsar Striibe með sjálfum sér. Og hann hverfur enn einu sinni
undir þilfarið til að gæta að vélinni sinni. Nú má hún til að ganga, þegar
hjálpin er svo nærri.
Með hægri ferð þokast U — 178 nær eyjunni Ascensioa. Og það ó-
sennilega skeður: Systurbáturinn U — 177, skipherra Heinz Buchholz er
þar á ferð. Hann er á leið til Suður-Atlantshafsins. í turninum um borð
í U — 178 reikna nú yfirstýrimaðurinn og aðrir yfirmenn út stefnu syst-
urbátsins, nú ríður á að bátarnir hittist, annars er úti um U — 178. Það
vita allir.
Það tekur þá 3 daga að komast á stefnumótsstaðinn. Loks sjá þeir bát-
inn og geta kallað til hans. Wiebe er kominn upp í turninn og veifar
til hans. Þeir veifa aftur.
„Hafið þið nokkrar varastúkur, senr þið getið hjálpað okkur um?“
Einhver uppi á þilfarinu hverfur niður um hlera og kemur svo fljótt
í ljós aftur.
„Við höfum nægilegar stúkur um borð. Þið getið fengið nokkrar, ef
þið viljið.“
Á U — 178 gefa þeir hver öðrum olnbogaskot og augun eins og stækka
um leið og þeir segja: „Þetta vissi ég alltaf!“
Á U — 177 eru nokkrir menn, sem þeir þekkja vel, og það er orðið
eitthvað léttara yfir lífinu en var. Skipherrann er ekki einungis tilbúinn
að gera allt fyrir þá sem hægt er og segir:
„Eg verð hér, þangað til allt er komið í lag hjá ykkur.“
„Kærar þakkir," segir Wilhelm Spahr gegnum kallhornið. „En ykkar
er nú þörf annars staðar.“
Svo skilja þessir menn og veifa lengi hvor til annars og U — 177 stefn-
ir í suður og skilur eftir sig freyðandi kjölfar.
Og nú er allt í uppnámi á U — 178, menn skyrpa í lófana og hefja
vinnu sína. Varahlutunum, sem fengnir hafa verið þarf að koma fyrir
26
Nj/tt S O S