Heimilispósturinn - 18.03.1961, Side 12
HJÁKONA LÖGMANNSINS
VIÐ frönsku kvikmyndadísina
Brigitte Bardot hefur löngum loðað
■það orð, að hún væri í rauninni ekk-
ert annað en uppstrílaður stelpukjáni
með kostulegan hárflóka og kyssileg-
an stútmunn, sem hún hafi beitt fyr-
ir sig í tima og ótíma til að vílla
karlmönnunum sýn og breiða yfir
hæfileikaleysi sitt sem leikkona.
Stóru, uppglenntu augun séu aðeins
bragð hennar til að ganga í augun
á almúganum, sannan svipbrigðaleik
eig^i hún ekki íil. Auglýsingamold-
viðri hafi byggt upp orðstýr hennar,
og svona mætti halda áfram með
vammirnar í það óendanlega að heita
má,
Hinu reynir enginn að neita, að
Brigitte er orðin sjálfstætt hugtak í
kvikmyndaheiminum, og þegar á
prenti sjást upphafsstafirnir hennar
BB, vita allir við hvað er átt.
FYRIR nokkrum mánuðum var
lokið töku kvikmyndar, sem hlaut
heltið La Verité — Sannleikurinn —
i Frakklandi. Mlle Bardot fór með
aðalhlutverkið, og þegar myndin kom
fram, luku gagnrýnendur upp einum
mimni um snilldarleik hennar 1
myndinni — hún væri hvorki meira
né minna en stórbrotin leikkona!
En eftir að hafa séð kvikmyndina
Hjákona lögmannsins, sem innan
skamms verður sýnd i Trípólí, getur
maður naumast varizt því að imdr-
ast fyrra vanmat gagnrýnenda og
skilja betur þá skoðun, sem þeir nú
hafa fengið á BB. Frakkar hafa
löngum átt hið mesta úrval leik-
kvenna, en á því leikur enginn vafi,
'að Brigitte er ein þeirra fremstu.
Þessi kvikmynd er Ijós sönnun
þess.
HJÁKONA lögmannsins birtist á
sínum tima sem framhaldssaga í víð-
lesnasta vikublaði landsins, — og
jók mjög á vinsældir þess. Ég sé
því enga ástæðu til að rekja til hlýt-
ar efni myndarinnar, — ástir eða
öllu heldur girndir lögmannsins til
götustelpunnar, sem óhjákvæmilega
hljóta að fá hörmulegan endi, eru
okkur fjarlægar, ekki hvað sízt í
Ijósi þess skilnings, sem eiginkona
lögmannsins sýnir sambandi þeirra.
Ástir unga fólksins eru ekki síður
æsispennandi viðfangsefni, sem tek-
ið er snilldarhöndum, þótt ómjúk-
Iega sé að farið.
Þetta er eitt uppáhaldsviðfangsefni
Frakkanna. Þeir virðast hafa sér-
staka unun og nautn af því að velta
því fyrir sér, teygja lopann og
stríkka á taugunum, og finna etn-
hverja úrlausn, sem þeir kalla svo,
■og þá helzt þannig, að koma áhorf-
andanum algjörlega á óvart.
Þetta kalla þeir raunveruleikann,
séðan af skarpskyggni.
BRIGITTE Bardot sýnir okkui'
götustelpuna í allri sinni nekt, sálar-
•angist, kæruleysi, margskiptri ást.
Allt frá því hún birtist á tjaldinu
:með óttann fyrir lögreglunni í stór-
um augunum, til þess er hún liggur
myrt i skitugu hótelfleti, heldur hún
huga manns föstum. Girnd lögmanns-
ins til hennar, samband þeirra, sem
i augum hennar er fyrst og fremst
viðskiptaatriði, á þessa strengi spil-
ar hún snilldarhendi, svo að fáar
hefðu eftir leikið. Sakleysi götustelp-
BELINDA LEE DÁIN!
KVIKMYNDALEIKKONAN Belinda Lee fórst í bílslysi í
Kalifomíu í síðastliðlnni viku. — Leikkonan hafði skapað sér
heimsfrægð, ekki aðeins með mörgum ágætum myndum sín-
um, lieldur flaektist hún inn í þó nokkur hneykslismái, nú
seinast með Raimondo Orsini, ítalska greifanum, sem skildi
við konuna sína hennar vegna og hætti mannorði sínu, en
fékkst þó ekki til að kvænast henni.
unnar í allri eymd sinni og spillingu
blandast á hrífandi hátt fegurð og
yndisþokka á stundum.
Leik eins og þennan sýnir engin
venjuleg augiýsingaljóska, sem afl-
að hefur sér frægðar með því einu
að leggjast í rekkju þeirra, sem að-
stöðu hafa til að koma stúlkum á-
leiðis á brautinni.
JEAN GABIN er sagður óum-
deildasti leikari Frakka. Rósemi hans
verður sjaldan rokkað, en þá er lika
bragð að. Hann er eftirminnilegur í
þessu hlutverki sem öðrum. Edwige
Feulliere sýnir sterkan og háttvis-
an leik I hlutverki eiginkonuh1
sviknu.
n»r
STERK atriði eru mörg í c
inni, alltof mörg til að tækif£er* "
til að geta þeirra að nokkrU r^
En ég get ekki stillt mig um
minnast á, þegar götustelpan n
lögmanninum aftur á vald sitt, P
ar læknastúdentinn hefur veri®
heimsókn hjá henni; sim'talið ^
þeirra, er hún hefur lofað að ni
stúdentinn ekki framar, en hann
ir í rekkju hennar. .... Þetta,
ótal margt annað er eftirmir
l v*
^ C
U*»
ninniieg
12
HEIMIUISpáaTURINN