Ársrit Jóns Bjarnasonar skóla - 01.05.1922, Blaðsíða 10
8
Kennarar.
Séra Rúnólfur Marteinsson, B.A., B.D.,
skólastjóri og kennari í kristindómi, islenzku og ensku.
Miss Salóme Halldórsson, B.A.,
kennari í frönsku, latínu og sögu.
Miss May Anderson, B.A.,
kennari í stæröfræði og náttúruvísindum.
ENDURMINNINGAR FRÁ JÓNS BJARNASONAR SKÓLA
Eftir A. R. Magnússon.
Eg hristi snöggvast af mér dimman dofa,
í djúpið liðins tíma berast læt;
Þá sé eg fvrir björtum röðli rofa
Og rjúfa þögn eg heyri sönglög mæt.
Jóns Bjarnasonar skóla minnist eg ávalt með klökku og
þaklátu hjarta; meö söknuði yfir þvi, að hafa ekki getað notið
hans lengur, og með glöðum huga, þegar eg hugsa til þess, að
hann á eftir að gjöra það sama fyrir svo marga aðra, sem hann
gjörði fyrir mig og fyrir okkur öll, sem þar áttum samleið á
ferðalagi okkar í gegnum lífið.
Fyrst af öllu og ávalt með hjartans þakklæti og djúpri
virðingu, minnist eg skólastjórans, sein leiðbeindi okkur svo
vel og okkur þykir svo vænt um: og eins hinna kennaranna, sem
þá hjálpuðu til að gjöra þann tíma, sem eg naut skólans, svo
frábærlega skemtilegan og nytsaman. Okkur er það víst öílum
minnisstætt til þessarar stundar, hvað hin hjartanlega alúð
og hreinskilni skólastjóra hafði góð og mikilvaég áhrif á okkur
undir eins fyrsta daginn, þegar hann með hlýju brosi bauð okk-
ur öll velkomin og lét í ljós þá ósk sína, að okkur mætti hepnast
að færa okkur i nyt alt þaö góöa og háfleyga, sem við nú þegar
sæjum aö hin brosandi framtíð vildi rétta að okkur, og að við
mættum vinna saman í bróðerni með alúð og óbifanlegu trausti
á sigur sannleikans. Það er víst ekki þýðingarlítið fyrir fram-
tiðina, aö Jóns Bjarnasonar skóli dregur saman, i þessum anda
og með þessu. augnamiöi, hina uppvaxandi íslenzku kynslóð í
Vesturheimi. Nokkrir voru á skólanum úr mínu bygðarlagi,
og sumum þeirra kyntist eg fyrst verulega þá. Það bezta í
okkur, ef við annars áttum nokkuð, sem svo mætti kalla, hlaut
að koma fram, undir áhrifum slíkra kennara. Og eins læröum