Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Síða 62

Sagnir - 01.06.2006, Síða 62
‘tJxuílfijrar íitijfeicSzViyar um stjórn- oy 'SamjefajsjerQ fjrienfancfó á miöófcfurn hélst. Ekki er vitað hversu áhrifamikil eða öflug hún var á þessu tímabili samanborið við veraldlega valdið. Hins vegar komst Grænland undir stjóm erkibiskupsins í Niðarósi 1153.20 Spumingin er hvort kaþólska kirkjan hafi yfirtekið bændakirkjur á Grænlandi, líkt og gerðist með staðamálum á síðari hluta 13. aldar á íslandi. Frásögn Ivars Bárðarsonar gefur í skyn, að a.m.k. á 14. öldinni, hafi kaþólska kirkjan átt margar kirkjur og jarðir.21 Christian Keller dregur stórlega í efa þá skoðun að kaþólska kirkjan hafi átt meirihluta jarðeigna á 14. öld. Hann álítur að Grænlandslýsing ívars Bárðarsonar sé ekki áreiðanleg heimild fyrir slíkri ályktun.22 Hann heldur því þvert á móti fram að bændakirkjukerfið hafi verið allsráðandi mestmegnið af því tímabili sem byggð var á Grænlandi á miðöldum. 3 Úr þessu verður ekki skorið hér, enda liggja ekki ennþá fullnægjandi sannanir fyrir sem styðja aðra hvora fullyrðinguna. Eitt er þó ljóst en það er að töluverður fjöldi af kirkjum var byggður í landinu. Að minnsta kosti fjórar kirkjur, úr timbri, steini og torfi, vom byggðar á 11. og 12. öld. Þar af voru þrjár við höfuðstaðina, Garða, Brattahlíð og Herjólfsnes. Seinna voru byggðar fimm steinkirkjur en þær lágu allar í nágrenni Garða og þar með á frjósamasta landsvæðinu. Þetta bendir til nokkurs ríkidæmis yfirstéttarinnar en það gera einnig rústir af langhúsum eða skálum. Bygging kirknanna hlýtur að hafa verið kostuð með sköttum eða tíundargreiðslum en til samanburðar má geta þess að steinkirkjubyggingar vom kostaðar með tíundarsköttum í Noregi.24 Um sóknarskipan á Grænlandi er lítið hægt að segja, hvað þá að fullyrða. Hún mun þó hafa verið hluti af stjómkerfi kirkjunnar ef marka má Grænlandslýsingu Ivars Bárðarsonar. Þar segir: „Dýmessókn er stærsta kirkjusókn á Grænlandi: kirkjan stendur til vinstri handar þegar siglt er inn Eiríksflörð. Dýmesskirkja á land allt inn að Miðfjörðum.“25 Ekki er vitað hvort hér er átt við umdæmi Dýmessóknar þegar talað er um að Dýmesskirkjan „eigi“ allt land inn að Miðfjörðum eða hvort sé um hreina eign að ræða. Um hvort tveggja getur verið að ræða. Leifar kirkjunnar á Hvalsey. j'éfajsjerd oy stéttasfjptinj Rústir sem hafa fundist í Eystribyggð em mismunandi að stærð og lögun. Af þessu hafa menn dregið þá niðurstöðu að samfélag norrænna manna á Grænlandi hafi verið félagslega lagskipt eða með öðmm orðum stéttaskipt.26 Þetta ætti ekki að koma á óvart með tilliti til þess frá hvers konar samfélögum landnemarnir komu. Meirihluti sagnfræðilegra heimilda um norrænu löndin lýsa stigskiptu samfélagi, byggðu á ættarveldum (ættarsamfélög). Félagsleg staða var ákveðin frá fæðingu, allt frá höfðingja niður í þræl. Lítið er vitað um félags- og efnahagssamband á milli stórbýla og smábýla á Grænlandi þessa tíma. Rannsókn Thomas H. McGovem á geymslurými í hverju býli bendir til að viss býli virðast hafa fengið vistir eða aðföng utan þeirra eigin mæra og það er vísbending um að einhvers konar leiguliðakerfi hafi verið við lýði á þessum tíma.27 Á hinn bóginn virðist samfélagsbygging Grænlands hafa verið mjög einföld og skort mikilvæga þætti þróaðs samfélags, svo sem þorp og heri. Breytileika á fólksfjölda varð því að mæta innan bændasamfélagsins sjálfs. Sú staðreynd að 14. aldar kirkjur vom því næst sömu stærðar og fýrirrennarar þeirra, getur visað til þess að fjöldi bæjaeininga (skattgreiðenda?) hafi verið ákveðinn snemma á landsnámstíma, líkt og gerðist á íslandi, en fjöldi skattbænda þar var mjög stöðug stærð í gegnum miðaldir. Því er mögulegt að seinni tíma fólksfjölgun hafi verið mætt með því að hafa leigubýli og þar með fjölga leiguliðum. Slík þróun átti sér stað á Islandi á 12. og 13. öld en hún leiddi til þess aó örfáar ættir náðu yfirráðum yfir mestöllu landinu. Það er því ekki langsótt að slíkt hafi gerst á Grænlandi á sama tíma, þótt það verði ekki sannað hér. Komið hefur í ljós við rannsókn Joel Berglund á Ijómm stærstu kirkjurústunum, það er á Herjólfsnesi, Hvalsey, Görðum og í Brattahlíð, að við þær vom langhús með stórum sölum eða skálum. Joel Berglund staðhæfir að skálar af þessari stærð hafi aðeins verið fyrir yfirstéttimar i samfélaginu og að þessir fjórir bæir hafi verið höfuðsetur Eystribyggðar. Annars vegar heldur Joel Berglund því fram að þessir fjórir bæir hafi allir verið stjómmiðstöðvar fyrir hönd biskups en hins vegar telur Christian Keller það allt eins liklegt að þær hafi verið miðstöðvar • • 28 veraldlegs valds í byggðtnm. Ofangreindir menn virðast hins vegar gleyma því að það vom tveir andstœðir valdapólar í landinu, hinn veraldlegi og hinn geistlegi. Þeim virðist einnig yfirsjást skriflegar heimildir en þær segja að handhafi hins veraldlega valds, lögsögumaðurinn, síðar lögmaðurinn, virðist hafa haft aðsetur í Brattahlíð en handhafi hins geistlega valds, biskupinn, hafði Garða sem sitt biskupssetur eins og sýnt hefur verið fram á hér í greininni. Þannig var Brattahlíð líklega miðstöð veraldslegs valds en Garðar hins geistlega en spumingarmerki verður að setja við hina tvo bæina sem eftir em. Vafalítið vom skálamir þýðingarmiklir sem félagsleg stöðutákn innan samfélagsins og geta þannig bent, ásamt skriflegum heimildum, á fjóra líklegustu fulltrúa hinnar ríkjandi (og kannski tvískiptrar) yfirstéttar í Eystribyggð. Christian Keller telur engan vafa leika á að hið norræna samfélag á Grænlandi hafi verið lagskipt með umtalsverðan félagslegan mismun. Hann álítur einnig að mjög lítill hópur hafi tilheyrt yfirstéttinni, það er 5 - 10% bæja.29 Undir þessi orð Christian Keller er hægt að taka en þó er ljóst að ekki er hægt að geta sér til um hvemig félagslegri skiptingu var háttað í lægri þrepum samfélagsins út frá þeim upplýsingum sem nú em til. Að lokum skal benda á að það er mjög líklegt að þeir landnemar sem fluttust til Grænlands hafi viðhaldið samfélagsskipan úr átthögunum en skriflegar heimildir greina frá því að landnemar Islands og Grænlands hafi verið af mörgum þjóðfélagsstigum, allt frá höfðingjum niður í þræla. Ekkert er hægt að fúllyrða um félagslegar breytingar í samfélaginu, enda getur fomleifafræðin ein og sér lítið sagt til um það. Aðeins er hægt að benda á að fomleifar gefa til kynna að samfélagið hafi verið mjög lagskipt og að samfélagslíkanið hafi verið eins og píramídi með mjóum toppi en um botninn hjúpast ennþá djúpt myrkur. Mjög líklegt er að töluverðar félagslegar breytingar hafi átt sér stað í 500 ára sögu norrænnar byggðar á Grænlandi. Spumingin er hins vegar hvort þróunin hefur verið lík þeirri íslensku þar sem valdið færðist smám saman yfir á hendur fárra ætta sem mynduðu svo smáríki eða héraðsríki. í greininni hefur verið víða komið við en í þessari yfirferð fengust nokkrar vísbendingar um það hvemig hið grænlenska samfélag var uppbyggt. Ein niðurstaðan er sú að Grænland hafi verið sjálfstætt þjóðveldi, a.m.k. fram til 1261, ekki ósvipað því íslenska en algerlega óháð því. Árið 1261 komst landið undiryfirráð Noregskonungs. Mjög líklegt er að á Grænlandi hafi verið goðorð eins og á Islandi og verið a.m.k. tvö talsins, ef ekki þrjú. Hins vegar er mun óljósara hvað tók við af goðorðaskipuninni við valdatöku Noregskonungs. Aðeins ein heimild getur um að sýsluskipan hafi tekið við af þeim fyrmefndu. Sú heimild verður hins vegar að teljast nokkuð óáreiðanleg (ekki frumheimild), þótt hún greini líklega rétt frá. Hins vegar studdist éo ^ajnir dooé
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.