Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Síða 10

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Síða 10
152 ÞJÓÐIN Mymlastytta Vigelands. og hófust með því ítalskar ])ók- menntir. Flest mátti lieita ólíkt í Normanna- rikinu og landi geirfálkanna. Þar sýðra var auður mikill og verzlun við margar þjóðir,dýrlegar kirkjur og kastalar og hallir, suðrænn gróður og sól. En eitt var hkt: hæði lönd voru á yzta jaðri kristninnar, þeirrar trú- ar, sem þessir víkingaliðsmenn liöfðu orðið að taka á leit sinni að gæð- um þessa lieims. Á Sikiley var allt fullt af Serkjum, og áhrifin af menn- ingu, visindum og heimspeki Serkja gerði þá frændur blendna í trúnni. Friðrik annar hefur verið kallaður fyrsti nútíðarmaðurinn; og trúði liann miklu meir á slcynsemina og reynsluna en á lærdóma hinna miklu kennivalda; hann var hinn eindregn- asti mótstöðumaður páfadómsins og af óvinum sínum kallaður Epikúr- ingur, þ. e. maður, sem ekki trúir á líf eftir þetta. I landi Snorra Sturlusonar voru engir Serkir, sem gætu brugðið upp öðru ljósi en liinu kristna. Og þó var þar í landi máttugt menningarafl, sem var af allt öðrum toga spunnið en kristnin, en það voru þær leifar fornnorrænnar menningar, sem varð- veittust í þjóðlífi, lögum, hugsunar- liætti og skáldskap frá fornöldinni. Þetta tvöfalda ljós, sem skein á menn í einu, gerði að vísu ekki lífið vanda- minna, en það gaf mönnum færi á að bera saman, veitti þeim viðsýni og einkennilegt andlegt frelsi. Friðrik keisari hafði verið fóstri páfa, en í lífverði hans voru Múham- eðstrúarmenn. Þar var skammt öfg- anna á milli og von að kynlegir kvistir spryttu af. En frá Hvammi i Dölum var langt til Rómaborgar og tvær aldir skildu Snorra frá heiðpinni. Áhrifin á báða bóga voru ekki áköf. Og í æsku Snorra hjá Jóni Loftssyni i Odda liafði hann kynnzt menningu, þar sem reynt var að sameina innlent

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.