Sagnir - 01.06.2006, Blaðsíða 29
ofHlurfannstfaffejtJoað semJoeimýannst Jjétt...
höfðu ýmislegt við stefnu ríkisins að athuga. Gagnrýnin var helst sú
að ákveðinn hópur listamanna væri algerlega sniðgenginn. Dr. Selma
Jónsdóttir var forstöðukona safhsins árið 1972 og var hún, ásamt
fjögurra manna nefnd sem með henni starfaði, gagnrýnd fyrir að hafna
ákveðnum stefnum og straumum í íslenskri myndlist, einkum verkum
eftir félaga í SÚM.50 Jón Gunnar Ámason sagði ffá því í viðtali árið
1988 þegar árin í SÚM vora riíjuð upp að fólk á vegum Listasafns
Islands hafi varla sést á sýningum á vegum SÚM og ekkert keypt af
verkum af þeim á áranum í upphafi áttunda áratugarins. í viðtalinu
sagði hann jafnframt: „Hvað mig sjálfan snertir, þá er ég búinn að starfa
að fúllu í skúlptúr í nærri þrjá áratugi; Listasafn íslands hefúr á þessum
tíma keypt eftir mig þrjú verk.“51
Gylfi Gíslason, sem starfaði með SÚM, gerði úttekt á stefnu ríkisins
til innkaupa í grein í Vísi. Hann benti þar á að mikil umræða hefði skapast
um úthlutun listamannalauna fyrr á árinu. Kerfinu þyrfti augljóslega að
breyta en breytinga væri líka þörf á öðrum sviðum, svo sem á stefnu
Listasafns íslands.52 Gylfi taldi að stefna og rekstur safnsins einkenndist
af mikilli kyrrstöðu og stuðlaði ekki að því að vekja áhuga almennings
á listinni. Einnig kemur fram í greininni að á áranum 1962-1972 hafi
rekstrarkostnaður áttfaldast, en hann var árið 1972 2.400.000 krónur. Á
sama tíma hefði upphæðin til innkaupa nær staðið í stað.53 Úr grein Gylfa
má lesa beiskju vegna þess hvemig ungir listamenn vora sniógengnir
og almennt ósætti yfir metnaðarleysinu í rekstri safnsins. Gylfi benti á
að Listasafn íslands hefði misst af tveimur myndum gamals íslensks
meistara íslenskrar myndlistar, Jóns Stefánssonar, á uppboði sem greint
hefur verið frá hér að framan. í ágústmánuði 1972 greindi Morgunblaðið
frá því að Listasafn íslands hefði keypt 44 verk eftir Jón Stefánsson
úr dánarbúi ekkju hans í Danmörku. Blaðið taldi þetta mikinn feng en
kaupverðið var um 2.301.000 krónur.54 í áðurnefndri grein eftir Gylfa
Gíslason um Listasafú íslands var greint frá því að til innkaupa árið
1971 hafi verið varið um 850.000 krónum. Ekki er ólíklegt að Listasafni
íslands hafi verið veitt aukafjárveiting vegna kaupanna á verkum Jóns
Stefánssonar. í lögum um Listasafn íslands frá 1969 (í gildi árið 1972)
sagði í a-lið 2. gr. laganna að ein af aðalskyldum safnsins væri „að afla
svo fúllkomins safns íslenzkrar myndlistar sem unnt er, varðveita það
og sýna...“.55 Það var því í raun skylda Listasafns Islands að eignast
þessi verk eftir Jón Stefánsson. Ekki mátti henda að safnið missti aftur
af verkum eftir einn af frumkvöðlum íslenskrar myndlistar.
Stefna ríkisins virðist hafa verið nokkuð skýr hvað varðar úthlumn
listamannalaima og innkaup á verkum til Listasafns Islands. Ljóst er
að nokkurrar þröngsýni gætti meðal íslenskra embættismanna í þeim
efnum. Athyglisvert er þó að sjá hve ungir myndlistarmenn létu sig þetta
miklu varða. Ef til vill má tengja það því að viða í heiminum var ungt
fólk orðið meðvitaðra um stöðu sína og var tilbúið að bjóða ríkjandi
skipulagi byrginn. Ungir listamenn töldu að hér á landi ríkti stöðnun í
myndlist og erfitt væri að knýja á um breytingar þegar embættismenn
viðhéldu gömlum tíðaranda.
lækina og fjöllin í málverkum gamalla meistara sem enn héldu í gömul
gildi. Sama hugsun má segja að hafi ríkt í ýmsum verkum félaga í
SÚM. Til dæmis notaði Sigurður Guðmundsson heysátu og Kristján
Guðmundsson notaði slátur í verkum sínum. Verkin voru alíslensk,
sem var að margra mati enn ákaflega mikilvægt viðmið, en verk þeirra
Kristjáns og Sigurðar voru samt langt frá þeim íslenska veraleika sem
birtist í olíuverkum eldri listamanna.
Eftir árið 1972 var starfsemi SÚM sem félagsskapar ekki eins öflug
og hún hafði verið árin á undan. Helsta ástæðan fyrir því sú að fjöldi
félaga hélt utan til frekara náms eða starfaði erlendis við listsköpun
sína. Þó má segja að starf félaga í SÚM hafi byrjað að skila sér á árinu
1972. Á þeim tíma hlutu SÚM-félagar meiri viðurkenningu en áður
fyrir störf sín. Svo virðist sem þeim hafi tekist að tengja hluta íslensks
myndlistarlífs erlendri samtímalist og þannig byggt brú milli íslands
og útlanda.58 Arfúr SÚM var farinn að skila sér inn í listalífið hér á
landi. Ahrifin bárast inn í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Nokkrir
af SÚM félögunum störfuðu þar við kennslu eða notuðu tengsl sín til
að fá hingað til landsins erlenda gestakennara. Þannig komust nýjar
hugmyndir inn í starf skólans sem höfðu áhrif á sjónrænan skilning
og listsköpun.59 Hildur Hákonardóttir kenndi við textíldeild skólans
frá árinu 1969 en á skólaárinu 1972-1973 bættist Jón Gunnar Ámason
í kennarahóp skólans.60 Árið 1973 fjölgaði nemendum við skólann
stórlega. Því má velta fyrir sér hvort áhrif SÚM hafi meðal annars
orðið til þess að aðsókn að skólanum jókst þar sem félagið reyndi að
greiða leið yngri listamanna inn í íslenska myndlist. Árið 1976 varð
Hildur Hákonardóttir skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans og
sama ár fékk svokölluð Nýlistadeild meira vægi í starfi skólans undir
stjóm Magnúsar Pálssonar, félaga í SÚM. Magnús hóf störf við skólann
árið 1975.61 Einnig tók SÚM að sér þarft verk árið 1972, að kynna
list um landið. Tilgangurinn var „að kynna SÚM og...að reka á eftir
hinu opinbera að gera eitthvað afgerandi í að kynna „list um landið““.62
Samkvæmt hugmyndafræði SÚM var listin lífsmáti. Áhorfandinn
horfði ekki bara úr fjarlægð heldur stóð honum til boða að taka þátt í
sköpun verksins. Listaverkið átti ekki að vera skrautmunur sem gleðja
skyldi augað, heldur viðfangsefni fyrir hugann.63
■Ol'l ION\
Cíiticcrt by Jdn Ctinnar ArnaMm 1972
HOW TO OPERATE:
1. Take the cellophane out of tlie tube, crumble
it and put it back into thc tubc.
2. Wait one luinute.
tkc thc ccllophuu oul >nil pvit it un the
&%rjXeijx> ’S'XXZCC
Þeir ungulistamenn sem mest vora áberandi í íslensku myndlistarlífi
og mynduðu mest andsvar við ríkjandi hefðum í myndlist við upphaf
áttunda áratugarins störfúðu innan SÚM. Nokkrir þeirra höfðu dvalið
til skamms tíma erlendis og borið með sér nýja myndlistarstrauma að
utan inn í íslenskt myndlistarlíf. Tengsl Islands við útlönd stórefldust
fyrir þeirra tilstuðlan. í tíð SÚM vora haldnar fyrstu sýningamar hér
á landi þar sem sjá mátti nýjar stefnur í evrópskri myndlist. Dæmi um
það er sýning á Listahátíð í Reykjavík árið 1972.56 Veglegt rit var gefið
út í tilefni af sýningu SÚM, sem var raunar eina bókverkið sem gefið
var út í tilefni Listahátíðarinnar. Annars voru aðeins gefnar út minni
sýningarskrár með helstu upplýsingum um aðra atburði. Enga grein eða
umfjöllun um myndlist er að finna í bókinni en fremst er þó ritað: „Það
er okkar einlæg ósk og von aó þessi sýning verði til að efla áhuga og
skiltiing á list.“57 Kjaminn í hugmyndum SÚM var að miðla starfi sínu
út á við og opna augu almennings fyrir listum en ekki aðeins starfa
innan lokaðs samfélags sem litið væri homauga af almenningi og
yfirvöldum. Á forsíðu bókarinnar er mynd af torfbænum að Keldum
á Rangárvöllum. Veraleikinn sjálfúr, íslenskur torfbær sem sýnir
gamla tímann, var þar með orðinn að nútímalistaverki og var birting
©yndarinnar um leið ádeila á íslenska þjóðemisrómantík, mosann,
„Cellophony” eftir Jón Gunnar Árnason frá árinu 1972.
SÚM hafði mikil áhrif á næstu kynslóð myndlistarmanna hér á
landi, meðal annarra unga listamenn sem árið 1977 stofnuðu Gallerí
Suðurgötu 7 ásamt nokkram ungum háskólanemum. Markmið þeirra
líkt og SÚM var að kynna fyrir íslendingum það athyglisverðasta sem
var að gerast í listum í heiminum og tengja íslenskri list.64 Árið 1978
varNýlistasafnið stofnað. Það átti að fylla upp í það tómarúm sem yngri
listamönnum þótti hafa skapast í safnkosti Listasafns íslands.65
Ásetningur þeirra sem störfuðu innan SÚM var að spoma við þeirri
stöðnun sem þeir töldu að ríkti í myndlist hér á landi. Því má spyrja
sig að því hvort SÚM tókst að breyta viðhorfúm íslendinga almennt
til myndlistar. Líklega hefur þeim tekist að breyta einhverju þar um en
Jón Gunnar Ámason greindi sjálfur frá því i viðtali frá árinu 1988 að
helsta afrek SÚM hafi verið að breyta andliti íslands gagnvart útlöndum
á myndlistarsviðinu.66
Sajrtir 2006 XJ