Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Qupperneq 29

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Qupperneq 29
Þ J Ó Ð I N 171 lirella þig á nokkurn hátt. Það liress- ir mann ótrúlega mikið að koma upp í bláloftin. Það er alveg yndislegt. Þar efra gleymirðu öllum þínum áhyggj- um. — Jæja, hugsaði Lísa, þvi ekki það. Vitaskuld var hún hrædd við að fljúga, en hér var eftir engu að bíða, engin gróðavon, nú og ef þær liröp- uðu — þá myndi það víst ekki skipta miklu máli. Það rann upp fyrir henni, að Villu væri jafnhætt og lienni sjálfri, og varð hissa á því, að finnast sælt sameiginlegt skipbrot. En það var enginn kominn til að segja, að flugvélin hrapaði, hugsaði hún með sjálfri sér. Villa var svo dugleg, og svo myndi hún fá stöðu í London. Það yrði hægur vandi, þeg- ar menn vissu, hvar hún hefði verið í vist. En um kveldið, þegar Villa var far- in út til að fá sér „sprett“ upp í heið- loftin roðagylltu, átti Lísa tal við sir Henry. — Haldið þér, sir Henry, byrjaði hún, — að ég gæti fengið stöðu hér i Englandi, ef ég kærði mig um að vera hér lengur? — Hverskonar stöðu? — Einhverja. — Það segja allir. — Hverju svarið þér? — Ég myndi svara því til, eins og allir gætnir atvinnuveitendur, að það væri komið undir fyrra starfi yðar. — Ég hefi aldrei starfað við nei.tt sérstakt, því varla er hægt að kalla þýzkukennslu mina starf — hún er bara skemmtun. — Það segið þér vel um, sagði sir Henry. — En segið mér, liélt Lísa áfram, — ef enginn fær vinnu, nema hann hafi unnið eitthvað áður, hvernig eiga þá byrjendur að komast að? — Ég veit ekki, hvernig því hagar til, en það er mikið framboð af starfs- stúlkum í öllum greinum og hafa margar 5 til 10 ára starfsferil að baki. Með þeim hraða, sem nú er á öllum sviðum, komast ekki aðrir að, en þeir, sem hafa mikla reynslu. Við- skiptalífið er ekki æfingaskóli. Og jafnvel þó þér, kæra mín, hefðuð ein- hverja reynslu, þá eruð þér þó, ef satt skal segja, útlendingur, og þeir verða að hafa landvistarleyfi til þess að fá atvinnu. Þetta er raunar skilj- anlegt, því atvinnuleysið er mikið. — Ég held, Lísa, að þér séuð orðnar leið- ar á frænkum yðar, og þess vegna viljið þér setjast að hér í Englandi. Þér skuluð l)ara vera hér kyrrar og kenna Villu þýzku. Eftir framförum hennar að dæma, er það ærið ævi- starf! Þetta varð til þess, að Lísa ákvað að láta engan vita um atvinnuleitina. Fólkið var svo vingjarnlegt, að það myndi ekki leyfa-henni að fara. Þegar til kom sagði hún Villu, að hún ætti erindi til London til að láta gera við tennur, hún hefði haft tann- pínu upp á síðkastið. — Jæja, sagði Villa, — þú getur komið aftur með lestinni, þá verður þú ekki eins þreytt. Þú hefðir átt að segja mér fyrr frá tannpinunni. Daginn eftir flaug Lísa í fyrsta skipti með Villu. Hún skalf á bein- unum. En þegar henni varð litið framan i Villu og sá að hún var alveg örugg og gekk að öllu með skjótum é

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.