Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Qupperneq 5

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Qupperneq 5
Þ J Ó Ð I N 147 og sú, að til þessa samstarfs (flokka- og stjórnarsamvinnu) var stofnað næsta lauslopalega, efndir orðið einn- ig lélegar á ýmsu, sem í tal kann að liafa borizt í öndvei'ðu, en drepið var á dreif, er til kom. Og nú eru þeir eigi fáir orðnir i öllum þessum flokk- um, sem vonsviknir þykjast á allri samvinnunni og myndu einskis frelc- er óska, en að henni yrði slitið sem fyrst, þótt slíkrar samvinnu sé eigi síður þörf nú en áður, nema fremur sé. Það er líka sannast mála, að þeg- ar styrjöldin hófst, sem nú geysar, þá hefði orðið að stofna til einhvers- konar samstjórnar um lífsnauð- synjamál þjóðarinnar, þótt engin stjórnarsamvinna liefði áður verið á komán, — en þá liefði hún vafalaust verið með öðrum hætti, ekki eins „pólitísk“ í eðli sínu, ef svo mætti komast að orði, og eingöngu miðuð við alþjóðarhagsmuni og hið ríkjandi óeðlilega ástand. * Nú væri það að líkum, þótt menn spyrðu: Hvers vegna blessast ekki slík samvinna, og það undir öllum kringunistæðum, samvinna ábyrgra stjórnmálaflokka um nokkuð marg- þætta stjórn, til þess i sem mestum friði að vinna að viðreisnarmálum allrar þjóðarinnar, væntanlega án manngreinar- og flokksgreinaráhts? Hvi skyldu þeir ekki spyrja þannig, sem ef til vill hafa lialdið, að „samr vinna“ — hvernig sem hún ella væri undir sig lcomin — væri allra meina bót? En hér er komið að nokkuð ein- kennilegu atriði, sem ekki nærri all- ir hafa varað sig á: Allsherjarpólitísk samvinna er ekki till með hinu svo nefnda lýðræðisskipulagi. Þetta skipulag felur það einmitt í sér, mest vegna þess, að það er hið frjálsleg- asta og alþýðlegasta stjórnmálafyrir- komulag, sem menn hafa átt, — því er ekki að neita, þótt ágallar þess séu margvíslegir og sumir veigamildir, enda árangur þess einatt fjarri lagi; en það er eðli þess, að það þolir ekki hönd, nema mjög takmarkað, ef það á ekki alveg að fara út um þúfur. — — Lýðræðisskipulag er það: 1) Að fólkið, almenningurinn, með sér- stöku almennu kosningafyrirkomu- lagi, geti tekið sem mestan þá.tt í stjórn lands og lýðs, i víðara skflh- ingi; en eins og allir eða flestir vita nú, er þetta mestmegnis óheint og af .harla skomum skammti, sem sé aðallega einn einasta dag á fleiri ár- um, hinn lögskipaða kjördag til Al- þingis. Utan þess dags getur vel átt sér stað, að liáttvirtir kjósendur séu ekki hafðir með í neinum þjóðmála- ráðum, né fái þess kost, að hafæ nokkur veruleg áhrif á gang stjórn- málanna yfirleitt. Þvi að á kjördegi hafa þeir, fyrir ákveðinn tíma að minnsta kosti, falið fáeinum mönn- um að fara með öll úrslitaráð með þjóðinni, sem sé Alþingi og þeirri ríkisstjórn, sem þvi þóknast að setja á laggirnar. Siðan er ekki stjórnar- farsleg nauðsyn að láta almenning koma neins staðar til skjalanna, þeg- ar þjóðmálum er ráðið til lykta fyrir atbeina þings og stjórnar, nema þá alveg sérstaklega standi á. En ef kjós- endum finnst sér mishoðið, geta þeir vitaskuld „hefnt“ sín á næsta kjör- degi!

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.