Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Blaðsíða 19

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Blaðsíða 19
ÞJÓÐIN 161 Brezk fallbyssa til varnar gegn innrás i Bretland. anlegum ástæðum — látið neitt uppi um hemaðaráform sín, en sterkar likur benda til, að þau séu miðuð við það, að valda Þjóðverjum sem mestu tjóni með loftárásum i vetur, og búast sem bezt í vetur undir hin miklu átök, sem til hlýtur að koma fyr eða síðar, ef til vill þegar næsta vor. En svo er nú hinsvegar komið, vegna þess, hversu iskyggilega horfir fyrir Rússum, að sterk alda hefir risið i Bretlandi, að Bretar verði að láta meira til sín taka Rússum til að- stoðar, þeir verði að gera meira en láta þeim í té hergögn og birgðir eftir mætti. Ýmsar skoðanir eru látnar i ljós um hvar Bretar geti horið niður. Það er talað um innrás i Noreg, Belgíu eða Frakkland, sókn í Libyu, að senda beri her gegnum Iraq til Kákasus og að innrás verði gerð á meginlandið að vestanverðu um leið o. s. frv. Um þetta allt er mikið rætt og ritað i Bretlandi og Bandaríkjun- um nú, og er ekki ólíldegt, að hvenær sem er úr þessu gerist eitthvað, sem hendi til hvað ofan á verður. Þá vekur það mikla athygli um þessar mundir, að um leið og tilkynnt er í London (2. nóv.), að sovét-stjórn- in hafi snúið sér til hrezku stjórnar- innar varðandi afstöðu hennar til þeirra þjóða, sem snerust á sveif með

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.