Sagnir - 01.06.2006, Side 86
tir
ZA/Cenninjartenjsf
Cfffianíu oy ffsfancfs
^zjurO
ffcunnaróson er
j^æddúr jySo. ffann
útsfcrifahíst nteö Jftff
/V y C* *V t s
jraou x sajnjræoz arto
zoos.
Albanía, blað sem var gefið út af MAÍ félaginu í
nóvember 1979
Í þessari grein mun ég fjalla um félagið Menningartengsl Albaniu oglslands, skammstafað MAÍ. Það var stofnað í apríl 1967 og starfaði til ársins
1992. Ég mun gera grein fyrir starfsemi félagsins, markmiðum þess og starfsháttum. Félagið, sem átti að vinna að því að auka menningarsamskipti
íslands og Albaníu, var nátengt vinstra umrótinu hér á landi á sjöunda, áttunda og níunda á áratugnum. Það var upphaflega stofnað af félögum
Sósíalislafélags Reykjavíkur, sem voru óánægðir með sam-fylkingaráform Sósialistaflokksins, sem fól í sér að leggja hann niður og sameinast
A Iþýðubandalaginu.
Vegna vináttu Albaníu og Kína á sjöunda og áttunda áratugnum var MAÍ nátengt maóistasamtökum Einingar-samtökum Kommúnista marx-
leninista eða Eik(m-I) og Kommúmistasamtökumn - marx-Ieninistanna eða KSML. Litu þau á Albaníu sem félaga í baráttunni gegn auðvaldinu
og því sem þau kölluðu endurskoðunarhyggju og sósíalheimsvaldastefnu Sovétmanna. Alþýðubandalagið var borgaralegur hægri flokkur í augum
þessara samtaka og skilgreindu þau sig lengst til vinstri við hann. Eik(m-l) og KSML voru ekki mjög fjölmenn, kannski með nokkur hundruð
félaga þegar best lét, en starfsemi þeirra var mjög virk og þau gáfu út dagblöð og bækur um sín málefni.
Engu að síður var MAÍ á þessum tíma í mikilli lægð og ræddu félagsmenn um að leggja félagið niður þegar sambandsslit Kína og Albaníu
voru ljós á seinni hluta áttunda áratugarins. Eftir sambandsslitin var félagið endurreist af einstaklingum sem tóku afstöðu með Albaníu og töldu
að stjómvöld þar hefðu ýmislegt til málanna að leggja á vinstri væng íslenskra stjómmála. Þá hófst það tímabil þar sem MAI var sem virkast og
stóð það til endaloka þess.
Hér mun ég sýna fram á að MAÍ lét sig albönsk stjómmál meira varða en menningu landsins. Það lagði meiri áherslu á að kynna íslendingum
viðhorf stjómvalda í Albaníu til ýmissa deilumála í heimshreyfingu kommúnista, sem vom i brennidepli á þessu tímabili. Allt prentefni sem félagið
gaf út var með pólitískum undirtónum og margir félagar þess vom virkir í öðmm vinstrihreyfingum nánast alla sögu félagsins.
8/p yjajnír 2006