Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Síða 32

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1941, Síða 32
174 Þ J Ó Ð I N ekkjumann, sem var alger bindindis- maður á vín og tóbak. Þegar Lísa var komin upp í um kveldið, hélt hún lestrinum áfram og að honum loknum tók hún blað og blýant og skrifaði bréf til ritstjóra Stefnumóta. Hún ætlaði sér ekki að svara neinni auglýsingunni beint, því henni fannst það einkennilegt, að all- ar góðar stúlkur þyrftu endilega að vera í góðum efnum. Hún skrifaði: „Kæri herra, ég er austurrísk og komin af góðu fólki. Ég er 22 ára gömul, með svart liár og brún augu. Ég er 5 fet og 4 þumlungar á hæð og er mjög grönn. Ég er alveg peningalaus en hefi áhuga fyrir hljómlist og kunnáttu í mat- reiðslu. Ég tala ensku og frönsku auk þýzku. Er góð að bæta föt. Ég vildi gjarnan þynnast heiðarlegum manni, ekki eldri en 35 ára, sem hefur að minnsta kosti þúsund pund á ári. Ég skyldi reyna að verða honum góð kona. Ég er kaþólsk, en skipti mér ekki af trúarbrögðum mannsins mins. Ég befi góð meðmæli frá vina- fólki mínu í Englandi, þar sem ég liefi verið heimilislcennari, en auð- vitað hefi ég engin meðmæli sem eig- inkona, af því að ég hefi ekki verið það áður. Ég á dálítinn höfuðstól á vöxtum. Yðar einlæg Lísa Plumm.“ Þetta bréf las hún gaumgæfilega yfir. Það yirtist vera fullnægjandi. Þegar öUu var á botninn hvolft, var engin skömm að þvi að kynnast manni á þennan hátt. Hún þurfti lireint ekki að giftast honum, ef hann reyndist illa. Hinsvegar lágu þeir ekki lausir fyrir með þúsund pund i árs- tekjur, og alltaf væri þó eitthvað í slíkan mann spunnið. Það gat líka meira en verið, að það væri eittbvað golt til í honum, en það var verst, ef bann væri niðursokkinn í eitthvað, eins og lafði Wren í garðyrkjuna. Til vonar og vara bætti hún við bréfið: „Ég liefi engan áhuga á garðyrkju.“ Þá braut bún saman bréfið og stakk því ásamt Stefnumótum undir kodd- ann sinn og sofnaði. Tveim dögum seinna fékk liún bréf frá ritstjóranum. Það liljóðaði svo: „Kæra ungfrú! Sem svar við fyrirspurn yðar, lát- um við yður vita, að innritunargjald okkar er 5 pund og þóknun 15 pund, þegar bjónaband er stofnað milli við- skiptavina okkar. Herrann greiðir á- valt þóknunina fyrir dömuna. Fyrir innritunargjaldið fáið þér mánaðar- lega auglýsingu í blaðinu og þér getið svarað hverri auglýsingu, sem hent- ar yður og fengið frelcari upplýsingar. Ef þér viljið láta innrita yður, þá biðjum vér yður að láta okkur vita lieimilisfang foreldra yðar eða ann- arra ættingja og tilkynna upphæð höfuðstóls yðar og livort bann er í yð- ar vörzlu. Þessar upplýsingar eru nauðsj'nlegar vegna spjaldskrár oldc- ar. — í von um heiðrað svar yðar innan skamms, yðar einlægur T. Buttersby m. t. á. Lísa marglas þetta bréf. Það var liæverzka í meira lagi, að lierrann borgaði ávalt fyrir dömuna. Allur

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.