Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Side 23

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Side 23
Þ J Ó Ð I N 165 að dauðhreinsa nálina og liafði mala- ríu bakterian þannig borizt mann frá manni. Þenna sama vetur voru j'fir 100 sjúkdómstilfelli í Cairo, en til Ameríku hafði veikin borizt með sjómönnum, sem gerzt höfðu heroin- neytendur. — Ef mýflugan hefði svo komist í tæri við einhvern þessara malaríusjúklinga, hefði landsfarsótt hæglega getað brotist út. Heilbrigðis- yfirvöldin voru því vel á verði gagn- vart öllum heroin-neytendum, ein- angraði þá og tókst að stemma stigu fyrir frekari smitun. Hvítu blóðkornin hverfa. Ái’ið 1902 var ameriskur læknir að athuga konu með þrota í hálsi, og vakti það þá furðu hans, að eklci voru nema 360 hvít blóðkorn í hverjum rúmsentímetra af blóði konunnar, í stað 8 þús. Svipað tilfelli lcom fyrir í Austurríki nokkrum árum siðar, og 1922 bætust 5 tilfelli við í Þýzka- landi. Hinn furðulegi sjúkdómur greip síðan um sig með hverju ári sem leið, og árið 1933 voru 2000 dauðsföll í Bandaríkjunum skráð á kostnað hins nýja sjúkdóms. Læknar nefndu þennan sjúkdóm agranulocy- tosis, sökum þess, að iðulegast hvarf viss tegund hvítra blóðkorna, sem nefnd eru granulocyte. Rannsókn á upptökum veikinnar var hafin. Veikin hafði í fyrstu breiðst út meðal efnaðri stétta, en kom sjaldan fyrir hjá efnalitlu fólki. Hún drap 200 sinnum fleiri hjúkr- unarkonur en skólalcennara eða vél- ritunarstúlkur, og 50 sinnum fleiri lækna en lögfræðinga. Margir þeirra, sem dóu, höfðu þjáðst af tannverk, og einkanlega var veíkin skæð í kven- fólki á fimmtugsaldri Ungur háskólakennari í Georgía, Roy R. Krache, safnaði skýrslum um veikina. Hann veitti þvi athygli, að einn sjúklingurinn hafði notað deyf- ingarmeðal vegna tannverkjar án læknisráðs. Segjum nú svo, að Kracke læknir liafi hugsað sem svo: Það er til deyfingarmeðal, köllum það X, sem hefir verið fundið upp fyrir 1902, en ekki komizt verulega í umferð í Bandarikjunum og í Þýzkalandi fyrr en eftir 1922, en síð- an náð útbreiðslu i öðrum löndum. Gerum ráð fyrir að X sé aðallega not- að af miðaldra kveni'ólki til að deyfa kvalir, að það hafi verið dýrt í fyrstu, en síðan ódýrt, er salan á þvi jólcst. XTotkun X gæti gefið skýringu a agranulocytosis. Hann fann nú að notkun deyfing- armeðalsins aminopyrin, sem selt var undir vörumerkinu pvramidon, átti ágætlega við lýsinguna á X. Dánar- vottorð 1300 sjúklinga sýndu, að þeir höfðu búið í bæjum eða héruðum, þar sem hægt var að afla sér amino- pyrins, og liöfðu þjáðst af ýmiskon- ar kvalaköstum, sem kynnu að hafa fresitað þeirra til að mota lyfið. Hann skýrði öðrrami læknum frá niðurstöðum sínum, en þeir athug- uðu sjúklingaskrár sinar. Þessi at- liugun varð neikvæð. Þúsundir manna, sem notað liöfðu aminopyrin, höfðu eðlilega blóðsamsetningu, og hundruð sjúklinga höfðu ekki neytt lyfsins. En heilbrigðiseftirlitið var ekki ánægt með þessa niðurstöðiu Ættingjar látinna sjúklinga voru yf- irlieyrðir, heimilislyfjabirgðir voru i

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.