Sagnir - 01.06.2006, Síða 90
ZÁAennincjartencjsf cffffíaníu oy jsfancfs
í öllum tíðindabréfum sem félagið gaf út 1979-1983 var fjallað
um sambandsslitin á milli Kína og Albaníu. Minna var um gagnrýni
á Sovétríkin og endurskoðunarsinna, og lítið var fjallað um albanska
menningu og listir. Birtir voru kaflar á íslensku úr bók Envers Hoxha,
Hugleiðingum um Kína. Bókin er dagbók leiðtogans frá því tímabili
sem vinátta Albaníu og Kína hófst, til sambandsslita þeirra. í þessum
köflum var kommúnistaflokkur Kina fordæmdur fyrir svik við marx-
lenínismann og fyrir að vera endurskoðunarsinnaður flokkur.30
I hátíðarriti, sem félagið gaf út í tilefni af 35 ára afmæli frelsunar
Albaníu frá fasistum, 29. nóvember 1979, var menningu og listum í
Albaníu gerð meiri skil en hafði verið í tíðindabréfum félagsins. I
ritinu voru greinar um albanskar bókmenntir og birt voru ljóð eftir
albanska höfunda. Stutt ágrip var birt um sögu Albaníu og fjallað var
um jafnréttisbaráttu kvenna í landinu. Itarleg grein í ritinu íjallaði um
stjómskipulagið í landinu og var því lýst sem alræði öreiganna þar
sem verkalýðurinn færi með öll völd í verksmiðjum og réðu sjálfir
yfir framleiðslutækjunum. Til að útiloka að þeir sem ynnu ekki við
framleiðslu, eða skriffinnar eins og þeir voru kallaðir í greininni, ykju
áhrif sín í landinu, vom þeir sendir í verksmiðjumar til starfa einu sinni
á ári: „[Þjegar verkalýðsstéttin talar, þegja skriffinnamir“ eins og það
var orðað í greininni.31
Félagið gaf út Albaníuhefti árið 1989.1 því var sérstaklega tekið fram
að MAI væri ópólitískt félag og að félagsmenn ættu það sameiginlegt
að hafa áhuga á menningu landsins og fomri sögu þess. Þá var átt við
sögu Illerýumanna sem eru forfeður Albana. Allir þeir sem höfðu áhuga
á Albaníu vora boðnir velkomnir í félagið.32 Eigi að síður var mikill
pólitískur undirtónn í heftinu. I því vora lofgreinar um stjómartíð Envers
Hoxha, sem lést árið 1985. Fjallað var um perestrojka og glasnost
umbótaáætlun Sovétríkjanna á mjög neikvæðan hátt í grein sem tekin
var úr málgagni Flokks vinnunnar. Hún var talin afsprengi þeirrar kreppu
sem sovéska endurskoðunarstefnan væri í og tæki sem átti að ryðja í
burtu síðustu hindranum í átt að fullkomnu kapítalísku þjóðfélagi. I
greininni var fullyrt að þær efnahagsþrengingar sem Sovétríkin væru að
fara í gegnum væra afsprengi endurskoðunarstefnunnar sem leiðtogar
landsins höfðu fylgt frá dauða Stalíns.
Félagsmenn unnu við að þýða valda kafla úr Hugleiðingum um Kína
strax og félagið hafði verið endurreist 1979. Myndaðir vora þýðingahópar
þar sem allir félagsmenn þýddu hluta af albönskum ritum sem stjómin
hafði ákveðið. Arið 1980 var byrjað á að þýða Heimsvaldastefnuna og
byltinguna eftir Enver Hoxha og lauk verkinu sex áram seinna.
Þessi bók var umfangsmesta kynning félagsins á albönskum
stjómmálum og jafnframt eina bókin sem það gaf út. Bókin var kynnt
sem marx-lenínísk skilgreining á þróun heimsmála frá lokum seinni
heimssfyrjaldar fram til 1979 og svar við „tröllheimskum ásökunum
kínverskra leiðtoga á Albaníu." Enver Hoxha lýsir því hvemig
endurskoðunarsinnar sviku málstað byltingarinnar, fyrst Títóistar,
svo „Krjústsjeffistar“ og svo síðast kínverskir endurskoðunarsinnar.
Evrópukommúnistar eru sömuleiðis mikið gagnrýndir í bókinni. Taldi
hann þá vera jafn slæma og endur-skoðunarsinna.34 Stjóm MAÍ hóf að
vinna að þýðingu bókarinnar Evrópukommúnismi er and-kommúnismi,
en náði ekki að Ijúka henni áður en félagið var lagt niður.
ferðír fjsfencfínja tif c/Bffíaníu
Albanía var talin einangraðasta ríki Evrópu meðan Flokkur vinnunnar
var við völd og einhverskonar stalínísk eyja. Albanskt samfélag var
mjög ólíkt því sem Vestur-Evrópubúar áttu að venjast. Einkabilaeign
var bönnuð og persónudýrkun á Enver Hoxha var mjög mikil.
Flestar ferðir Islendinga til Albaníu í tengslum við MAI voru famar
á tímabilinu 1979-1989. MAÍ hvatti fólk til að heimsækja Albaníu og
kynnast með eigin augum uppbyggingu sósíalismans í landinu. í ritum
frá félaginu var lögð áhersla á að landið væri ekkert líkt því sem menn
áttu að hafa kynnst áður, þar sem það var algjörlega laust við verðbólgu,
verðhækkanir og skriffinnsku sem hrjáði landsmenn hér.35
Auk þess var lögð áhersla á að landið væri laust við alla „kóka
kóla menningu" og að ferðamenn þangað gætu ekki búist við því að
vera teknir á neinn hátt fram yfir Albani sjálfa. I þessum ferðum var
boðið upp á heimsóknir til verksmiðja, samyrkjubúa og til listasafna og
menntastofnana. í öllum tilfellum var um að ræða hópferðir og tækist
ekki að mynda hóp hér á íslandi gat viðkomandi farið sem hluti af stærri
hóp frá Norðurlöndunum.
Ferðimar, sem voru í boði stofnunar sem sá um menningartengsl
við útlönd eða Flokks vinnunnar, vora famar á eigin spýtur. Aðrar ferðir
MAI vora famar á vegum menningartengslafélaga á Norðurlöndunum.
Ferðatilhögunin var mismunandi. Ymist var flogið frá Róm,
Kaupmannahöfn, Búdapest eða Vín til Tírana. Þessar flugleiðir vora
ekki tíðar. Oft var einungis flogið einu sinni í viku og stundum féllu þær
alveg niður. Ferðimar vora seldar sem pakkaferðir og var innifalið í þeim
flug til Albaníu, hótelgisting og stundum máltíðir og skoðunarferðir.
MAI sá um að útvega vegabréfsáritun.
Hópur fólks frá Norðurlöndunum í heimsókn í Albaníu
árið 1978.
Mjög misjafnt var hvemig fólk hafði skynjað eðametið heimsóknina
til Albaníu. Sumum fannst þjóðfélagsgerðin heillandi og uppbyggingin
í landinu til fyrinriyndar fyrir sósíalískan markaðsbúskap. Aðrir litu
aðstæður í landinu gagnrýnni augum og vora ekki eins heillaðir.
AAffanía ©cj vinstri fireyjinyar á fjsfancCi á
niuncfa áratucjnum
Menningartengsl Alfianíu og íslands vora ekki fonnleg pólitísk samtök
þótt efnið sem félagið gæfi út fjallaði mikið um heimspólitík og deilur
meðal sósíalísku ríkjanna frá sjónarhomi Albaníu. Baráttusamtökin
fyrir stofnun kommúnistaflokks eða BSK, vora stofnuð árið 17. október
1981. Tilgangur samtakanna var að byggja upp sterkan marx-lenínískan
flokk sem myndi leggjast algerlega gegn allri stéttasamvinnu og
hafa stéttabaráttu verkalýðsins að leiðarljósi. I málgagni BSK, Rödd
byltingarinnar, var Albanía oft í brennidepli:
Því er til að svara að BSK líta á það sem skyldu sína við
alþjóðahyggju öreiganna að halda uppi vöm fyrir land
sósíalismans - eina föðurland verkalýðsstéttarinnar og sfyðja
baráttu verkalýðs annarra landa fyrir frelsi og sósíalisma.
Albanskir kommúnistar veita einnig öflugan stuðning baráttu
annarra þjóða - einnig hér á íslandi, fyrst og fremst á pólitíska
og hugmyndafræðilega sviðinu.36
Ekki var bara skrifað um þróun sósíalismans i Albaníu, heldur voru
tilkynntar verðlagsbreytingar á nauðsynjavöram og neysluvöram í
landinu og hve miklar þær vora í prósentum. Samtökin urðu ekki langlíf
og störfuðu einungis í fjögur ár. Ekki voru nein formleg tengsl á milh
BSK og MAÍ en flestir sem störfuðu í BSK voru virkir félagsmenn í
MAI. Þeirra á meðal vora Þorvaldur Þorvaldsson, formaður félagsins,
og Þorleifur Gunnlaugsson stjómarmaður.
^Star jZAfCenninyartenjsfa Z/Bffaníu oy
rjsfancfsfrá jySj5 tif encfafofaJoess Jyyz
Frá 1983 til 1989 var tiltölulega lítil starfsemi innan félagsins. Enginn
aðalfundur var haldinn á þessu tímabili og engin tíðindabréf gefin út.
Astæðan fyrir þessari lægð var ágreiningur meðal félagsmanna sern
gerðu starfsskilyrði erfið innan félagsins. Einn félagsmaður, Þorvaldur
SS ‘fjajj/nir 2006