Ársrit Jóns Bjarnasonar skóla - 01.05.1922, Side 9
7
Skólinn vill vera kristilegt heimili fyrir nemendurna og eiga
þeir allir aö skoöa sig sem heimilismenn og allan hópinn sem
vinahóp.
Fjármál og stuSningur.
Skólinn hefir þrjár tekjulindir: kenslugjald það sem nem-
endur borga á ári, er $36.00 hver; aröur af Minningarsjóönum
og frjálsar gjafir félaga og einstaklinga.
VerSlaun.
Herra Arinbjörn S. Bardal gaf skólanum verölaunabikar,
sem hefir hlotiö nafniö Arinbjarnarbikar. Nafn þess nemanda,
sem hæstu einkunn hlýtur við nám, í íþróttum, félagslífi skólans
og hegðun, fær nafn sitt skrásett á bikarinn. Bikarinn sýnir nú
nöfn slíkra nemenda frá byrjun.
Tvö síöastliöin ár hafa $50 verið gefnir til verölauna í sam-
bandi við hin opinberu próf nemendanna i hverjum bekk. Var
upphæðinni skift í tvenn verðlaun, $30 og $20, og voru þannig
sex verðlaun veitt í þessu sambandi í skólanum. í ár veröur
upphæöinni skift i þrenn verðlaun, $25, $15 og $10, og verða
þau níu talsins.
1 fyrra voru enn fremur veitt sérstök verðlaun í íslenzku og
á síðastliðnu vori verðlaun bæöi í íslenzku og kistindómi.
Skólaár.
Skólinn hefur starf sitt í haust að 720 Beverley stræti 22.
dag septembermánaðar, og stendur til siðari hluta júnímánaðar
næsta vor. Hér um bil tveggja vikna fri er veitt um jólaleytið og
liðugrar viku um páskana.
Skólaráfí.
Séra Kristinn K. Olafson, Mountain, N. Dak., formaður.
Dr. Jón Stefánsson, Winnipeg, skrifari.
Sigurður W. Melsted, Winnipeg, féhirðir.
Jón J. Bíldfell, Winnipeg, vara-formaöur.
Magnús Paulson, Winnipeg, vara-skrifari.
Arinbjörn S. Bardal, Winnipeg.
Séra Jónas A. Sigurðsson, Churchbridge, Sask.
Séra N. Steingrímur Thorláksson, Selkirk, iMan.