Sagnir - 01.06.2006, Qupperneq 42
y íbfiorj jsfencfínja tif <Jjúastmbsins lSyy-iyoz
sem mestu af löndum suðurálfunnar."34 Menningu hinna engil-saxnesku
þjóða, þ.e. Breta og Bandaríkjamanna, þurfi að efla til að halda veldi
Rússa í skeíjum.35 Hatur í garð Rússa var algengt um heim allan á meðal
frjálslyndra manna á borð við Jón Olafsson, enda fordæmdu margir
þeirra stjómarfarið í Rússlandi. Jón sá Englendinga og Bandaríkjamenn
sem framfaramestu og menntuðustu þjóðir heims, en taldi að Rússar
væm „hálfgerðir hrímþursar" í samanburði.36 Menning engil-saxanna
væri útvörður heimsmenningarinnar á meðan menning Rússa væri voði
hennar.37
Jóni var vissulega annt um réttindi smáríkjanna, enda voru
slík réttindi Islendingum mikið kappsmáls á þessum ámm, þegar
sjálfstæðisbaráttan var í algleymingi. Jón sagði m.a. að það sé þó
ekkert nýtt í mannkynssögunni að stærri ríkin troði á þeim smærri.
Það væri ekkert tiltökumál enda lítið um frelsi á meðal þeirra sem í
þeim ríkjum bjuggu. Jón tekur engin sérstök dæmi af ríkjum en er
eflaust að vísa til löngu horfinna heimsvelda á borð við Rómarveldi
og önnur stórveldi fomaldar. En nú horfi málið öðmvísi við. Bretar og
Bandaríkjamenn hafi verið í fararbroddi þeirra þjóða sem berðust fyrir
frelsi og mannréttindum.38 Því þyki það sorglegt „að sjá þær þjóðir, sem
lengi hafa verið taldar frömuðir frelsis og mannúðar, afneita gagnvart
útlendum smælingjum öllum þeim fmmreglum, sem sjálfum þeim hafa
verið helgastar og dýrmætastar heima hjá sér.“39 Þegar Jón leit yfir árið
1899, í ljósi átaka Búa og Breta og stríðs Bandaríkjanna og Spánar,
komst hann svo að orði:
Þeir viðburðir, sem orðið hafa á þessu ári ... em þess eðlis, að
þeir hljóta að vekja mjög alvarlegar hugsanir um framtíð ... hjá
öllum hinum smærri og máttarminni þjóðum heimsins, því að
þeir sýna svo átakanlega, hve lítilsvirði rétturinn er og hve lítils
réttlætið má sér við lok 19. aldar, sýna, að hnefarétturinn er í
rauninni [h]ið eina afl, sem öllu ræður enn í dag. Þetta hlýtur
að benda smáþjóðunum til þess, hver hégómi það er og blindni
fyrir smælingja að kvelja úr sjálfum sér allan þrótt með álögum
til víggirðinga og vopnabúnaðar; að eini lífsvegurinn fyrir
smáþjóðimar er að temja sérhyggindi, stillingu og sjálfsafneitun
í viðskiftum við þá, sem meiri máttar em, svo framarlega sem
þær vilja ekki eiga það á hættu að sjálfstæði þeirra líði undir lok
og þjóðemi þeirra afmáist. Það em því miður hvorki háleitir né
drengilegir lærdómar, sem viðburðir samtíðarinnar kenna oss.40
Jón réttlætti Búastríðið en taldi það um leið óþarft, því það hafi verið á
hvers manns vömm bæði á Englandi og í Suður-Afríku að ríki suðurodda
álfunnar sameinuðust brátt í einu Bandaríki Suður-Afríku.41
=P°iðficrj'ffsfencTiny a í saman/jurði við
afstöðu erfencfra manna tif Jðúastrfðsins
Afstaða íslendinga til Búastríðsins var mjög í takt við viðhorf flestra
annarra þjóða í heiminum, og þá einkum í Evrópu, til Búastríðsins.
Ríkisstjómir Frakklands og Rússland vom opinberlega mótfallnar
stríðinu og sama mátti segja um Þjóðverja, sem í byrjun stríðsins
vom helstu bandamenn Búa. Einkum kom andstaðan í ljós í þýskum
fjölmiðlum en þar líkt og annars staðar skeyttu stjómvöld lítið urn
harkalegar árásir fjölmiðla á Breta.
Bjarki á Seyðisfirði greindi frá stuðningi ýmissa þjóða í Evrópu við
málstað Búa í febrúar 1900. Blaðið sagði frá samkomum í Þýskalandi
Búum til stuðnings og Qársöfnun Dana þeim til hjálpar. En blaðið greindi
einnig frá áhyggjum ýmissa manna í Evrópu sem töldu að hugsanlegur
ósigur Breta fyrir Búum kæmi til með að rýra áhrif Bretaveldis í Evrópu.
Helsti keppinautur Breta, Rússar, myndu fyrir vikið eflast.42
Sumarið 1900 vöktu heræfingar Frakka við strendur Ermarsunds
ótta um innrás á meðal almennings í Bretlandi enda allur meginþorri
breska fastahersins í Suður-Afríku.43 ísafold benti á að þetta væri rætt
meðal þeirra
sem ekki ríða skýum í stjórnlausum vígamóð út af áföllum
þeim, er Búar hafa veitt þeirn, en í þeirri gandreiðardáleiðslu er
nálega öll þjóðin, vilt og blekt frá upphafi af samvizkulausum
leiðtogum, er í því skyni lugu hana fulla af sögum um ójöfnuð
og gjörræði af Búa hálfu við brezkan lýð í þeirra löndum.44
En allt tal um innrás í Bretland var þó talið innihaldslaust, sökum þess
að hinn voldugi breski floti, sá stærsti í heimi á þessum tíma, stæði í
vegi fyrir slíku enda „lykur [flotinn] um hólmann þeirra [Breta] eins og
Fenrisúlfur eða vafurlogi, er engin þorir yfir að ráðast."45
En óánægjuna með stríðið var ekki aðeins að finna fyrir utan
strendur Bretlands. Meðal Breta sjálfra höfðu margir efasemdir um
ágæti stríðsins. I Isafold mátti t.a.m. lesa:
Sumir ímynda sér eða láta í veðri vaka, að það séu einungis
aðrar þjóðir, öfundar- og óvildarmenn Breta, er víta þá fyrir
aðfarir þeirra við Búa, ránsför þeirra á hendur friðsamri,
saklausri þjóð. En það er öðru nær. Harðasta dómana fá þeir
i sinn hóp sjálfra, hjá einlægum og óhlutdrægum mannvinum
á Englandi sjálfu. En þeir eru vitanlega langsamlega í
minni hluta. Þorri lýðsins hefir látið blinda sig á báðum
augum og belja sig upp í taumlausa heift og jötunmóð.
Hinn óblindaði, en fámenni hluti þjóðarinnar reri að því öllum
árum í haust, aö afstýra hemaðinum á hendur Búum, og jafn-
einbeittlega beijast þeir nú fyrir því að hætt sé ófriðinum, og
hafa gert lengi.46
Andstæðingar stríðsins á Bretlandi tefldu ffam ýmsum rökum gegn
stríðinu, svo sem siðferðilegum og efnahagslegum. Einnig vakti
baráttuþrek Búa mikla og verðskuldaða athygli á Bretlandi. Þeir sem
opinberlega mótmæltu stríðinu eða lýstu yfir efasemdum um ágæti þess,
vom hrópaðir niður af stuðningsmönnum stríðsins sem fylgismenn Búa
eða „Pro-Boer“.47 Einnig mátti greina mjög harða andúð á Gyðingum í
umræðunni um stríðið. Margir, þ. á m. sósíalistar, töldu innrásina vera
samsæri auðvaldshringa Gyðinga. Þessi Gyðingaandúð fékk þó ekki
hljómgmnn í íslenskum blöðum.48
í breska þinginu varð djúpstæður klofningur í afstöðunni til stríðsins
á meðal stjórnarandstæðinga. Frjálslyndir skiptust í tvær fylkingar,
annars vegar þá sem studdu uppbyggingu heimsveldsins og þ. á. m.
stríðið og hins vegar þá sem lögðust gegn henni. Meðal kristinna safnaða
sem ekki tilheyrðu ensku biskupakirkjunni, svo sem endurskírenda,
meþódista og fleiri, var einnig klofhingur í afstöðunni til stríðsins.
Meðal félagasamtaka sem aðhylltust félagshyggju eða sósíalisma var
einnig um klofning að ræða. Sum töldu að breska heimsveldið ætti
að beita sér fyrir frelsi og jafnrétti gegn einræði Búa í Transvaal en
önnur töldu stríðið eiga rætur sínar að rekja til auðvaldssinna sem vildu
hagnast af innlimun Búaríkjanna.
Eftir velgengni á vígvellinum vorið 1900 töldu margir Bretar að
stríðið væri unnið. Ríkisstjóm íhaldsmanna, undir forsæti Salisburys
lávarðar, boðaði því til kosninga haustið 1900; kosningar sem vom
gj aman upp ff á því kallaðar kakí-kosningamar eða „ the khaki elections“.
Ríkisstjómin sá hag sinn í þvi að boða til kosninga áður en stríðinu
væri lokið; stríðinu í Suður-Afríku og stríðinu innan raða Frjálslynda
flokksins. Leiðtogi frjálslyndra, Henry Campbell-Bannerman, var ófær
um að sameina stríðandi fylkingar innan flokksins.
Aróður ríkisstjómarinnar beindist að stríðinu og var fullyrt að hvert
þingsæti sem stjómin tapaði væri þingsæti sem Búarynnu. Á veggspjaldi
sem íhaldsflokkurinn gaf út mátti m.a. lesa: „Okkar hugrökku hermenn
í Suðttr-Afríku ætlast til þess að hver kjósandi á muni geri skyldu sína
þessum degi ... Munið! Atkvæði til handa frjálslyndum er atkvæði
Búum til handa.“ I Oldham var ungur og upprennandi frambjóðandi
í kjöri. Hann var nýkominn frá Suður-Afríku þar sem hann hafði
vakið mikla athygli sem stríðsfféttaritari. Á veggspjaldi þessa manns,
Winstons S. Churchills, mátti lesa: „Ljóst er að hvert atkvæði sem
greitt er róttæklingunum þýðir 2 klöpp á bak Krtigers og 2 högg í andlit
þjóðar okkar.“ Frjálslyndir áttu fá svör við slíkum aðdróttunum. Sigur
Ihaldsflokksins var afgerandi og bætti hann við sig þingsætum á kostnað
frjálslyndra.49
I heild má segja að bresku dagblöðin hafi stutt stríðið með
undantekningum þó. Eitt helsta blað frjálslyndra, Manchester Guardian,
mótmælti stríðsbröltinu af heilum hug en tapaði lesendum að sama
skapi. Daily Chronicle mótmælti stríðinu til að byrja með en þegar á
átökin leið dró það verulega úr andstöðu sinni í ljósi minnkandi sölu.
íf.O ^Saqnir 2006