Sagnir - 01.06.2006, Page 50
FÍnáttuýéfaj jsfantfó oy TK^úf u oy xánnuýerðir jsfentfinja tif TkjÚSu
landsins út á við.62 Gera má ráð fyrir að sú mikla áhersla sem kúbönsk
yfirvöld lögðu á að skemmta ferðalöngunum þessa síðustu viku hafi
einkum verið til þess ætluð til að ná fram þvi markmiði.
Þeir Kúbufarar sem rituðu ferðasögur sínar og birtu i islenskum
blöðum, skrifuðu allir í megindráttum jákvæða lýsingu á því sem fyrir
augu hafði borið. Sumir dásömuðu lýðræðið á Kúbu,63 en aðrir lofsungu
uppbyggingarstarf Castros í menntamálum64. Enn aðrir voru hrifnir af
menningu eyjaskeggja auk þess sem þeir hrifust af dugnaði og lífsgleði
þeirra.65 Tónlistarhefð Kúbana virðist einnig hafa vakið athygli flestra
brigadistanna. Jón Torfason segir svo frá:
Það kom okkur líka spánskt fyrir sjónir að byija dansleik klukkan
tvö að degi til eins og þama var gert en Kúbanir em dansmenn
miklir og mússíkalskirfsic]. Þeir slá taktinn með spýtum, dósum
og hverju sem til fellur eða klappa bara saman lófunum. Er erfitt
annað en að smitast af lífs- og leikgleði þeirra. En á stundum
fannst okkur þeir háværir um of, einkanlega hljómsveitarmenn,
og fyrir kom að ég efaðist um hvort þeir viti hvað þögn er. 66
ýmis störf í þágu byltingaraflanna og kúbanskrar alþýðu. Skipulagning
þessara ferða er án efa merkasta framlag félagsins til bættra samskipta
íslendinga og Kúbana.
Að auki var félagið virkt hvað sýninga- og fundahald af ýmsu
tagi varðar á tímabilinu og verður að segjast að það hafi að mestu
leyti uppfyllt með sóma grunnmarkmið sitt að „efla menningarlegt
samstarf milli Islands og Kúbu, stuðla að auknum kynnum Islendinga
af þjóðfélagsháttum og menningu Kúbubúa og koma á framfæri við
Kúbubúa upplýsingum um íslenska menningu." Það er einna helst síðasti
þátturinn sem virðist hafa verið setið á hakanum en það verður að teljast
eðlilegt enda tvímælalaust það atriði sem erfiðast er í íramkvæmd.
Hvað brigdadistana áhrærir er ljóst að voru jafn misjafnir og þeir
voru margir þótt flestir hafi þeir verið djúpþenkjandi vinstrimenn. Ekki
er víst að vinnuframlag þeirra Islendinga sem lögðu land undir fót hafi
haft afgerandi áhrif á afkomu Kúbanska þjóðarbúsins en meira er þó
vert að brigadistamir snem flestir til baka með jákvæðar minningar og
bám út boðskapinn um sæluríkið Kúbu sem var mikilvægt í heimshluta
þar sem einkum heyrðust neikvæðar fréttir frá ríki Fidels Castros.
Móttökumar sem ferðalangamir hlutu vom mörgum þeirra einnig mjög
hugleiknar enda oft og tíðum miklar veislur sem mikið var lagt í. Albert
H.N. Valdimarsson lýsir móttökum sínum á þennan hátt:
I vinnubúðunum var tekið á móti okkur með söng og
hljóðfæraslætti. Fólkið stóð í löngum röðum og klappaði í
takt við tónlistina. Gleðin skein úr hverju andliti, og ég fann
mig velkominn þegar ég gekk í gegnum fólksmergðina inn í
stóran fundarsal, sem var opinn í alla enda. Móttökuathöfnin
var stórbrotin og alveg ógleymanleg. Þama sátum við í salnum.
Eg leit í kringum mig og sá fólk allsstaðar, öll sæti voru setin,
fólk stóð meðfram veggjum og andlit sáust í öllum dyram
og gluggum, sum svört önnur hvít og allt þar á milli, glöó og
eftirvæntingarfull. „Þetta er Paradís á jörðu“ hugsaði ég.67
En hversu raunverulegt var það sem fyrir augu brigadistanna bar á
ferðum þeirra til Kúbu? Fengu þeir að sjá heim hins almenna Kúbana
eða sáu þeir aðeins skrautsýningu setta á svið af stjómvöldum til að
heilla ferðalangana sem síðar áttu að bera út fagnaðarboðskapinn
um sæluríkið? Ljóst er að sumir í hópi ferðalanganna veltu slíkum
spumingum fyrir sér. Vinnubúðirnar sem þeir gistu í vora fyrir utan
Havana þannig að þeir vora ekki í mikilli snertingu við almenning á
Kúbu. Þeim vora sýndir staðir sem kúbönsk stjómvöld vildu að þeir
sæju og þeir hlýddu á fyrirlestra sem jafnframt vora skipulagðir af
stjómvöldum.68
En þótt dagskráin væri að miklu leyti þaulskipulögð af kúbönskum
yfirvöldum höfðu brigadistamir samt sem áður ákveðinn tíma þar sem
þeir gátu farið um Havana og skoðað það sem þeir vildu skoða og voru
engar hömlur á frelsi þeirra til þess þótt tíminn væri frekar af skomum
skammti. 69 Ferðalangamir höfðu þvi ffelsi til að sjá það sem þeir vildu
sjá upp að vissu marki. Af lestri ferðasagna má þó ráða að fæstir hafa
séð nokkuð athugavert enda era frásagnir brigadistanna iðulega mjög
jákvæðar og í þeim er Kúbönum hælt á hvert reipi.
ji.cffacrf>
Vináttufélag íslands og Kúbu er félag sem muna má flfil sinn fegurri
þótt enn fari fram nokkur starfsemi á þess vegum. Félagið spratt upp
úr þjóðfélags- og stjórnmálaólgu kalda stríðsins á fyrri hluta áttunda
áratugarins og mótaðist af henni en segja má að með falli Sovétríkjanna
og endalokum kalda stríðsins hafi starfsgrundvellinum að nokkra leyti
verið kippt undan félaginu, þar sem áhugi almennings á málefnum
kommúnistaríkisins Kúbu dvínaði mjög samhliða því. Opnara samfélag
á Kúbu og aukið aðgengi ferðamanna til eyjarinnar hefur einnig dregið
úr aðsókn í vinnuferðir á vegum félagsins sem lengi vel vora burðarásinn
í starfsemi þess.
Eftir stendur þó að starfsemi félagsins var blómleg á áttunda og
níunda áratugnum þegar hundrað manna gengu í félagið og margir hverjir
lögðu land undir fót til að kynna sér aðstæður á Kúbu og hjálpa til við
(Jifvtsanir
1 Vináttufélag Islands og Kúbu. Http://www.simnet.is/cuba. Sótt 11.
apríl 2005.
2 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur. Tekið 29. apríl 2005. Spuming
11.
3 Viðtal við Hauk Má Haraldsson. Tekið 16. maí 2005. Spuming 6.
4 Viðtal við Pétur Böðvarsson. Tekið 9. apríl 2005. Spuming 1.
5 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 10. Einnig viðtal við
Pétur Böðvarsson, spuming 7.
6 Lög Vináttufélags íslands og Kúbu , 2. gr. http://www.simnet.is/
cuba —>lög VÍK. Sótt 15. apríl 2005.
7 „Eflum samskipti Islendinga og Kúbumanna". Þjóðviljinn, 20.
september 1972.
8 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spumingar 13 og 14. Sjá
einnig viðtal við Pétur Böðvarsson, spuming 8.
9 Skjalasafn VÍK. Fréttatilkynning VÍK, 8. október 1998.
10 „Kúbuvika hefst á þriðjudaginn“. Þjóðviljinn, 27. mai 1973.
Sjá einnig „Kúbuvika í Reykjavík“. Timinn, 27. maí 1973 og „Vilt þú
kynnast Kúbu“. Alþýðublaðið, 29. maí 1973.
11 „Nærvera Jose Martí í kúbönsku byltingunni". Þjóðviljinn, 21.
janúar 1976.
12 „Kúbanskt tónlistarkvöld". Þjóðviljinn, 12. febrúar 1977.
13 Hugtakið brigadisti er almennt notað yfir það folk sem hélt í
vinnuferðir til Kúbu til að styðja við byltinguna.
14 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 13.
15 Sama heimild.
16 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 15.
17 „Kúbuvika í Reykjavík". Tíminn, 27. maí 1973. Einnig „Vilt þú
kynnast Kúbu?“ Alþýðublaóið, 29. maí 1973.
18 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 19.
19 Viðtal við Pétur Böðvarsson, spuming 10.
20 Viðtal við Pétur Böðvarsson, spuming 8.
21 „Maria Llerena í Norræna húsinu“. Þjóðviljinn, 27. janúar 1973.
22 „Kúbönsk hljómsveit í heimsókn". Þjóðviljinn, 15. febrúar 1990.
23 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 14.
24 FréttabréfVÍK, mars 1998.
25 „Enginn lyfseðill til á bókmenntir". Morgunblaðið, 9. apríl
1998.
26 „Háskólafyrirlestur um bókmenntir i kúbönsku samfélagi“
Moigunblaðið, 11. febrúar 1988.
27 Skjalasafn VÍK. Fréttatilkynning VÍK, 10. febrúar 1988.
28 „Buena Vistaveislur víða“. Morgunblaðið, 1. maí 2001.
29 Viðtal við Pétur Böðvarsson, spuming 8.
30 Sama heimild. Sjá einnig Fréttabréf VIK, janúar 2003 og apríl
1999.
31 „Fjölmiðlar á Kúbu“. ÞjóðvUjinn, 29. nóvember 1988.
32 Fréttabréf VÍK, nóvember 1995.
33 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spuming 21.
34 „Kúbufarar flognir". Þjóðviljinn, 29. júní 1973.
35 Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur, spurning 17.
^Saynír 2.006