Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Síða 47

Sagnir - 01.06.2006, Síða 47
l/'°ináttuýefaj ffsfancCs oy oy vínn uýer'ðir ffsfencifinya tifffúfiu Þegar Vináttufélag íslands og Kúbu var stofnað árið 1971 höfðu stjómvöld á Kúbu einangrast mjög á alþjóðavettvangi, ekki síst fyrir tilstuðlan Bandaríkjastjómar. Kúba hafði verið rekin úr ýmsum alþjóðasamböndum t.d. Bandalagi Amerikuríkja. Til að vinna gegn þessari einangmn komu Kúbanar á fót stofhun sem kallast ICAP, en hefur á íslensku verið kölluð Vináttustofnun þjóðanna. Þessi stofnun hafði það markmið að efla tengslin við almenning víða um heim og í þeim tilgangi vom stofnuð vináttufélög í ýmsum löndum sem síðan vom í beinum tengslum við ICAP. Stofnun VÍK er einn angi þessarar þróunar.5 Til að efla tengsl landanna var áherslan fyrst og fremst lögð á menningarleg samskipti eða eins og segir í lögum VIK: „Tilgangur félagsins er að efla menningarlegt samstarf milli Islands og Kúbu, stuðla að auknum kynnum Islendinga af þjóðfélagsháttum og menningu Kúbubúa og koma á framfæri við Kúbubúa upplýsingum um íslenska menningu."6 Tæpu ári eftir stofnun Vináttufélagsins kom Oscar Alcalde sendiherra Kúbu hér á landi, í heimsókn. Hugmyndir hans um bætt menningarleg samskipti ríkjanna vom vel í takt við þankagang þeirra sem að stofnun Vináttufélagsins komu eða eins og segir í viðtali Þjóðviljans við Alcalde: I Svíþjóð, Danmörku og Noregi eru starfandi samskonar félög og standa þau m.a. fyrir vinnu- og kynnisferðum norræns fólks til Kúbu. Hafa þessar ferðir gefizt vel og höflim við mun meiri áhuga á slíkum hópaferðum en að auka ferðir einstaklinga til landsins. Það væri e.t.v. mögulegt að hópur færi héðan til Kúbu á vegum vináttufélagsins fjjúlí næstkomandi. Við munum senda íslenska félaginu kúbanskar kvikmyndir til sýninga og ýmiskonar lesefni um kúbönsk málefni. Það gæti komið til greina að stofnað yrði samsvarandi félag á Kúbu sem stuðlaði þá að því að kynna íslenzk málefni þar. Það veitir víst ekki af, t.d. vissum við sjálf ákaflega lítið um Island áður en við komum hingað.7 Ekki urðu hugmyndir sendiherrans um stofnun vináttufélags á Kúbu að veruleika og Kúbanar því sennilega enn í dag fremur óupplýstir um Island og íslenska menningu. Starfsemi VIK hefur hins vegar verið töluvert mikil og félagið lagt mikið af mörkum við að kynna Kúbu og kúbanska menningu hér á landi. en Kúbuvikan en félagið leitaði ýmissa leiða til að upplýsa íslensku þjóóina um menningarlíf Kúbana. Uppákomumar voru af ýmsu tagi og má þar nefna sýningu sem haldin var í ársbyrjun 1976, í anddyri Félagsstofnunar stridenta, um áhrif sjálfstæðishetjunnar Jose Martí á kúbönsku byltinguna.” Ári síðar stóð félagið fyrir tónlistarkvöldi þar sem spiluð var vinsæl dægurtónlist frá Kúbu auk þess sem Ingibjörg Haraldsdóttir, þáverandi formaður VÍK, kynnti tónlistina og tónlistarmennina fyrir gestum.12 Félagið stóð einnig fyrir sýningum á ýmsu kynningarefni sem brigadistar1'1 fluttu heim með sér úr vinnuferðum.14 Aðsókn á þessar uppákomur var oft ágæt, sér í lagi þegar félagið auglýsti atburðina í dagblöóum. Sýningagleði Kúbuvina dalaði þó fljótlega og mjög dró úr hvers konar menningarviðburðum á vegum félagsins þegar leið að lokum áttunda áratugarins.15 Áætla má út frá því að þótt aðstandendum hafi oft þótt mæting ágæt á viðburðina hafi aðsókn ekki verið nægjanleg til að fólk væri tilbúið að leggja á sig þá vinnu sem það útheimti að setja upp sýningarnar. Erlend samskipti hafa alltaf verið mikilvægur þáttur í starfsemi Vináttufélags í slands og Kúbu. Ber þar vitaskuld fyrst að nefna samskipti við Kúbana sem aðallega hafa farið fram í gegnum Vináttustofnun þjóðanna, ICAP, í Havana. Einnig hefur félagið ætíð verið í miklum og góðum samskiptum við sambærileg félög á Norðurlöndunum og þá aðallega í sambandi við skipulagningu vinnuferða sem famar hafa verið næstum árlega frá 1973.16 Þótt Vináttufélag Islands og Kúbu hafi verið virkt félag og staðið fyrir ýmsum menningarvióburðum í áranna rás hefur fjöldi félagsmanna þó aldrei verið mikill. í upphafi stóð að félaginu um 80 manna hópur samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu á vormánuðum 1973.17 Félögum fór eftir það fjölgandi og hefiir verið áætlað að félagaskrár hafi talið nokkur hundruð manns þegar mest var. Fjölgunin stafaði einna helst af þvi að allir þeir sem fóm í vinnuferðir á vegum félagsins vom skráðir í það.18 Félagatöl hafa þó ekki fundist sem staðfesta það og verður því að taka þessum tölum með nokkmm fyrirvara. Nú em meðlimir félagsins færri, innan við hundrað. Af þeim em virkir félagar í kringum 30.19 Af þessu má sjá að félagið hefur verið á nokkurri niðurleið síðustu árin, að minnsta kosti hvað varðar fjölda félagsmanna. Starfsemi félagsins er þó enn töluverð, félagið sér um að skipuleggja vinnuferðir til Kúbu og halda fundi með kúbönskum gestum auk þess sem félagið gefur út fréttabréf með reglulegu millibili.20 &tarjsemí, sýnincjar oy upjoáifcmur I hverju skyldi starfsemi féfagsins ftelsthafa verið fólgin þau 34 ár sem það hefúr starfað? Þegar þeirri spumingu er svarað skal fyrst og fremst nefna hinar svokölluöu vinnuferðir til Kúbu sem fjölmargir íslendingar hafa farið í. Skipulagning og undirbúningur þeirra hefúr ætíð verið helstu viðfangsefni VÍK. Samhliða því hefúr félagið staðið á bak við ýmsa menningarviðburði svo sem komu kúbanskra listamanna hingað til lands, einkum rithöfunda og tónlistarmanna. Félagið hefur einnig haldið allnokkrar sýningar á ýmis konar efúi frá Kúbu og staðið fyrir fúndahöldum með kúbönskum fyrirlesurum.s Félagið hefúr einnig látið sig varða umfjöllun fjölmiðla og aðgerðir stjómvalda í garð Kúbu nokkrum sinnum staðið fyrir friðsamlegum mótmælasamkomum.9 Róttækasta og viðamesta aðgerð félagsins er án efa Kúbuvikan sem haldin var í byrjun sumars 1973. Stóð VÍK þá fyrir margvíslegri kynningarstarfsemi á kúbönsku þjóðlífi og menningu víðs vegar > Reykjavík. Meðal viðburða vom kvikmyndasýningar í Norræna húsinu og Ijósmyndasýning í Fylkingarhúsinu. Þar var einnig sýning á ýmsu prentuðu efni svo sem blöðum, bókum og frímerkjum frá Kúbu. Stærstur hluti atburða átti sér þó stað í Gallerí SÚM við Vatnsstig en þar vom haldnar daglegar kvikmyndasýningar og veggspjaldasýning stóð yfir alla vikuna. Leiknar vom segulbandsspólur með tónlist og lesið var upp úr bókum. Óscar Alcalde, sendiherra, hélt einnig erindi í Gallerí SÚM um Kúbu og ástand þjóðmála þar.10 Erfitt er að segja hversu ntikla athygli Kúbuvikan vakti í þjóðfélaginu en hún virðist ekki hafa gengið verr en svo að VÍK stóð fyrir fleiri sambærilegum uppákomum 1 kjölfarið. Aðrir menningarviðburðir sem VÍK stóð fyrir vom minni í sniðum ýmsum toga komið hingað til lands og stytt íslendingum stundir. Oft hafa þeir verið hér á vegum VIK og það sama má segja um þá fyrirlesara sem hingað hafa komið til að segja frá kúbverskri menningu og þjóðlífi. Hvað listamenn áhrærir þá hafa það einna helst verið tónlistarmenn sem hafa komið hingað til lands og hafa þeir verið af ýmsu tagi. Einnig hafa þó hingað komið rithöfundar. I janúar árið 1972 kom hingað til lands söngkonan María Llerena og hélt nokkra tónleika, meðal annars á Hótel Loftleiðum og í Norræna húsinu. Einnig heimsótti hún nokkra bamaskóla í höfuðborginni og ^Sajnir 2.006 ifCý
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.