Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 88

Sagnir - 01.06.2006, Page 88
'u\/Lenninjartenjsf c/tffianíu cy cjsfancfs vinstrimanna og fengu þær birtar í Þjóðviljanum. Ein slík birtist í ágúst 1968 og hét „Albanía heimsótt". Hún var þýdd úr tímariti bandarískra marxista Monthly Review. s Pfrsti fjsfen (Tingurinn sem fieimsæffr (ytffianíu ejjtir seinni fieimsstyrjöfdina A seinni hluta sjöunda áratugarins voru fafnar tvær ferðir á vegum félagsins í boði stjómvalda í Albaníu. Sú fyrsta var ferð Olafs Þ. Jónssonar 1968 og sú síðari var ferð Runólfs Bjömssonar 1969, vegna 25 ára afmælis frelsunar landsins úr höndum fasista. Ferð Ólafs Þ. Jónssonar til Albaníu 3.-17. september 1968 vakti athygli fyrir þær sakir að hann var fyrsti íslendingurinn sem heimsótti Albaníu frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar og hugsanlega sá fyrsti, sem heimsótti landið frá sjálfstæði þess 1912. Honum var boðið til Albaníu sem formanni MAI. Birt var viðtal við hann í Þjóðviljanum og flutti hann útvarpserindi sama ár um ferðina. Samkvæmt útvarpserindinu flaug Ólafur frá Róm til Tírana með .41 Italia flugfélaginu. Flugvélin var gömul Viscount hervél sem hafði verið breytt í farþegavél. I ferðinni um Albaníu var Ólafi kynnt rækilega barátta Albaníu við endurskoðunarsinna í Júgóslavíu og Sovétríkjunum og árásir þeirra á landið. Þeim var kennt um allt sem miður hafði farið í uppbyggingu landsins. Farið var með honum ofan í saumana á uppbyggingu landsins og voru verksmiðjur og samyrkjubú heimsótt. Aukinheldur náði hann tali af félögum Flokks vinnunnar og bar þeim vel söguna. 12 Ferð Runólfs Bjömssonar til Albaníu 1969 var merkileg fyrir þær sakir að í Tírana var honum var gefinn styrkur til að fjármagna starfsemi MAI. Honum vom gefnar handunnar körfur úr basti, sem hann átti að selja hér á landi til fjáröflunar fyrir félagið. Þetta var eina skiptið sem félagið fékk annan styrk en lesefni og kvikmyndir frá Albaníu. En þegar til íslands var komið gaf hann handunnu körfumar vinum sínum og félagsmönnum í MAÍ.13 Aldrei kom til í allri sögu félagsins að það fengi peninga frá Albaníu til að styrkja starfsemi þess. Hún var einungis fjánnögnuð með félagsgjöldum, bóka- og kaffisölu. áttuncfa áratuanum tielt t yjfnyar, Starfsemi félagsins helt áfram með svipuðu móti frá 1967 til 1970. Þá flutti formaðurinn út á land og Runólfur Bjömsson tók við. Þá hafði heldur dregið úr starfsemi félagsins og lá það í hálfgerðum dvala til ársins 1974. Þá tengdist félagið nýrri róttækni sem var farin að setja mark sitt á vinstri væng stjómmála á Islandi. Islenskir námsmenn á Norðurlöndum fóru ekki varhluta af þeim maóista-samtökum, sem spmttu upp í háskólunum seint á sjöunda áratugnum. Margir tóku þátt í starfi þeirra og þegar þeir sném aftur til Islands stofnuðu þeir sín samtök. Ber þá helst að nefna Einingarsamtök kommúnista eða Eik(m-l) og Kommúnistasamtökin - marx-leninistana eðaKSML. Þessi samtökbyggðu starfsittámjög strangri marx-lenínískri hugmyndafræði og fylgdu kenningum Stalíns og Maós í uppbyggingu kommúnista-flokks og baráttu alþýðunnar gegn auðvaldinu.14 Á þessum tíma áttu Kína og Albanía mjög góð samskipti. Kínverjar tóku við af Sovétríkjunum í að styðja Albana í uppbyggingu iðnaðar og landbúnaðar og lánuðu þeim töluvert fé til þess. í utanríkismálum studdu ríkin hvort annað gegn því sem þau kölluðu sovésku sósíalheimsvaldastefnuna og heimsvaldastefhu Bandaríkjanna. Ríkin töldu sig brjóstvöm marxismans gegn endurskoðunarstefnu. Þau hvöttu í orði verkalýð heimsins til að hafna öllum hugmyndum endurskoðunarsinna um friðsamlega sambúð við auðvaldið. Nauðsynlegt væri að skipuleggja sig og undirbúa byltingu. Bæði Eik(m-l) og KSML, sem klofnaði síðar í KSML og KSML(b), og breytti síðan nafni sínu í Kommúnistaflokk Islands marx-leninista eða KFÍ/ML, litu á Albaníu sem kyndilbera sósíalismans í Evrópu.15 Landið fékk töluvert pláss á síðum Verkalýðsblaðsins, málgagns Eik(m- 1), og Stéttabaráttunnar, málgagns KSML. Aftur var Enver Hoxha og Flokki vinnunnar hrósað fyrir uppbyggingu sósíalismans í Albaníu. Skrifaðar vom greinar um yfirburði sósíalískra framleiðsluhátta í landinu og um stjómarfarið í Albaníu sem var lýst sem alræði öreiganna. Fullyrt var að samanborið við Albaníu væm öll hin Austur- Evrópuríkin „gölluð" verkalýðsríki, þar sem „skrifræðisborgarastéttin" og endurskoðunarsinnar fæm með öll völd. Heimsókn í barnaskóla í Albaníu 1978. (Ptffjanía: JfjancTamenn ísfensffrar aftoý&u 12.-20. apríl árið 1976 fór sendinefnd Eik(m-l) til Álbaníu í boði miðstjómar Flokks vinnunnar. Samtökin höfðu haft samband við flokkinn frá stofnun þeirra og höfðu sent þeim allnokkurt2 efni um starf þeirra. Þau töldu að afstaða Eik(m-l) til marx-lenínismans og tengsl þess við marx-lenínistaflokka í Evrópu hafi verið tildrög ferðarinnar.16 Sendinefndin átti viðræður við ýmsa hópa og samtök í Albaníu, til dæmis við kvennahreyfingar og við fulltrúa verkalýðshreyfinga, en mikilvægasti fundurinn var við Dino Bita, formann miðstjómar utanríkisnefndar Flokks vinnunnar. A þeim fundi var borin saman afstaða Eik(m-l) og flokksins til ýmissa mála. Rætt var um ástand stéttabaráttunnar á íslandi og baráttu Eik(m-l) gegn heimsvaldastefnu og endurskoðunarsinnum hér á landi. Flokkurinn ákvað eftir þennan fund að taka upp full flokkstengsl við Eik(m-l). Þetta fól í sér að Flokkur vinnunnar myndi lýsa yfir stuðningi við stefnu samtakanna í stéttabaráttunni og við þá stefnu þeirra að stofna kommúnistaflokk á Islandi. Það var Eik(m-l) mikils virði að finna fyrir þvi að „þjóðfrelsismenn og kommúnistar þessarar hetjuþjóðar“ studdu starf samtakanna og baráttu þeirra við endurskoðunarsinna í Alþýðubandalaginu. Á þessum fundi lýsti utanríkisnefndin líka stuðningi sínum við Islenska alþýðu gegn afturhaldi og heimsvaldastefnu og sagði nefndin Albaníu styðja íslenska alþýðu heilshugar í landhelgisbaráttu hennar við Breta.17 Vegna þessara tengsla Eik(m-l) fengu samtökin að senda einn áheymarfulltrúa á sjöunda þing flokksins í Tírana árið 1976. Eik(m-l) vom þau einu af svokölluðu marx-lenínistasamtökum á Islandi sem höfðu slík tengsl við Flokk vinnunnar. MAI hafði aldrei slík tengsl, hugsanlega vegnaþess að félagið var ekki fonnlegpólitísk samtök. Þessi samskipti Eik(m-l) við Albaníu fólu ekki í sér nein bein afskipti stjómvalda í Albaníu af uppbyggingu kommúnista-flokks á íslandi, eða baráttu verkalýðsins, og var tekið sérstaklega fram á fundinum með miðstjóm utanríkisnefndarinnar að íslenskir kommúnistar beittu marx- lenínismanum sjálfstætt við íslenskar aðstæður.18 Þessi samskipti Eik(m-l) og Flokks vinnunnar héldust til sambandsslita Albaníu og Kína sumarið 1978, þar sem Eik(m-l) tók afstöðu með Kína í deilum rikjanna. ianiu ^Starýsemi ZAfCenninyartenysfa cfBffia rffsfancTsfráiyyif-iyjy oy samfjancfssfit ,£na c<7 cftffjaníu cj 20. október 1974 var haldinn aðalfundur Menningartengsla Albaníu og Islands. Á honum var ákveðið að endurreisa félagið eftir að það hafði legið meira eða minna í dvala frá 1970. Á fundinum lét Runólfur Bjömsson af formannsembætti og Sigurður Jón Olafsson, starfsmaður í Straumsvík og virkur félagi í KSML, var kosinn formaður í hans stað. Margir virkir félagar í Eik(m-l) og KSML sátu í nýrri stjórn óó ‘Z$ajnir 2006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.