Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Side 25
ÞJÓÐIN
167
BÆKUR
Stjómmál, ræður og ritgerðir.
Útg. „Heimdallur“, fél. ungra
Sjálfstæðismanna i Reykjavik.
1914.
Bók sú, sem hér um ræðir, mun
verða kærkomin hverjum Sjálfstæð-
ismanni, en hún er einnig næsta nyt-
samleg hverjum ungum manni, sem
reynir fyrir alvöru að gera sér grein
fyrir flokkaskipnninni í landinu og
heilhrigðu pólitísku viðhorfi. Öll er-
indin, sem bókin flytur, eru prýði-
lega framsett, Ijóst og skipulega, og
sum með ágætum. Erindin eru þessi,
talin i réttri röð: Fullveldi íslands,
eftir |ólaf Thors atvinnumálaráð-
herra, Milli fátæktar og bjargálna,
eftir Jón Þorláksson fyrver. borgar-
stjóra, Sjálfstæðisstefnan, eftir Jó-
hann Hafstein cand jur., Mannrétt-
indi og lýðræði, eftir Torfa Hjartar-
son bæjarfógeta, Auðjöfnun og auð-
söfnun, eftir Bjarna Benediktsson
ii
horgarstjóra, Hvernig á að sætta fjár-
magn og vinnu, eftir Magnús Jónsson
alþingismann, Vinnulöggjöf, eftir
Thor Thors sendiherra, Um social-
isma, eftir Jóhann G. Möller skrif-
stofustjóra, Viðskiptastefna Sjálf-
stæðisflokksins, eftir Árna Jónsson
frá Múla, alþm., Samvinna og sjálf-
stæði, eftir Jón Pálmason frá Akri,
álþingism., Hvert skal stefna?, eftir
Guðmund Benediktsson bæjargjald-
kera og Um ræðumennsku, eftir
Gunnar Thoroddsen prófessor. Auk
þess eru þýdd erindi eftir Sir Alfred
Mond og Sir John Simon: Gjaldþrot
socialismans og Socialismiún, og að
lokum: Grundvallar-stefnuslu'á
Heimdallar og Stefnumál Sjálfstæð-
isflokksins við síðustu alþingiskosn-
ingar 1937. Er þetta liin eigulegasta
hók, liðlega 20 arkir að stærð, og hin
vandaðasta að öllum frágangi. Þeir
Jóhann Hafstein og Gunnar Thorodd-
sen liafa valið efni bókarinnar, og
rita þeir forhiála hennar.