Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 17

Sagnir - 01.06.2006, Page 17
Tillögumar, sem birtust í danska skipulaginu, gerðu ráð fyrir því að ásýnd Kvosarinnar tæki miklum breytingum. Kvosin átti að fá nýtt hlutverk og höfundar gáfu leyfi fyrir miklum byggingaframkvæmdum og röskun á fyrri byggð. cífjú ð afjyqq ð úr ?L Voóinní I danska skipulaginu var gert ráð fyrir því að Kvosin fengi nýtt hlutverk sem verslunar- og þjónustuhverfi. Ibúðabyggð átti að „þoka fýrir ýmiss konar þjónustustarfsemi og bifreiðastæðum"6 enda var það skoðun skipulagshönnuða að íbúðabyggð ætti „eðli“sins vegna ekki lengur eiga heima í miðbæ heldur væri æskilegt að aðgreina íbúðabyggð og athafnasvæði. Þegar skipulagsvinnan fór í gang fóm 9000 fermetrar undir íbúðarhúsnæði í Kvosinni og Grjótaþorpi en skipulagshönnuðir væntu þess að engin íbúð yrði á svæðinu árið 1983.7 Qífíinn { öniCvejí Tillögur skipulagshönnuða danska skipulagsins í samgöngumálum hefðu breytt ásýnd hennar svo um munar. Markmið skipulagshönnuða var að greiða almenningi leið á einkabílum um bæinn. Því gerðu þeir ráð fyrir breiðum akbrautum, þvers og kmss um Kvosina.8 Hér nægir að gera grein fyrir einni þeirra. Sú akbraut átti að liggja í gegnum hjarta Kvosarinnar, frá austri til vesturs, og tengja saman Túngötu, Kirkjustræti, Amtmannsstíg og Grettisgötu. Breiðust átti hún að vera einar fjórar akreinar. Til að greiða þessari braut leið hefði þurft að brjóta fjölda húsa í spað - Amtmannshús og Hegningarhúsið þeirra á meðal.9 Þess má raunar geta að vinna við þessa götu var sett í framkvæmd og hið sögufræga hús Uppsalir var rifið árið 1969 en húsið stóð á homi Túngötu og Aðalstrætis.10 StvK* 'Xy /V^,vos Eins og áður sagði gáfú skipulagshönnuðir leyfi íyrir umtalsverðum byggingaframkvæmdum í Kvosinni. Ótækt er að gera skilmerkilega grein fyrir þeim í stuttu máli. Hér verður því einungis tekið dæmi af tveimur svæðum sem átti að endurskipuleggja og em einkennandi fyrir hugmyndir skipulagshöfúnda, annars vegar Bemhöftstorfunni en hins vegar Grjótaþorpinu. Allt frá árinu 1927, þegar fyrsta skipulag Reykjavíkur leit dagsins Ijós, hafði Grjótaþorpið verið þymir í augum skipulagsyfirvalda og þau höfðu stefnt leynt og ljóst að því að jafna hverfið við jörðu. í greinargerð með danska skipulaginu sagði: ... Mesta samansafnið af mjög lélegum húsum er í Grjótaþorpi, og það er væntanlega eina hverfið í borginni, þar sem borgaryfirvöldin þurfa að sjá um algera endurskipulagningu og endurbyggingu.11 Skipulag svæðisins sýnir framlengda Suðurgötu liggja sem hraðbraut undir Grjótaþorpið - ekki ósvipað Hafnarljarðarvegi undir Hamraborg. Byggingamagn12 í Grjótaþorpinu átti að aukast en víðast hvar átti byggðin þó ekki að vera hærri en tvær hæðir þótt gefið væri leyfi fyrir háhýsum á stöku stað.13 Ásýnd Bemhöfitstorfúnnar hefði aldrei orðið söm ef tillögur skipulagshöfúnda hefðu komist í ffamkvæmd. Þar átti að rísa stærðarinnar stjómarráðshús en gömlu timburhúsunum mátti fóma. Þannig áttu öll húsin í Bemhöftstorfunni að hverfa auk allra húsa milli Bankastrætis og Amtmannsstígs að Skólastræti.14 Þær tillögur sem hér var gerð grein fyrir veita góða innsýn inn í huga skipulagshönnuða. Stefnan var einfold: Ekkert rúm var fyrir gamlar timburbyggingar í nýju Kvosinni. Athygli vekur að töluverð uppbygging var í Kvosinni á sjöunda áratugnum, áður en hið nýja skipulag fyrir Kvosina hafði verið formlega samþykkt í borgarstjóm. Á meðan borgarstjóm var að þokast í þá átt að láta framkvæmdir taka mið af lögformlega samþykktu skipulagi fengu lóðareigendur enn leyfi til að byggja hátt og mikið. Þannig vom ekki færri en fjögur ný hús reist í Austurstræti á ámnum 1960-1966 ef með er talin viðbygging Utvegsbankans ofan á gömlu íslandsbankabyggingunni. Öll áttu þessi hús það sameiginlegt að vera há og 1 funkisstíl.15 aCVöýortið skxif nyyyja, ejjrumfeyt sfcjaf ffyyjja jzinfœq sátt með (Tansfja sffijufayið 7 Borgarfúlftmar allra stjómmálaflokka samþyfektu deiliskipulag Kvosarinnar einum rómi þann 15. júlí 1965. Afar líklegt verður að teljast að einhverjir þeirra hafi gert það í stríði við eigin samvisku. Þannig höfðu fulltrúar Framsóknarflokks og Alþýðubandalags áóur lýst yfir efasemdum með þau áform að rífa niður verk feóranna í svo stómm stíl. Þrátt fyrir það greiddu þeir atkvæði með þessum tillögum.16 Alþýðublaðið og Þjóðviljinn vom á einu máli um að sátt hafi ríkt innan borgarstjómar með skipulagið.17 Það eitt er einkar athyglisvert því að Alþýðubandalagsmenn og Þjóðviljinn áttu eftir að gerast mjög herskáir andstæðingar niðurrifs á næstu ámm. Hversu einlæg þessi sátt var, verður að liggja milli hluta. Hins vegar er það staðreynd að aldrei, á því tímabili sem hér um ræðir, átti slík sátt eftir að nást að nýju. XZreft sffiyufay 7 Blekið var varla þomáð á danska skipulaginu þegar fjöldi manna tók að úthúða því og ræða um að danska skipulagið væri úrelt. Gagnrýnin beindist gegn öllum meginatriðum skipulagsins. Árið 1968 skrifaði Bjöm Ólafsson arkítekt harðorða grein í tímaritið Birting þar sem hann fordæmdi þá stefnu skipulagshöfunda að aðgreina íbúða- og athafnasvæði. Aðgreining væri lausn á vandamálum gömlu iðnaðarborganna sem þurftu að glíma við kolamengun frá verksmiðjum en slík stefna væri reginfirra í nútímaþjóðfélagi. Þá benti Bjöm á að aðgreiningarstefna skapaði fleiri vandamál en hún leysti. Einkum færi hún illa með miðbæi sem yrðu að ómannúðlegri þvögu „bílastæða og hraðbrauta sem skýjakljúfar... [stæðu] upp úr á stangli“. Að mati Bjöms var lausnin að leyfa íbúum að snúa aftur í miðbæinn og búa þar.18 Gagnrýni Bjöms var sannarlega ekki úr lausu lofti gripin enda hafði fjöldi erlendra þjóða brennt sig illa á slíkra hverfaskiptingu. Því er það líklega ekki fjarri sannleikanum að segja að Kvosarskipulagið hafi þegar verið úrelt um leið og það var samþykkt.19 En háværastar vom raddir þeirra sem kröfðust meiri virðingar gagnvart gömlu húsunum. Á ámnum 1967-1970 höfðu þeir Hörður Ágústsson og Þorsteinn Gunnarsson unnið könnun á varðveislugildi húsanna í miðbænum fyrirborgina. Þótt borgarstjóm hafi reynt að skerða faglegt frelsi þeirra, með því að gera þá kröfu að könnunin mætti hvergi „brjóta í bága við samþykkt aóalskipulag", þá virtu Hörður og Þorsteinn þau fyrirmæli að vettugi.20 í fyrsta lagi lögðu þeir til að Fríkirkjuvegur 11, hús Thors Jensens, yrði friðað en þar hafði Seðlabanki íslands fengið vilyrði fyrir húsi.21 í öðm lagi lögðu þeir til að Iðnó og Iðnaðarskólinn gamli yrðu friðaðir en þar hugðust borgaryfirvöld reisa nýtt Ráðhús.22 I þriðja lagi var það niðurstaða þeirra að Bemhöftstorfan svokallaða, ætti að fá að standa.23 Þessi tillaga stangaðist á við áform ríkisins um að reisa þar stórt og mikið stjómarráðshús. Og í fjórða lagi vildu þeir að Hegningarhúsið við Skólavörðustíg yrði ekki rifið en þar átti fyrmefnd gata frá Túngötu að Grettisgötu að liggja.24 Skýrsluhöfundar sáu hins vegar ekki tilefni til að varðveita Grjótaþorpið þar sem þeir töldu listgildi húsanna „yfirleitt mjög lítið...“ og viðhald „yfirleitt mjög lélegt...“. Niðurstaða þeirra var því sú að Grjótaþorpið yrði að endumýja.25 Þá gáfú þeir leyfi sitt fyrir niðurrifi á nær öllum timburhúsum í Kvosinni og sögðu: „Meginsjónarmið okkar hefúr verið, að timburhúsin séu andstæð Miðbæjarhúsi okkar tíma, og hljóti að hverfa". Höfúndar tiltóku þó þrjú hús í miðbænum sem myndu sóma sér vel á byggðasafni - þeirra á meðal Aðalstræti 10.26 Borgarráð,undirforystusjálfstæðismanna,féllstífyrstuekkiátillögur tvímenninganna og uppskar mikla reiði fyrir.27 Grasrótarhreyfingar sem börðust fyrir vemdun gömlu húsanna fóm mikinn í umræðunni og áttu eftir að reynast skipulagsyfirvöldum óþægur ljár í þúfu sem þurftu oftar en ekki að hopa fyrir kröfum þeirra.28 ^fijjufay ffiróunarstoýnunar Efasemda um danska skipulagið gætti ekki einungis meðal almennings heldur einnig meðal kjörinna fúlltrúa innan allra flokka.29 í byrjun árs 1971 var því nýrri stofnun, Þróunarstofnun Reykjavíkur, falið að endurskoða danska skipulagið.30 Þótt fyrirmælin hafi verið að endurskoða gildandi skipulag þá breytti Þróunarstofnun danska skipulaginu að svo miklu leyti að í raun var um nýtt skipulag að ræða. ^fjajnir Z006 lÞj
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.