Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Side 13

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Side 13
Þ J Ó Ð I N 155 við. En jafnvel þessar heimildir verð- ur þó að taka með gát. Það verður að sjá við öllu skrumi og lofi, og er oft þá ekki annað nýtilegt í þeim en berar staðreyndirnar; þvi að það væri ólíklegt, að skáldin hrósuðu konung- unum fyrir orustur, sem þeir liefðu alls ekki verið í: „Þat væri þá háð, en eigi Iof.“ Hér getur að líta vand- lega hugsaða heimildarýni, en það er sá grundvöllur, sem öll nútíðar- sagnaritun stendur á. Sagnfræðing- um nútímans kann stundum. að þykja Snorra hafa tekizt betur að kenna heilræðin en halda þau, en bágt er að vita, nema sumir þeirra eigi eftir að verða allt eins grálega leiknir sjáKir og einmitt af sömu ástæðum. En um það skal ég ekki fara fleiri orðum hér. Það er engu líkara en forlögin hafi búið Snorra sérstaklega til andlegra stórvirkja sinna. Hann erfði hina margþættu hæfileika ættar sinnar, gáfur og tvísýni föður síns, en lífs- nautn móður sinnar; hann hlaut hina mestu og beztu menntun, sem þá var hægt að fá hér á landi; hann varð einhver auðugasti höfðingi landsins, og hann dvaldist þó langdvölum er- lendis og með þjóðhöfðingjum þar. Það var ekki verra, þar sem hann átti einmitt að skrifa langmest um Noregskonunga. Það má sjá, að hann hefur átt stórt bókasafn: allur lx»rri rita, sem þá var til á íslenzku, hefur verið i Reykholti á hans dögum. Mörgum manni nú á dögum er óljúft að hugsa sér fornislenzka sagnarit- ara með bækur kringum sig, en þá óbeit er bezt að leggja á hilluna, þeg- ar Snorri á í hlut. Hann hafði fjölda bóka við höndina, bar þær saman og mat gildi þeirra, áður en hann las skrifara sínum fyrir, það sem i hans riti átti að standa. En auk þess kunni Snorri ógrynnin öll af gömlum kvæð- um, hann var fræðimaður á skáld- skap og auk þess skáld sjálfur, svo að honum voru þar allir hnútar kunnir. Honum var yndi að ráða myrkar rún- ir skáldamálsins, glíma við erfiða og dýra háttu, en þeim, sem nú lifa, mun þó þykja meira gaman að þeim kveð- skap hans, þar sem hjarta hans slær, vísum um siglingar, um veizlugleðina í höll konungs og jarls, eða þá lausa- vísur um það, sem efst var á baugí hverja stundina. Snorri kynntist mátulega mörgu um dagana til að öðlast djúpan og víð- feðman skilning á mönnum og mann- lifi. í ævi hans var mátulega blandað sigrum og ósigrum, miklum sigrum og djúpum ósigrum. Hann var mik- ill höfðingi, með of litið af blindum framkvæmdarmætti og of mikið af skilningi og vitsmunum. Sturla bróð- ursonur hans kallar hann fjöllyndan og á þar fyrst og fremst við kvenna- mál hans. En hann var fjöllyndur í öllum skilningi. Honum lá allt i augum uppi, en flest sem, hann gerði varð honum að einskonar göfugum leik eða íþrótt. í huga hans er barátta milli náttúrugáfna og lífsþroska ætt- ar hans og menntunar og siðunar Oddáverja. En allt þetta verður hon- um til góðs í ritverkum hans, þar þarf f jölhæfni kið. Jafnvel lestir hans gera honum léttara fyrir að skilja aðra menn. Hann getur lika sett sig í spor margvíslegustu manna, getur skilið ólíkustu lífsviðhorf. Hann er

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.