Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Blaðsíða 2

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Blaðsíða 2
2 ARROÐINN æskilegasti og hitt, að menn þeir er stjórna og starfa við skólann á hverjum tíma, séu áhugasamir, stjórnsamir, menntaðir og vel fallnir til sinna starfa, og að þeir hafi álit og tiltrú hjá nem- endum, foreldrum og öðrum bæjarbú- um. Við Akurnesingar höfum verið það óheppnir, að þann tíma, sem skólinn er búinn að starfa hafa orðið skólastjóra- skipti við' skólann á hverju hausti; þó mun aldrei hafa verið almennur vilji bæjarbúa fyrir að skipta um skólastjóra fyrr en nú. Hér að framan er sagt frá greinargerð mi]liþinganefndar í skóla- málum um lausn á húsnæðismálum skólanna hér, en það er í sjálfu sér engin lausn. Gagnfræðaskóla verður að byggja hið bráðasta að hægt er. Þá er að athuga möguleikana á því að reisa slíka byggingu. Það e'r senni- legt, að ríkisstyrkur mundi fást til beggja skólabygginganna á svipuðum tíma, ef bærinn gæti lagt fram vinnu- kraft og fjármagn það, er honum bæri. Þegar þarf að fnamkvæma eitthvað og fjármagn er ekki fyrir hendi, þá er sið- ur að taka lán, ef það er fært og fyrir hendi, og er slíkt nauðsynlegt. En sú fjármálavizka að þekkja aðeins hug- takið að taka lán, kemur flestum á kald- an klaka á skömmum tíma, og bæjar- búum mundi fljótlega verða óbærileg útsvör þau, er á þá yrði lögð, ef lán- taka yrði aðalstefna bæjarstjómarinn- ar, án þess að séð yrði fyrir fjáröflun til að borga af lánunum. Hugmynd jafnaðarmanna er sú, að byggja góða gagnfræð'askólabyggingu hið fyrsta, en láta bygginguna sjálfa, bera þungann af skuldum þeim, sem á 'henni lægi, að svo miklu leyti, sem fært væri. Hér á Akranesi er einhver sú bezta baðströnd, sem fáanleg er hér um slóðir. Ef á bökkunum við Langasand, væri komið fyrir hentugum sólbaðssvæðum, sandinum haldið þrifa- legum og sundflekum lagt fyrir framan ströndina, myndi margan góðan gest fýsa að dvelja hér í sumarblíðunni til að drekka í sig heilnæmi sólar og sjáv- ar. Nú er gagnfræðaskólanum ætluð lóð á bökkunum inni hjá Langasandi. Við skólann þarf að vera góður og hent- ugur leikvangur; leikvöllurinn myndi vera eftirsóttur vettvangur fyrir dval- argesti þá, er dveldu hér við baðströnd- ina. Ef hluti af gagnfræðaskólanum væri tekinn á sumri hverju fyrir greiða- sölu og til gistingar fyrir siðprúða og reglusama dvalargesti, þá mætti svo fara, að skuldir þær, er hvildu á gagn- fræðaskólabyggingunni lækkuðu án þess að koma verulega við pyngju Ak- urnesinga. Það er vitað, að só hluti skólans, er notaður yrði þannig, þyrfti éitthvað meira viðhald en ella, en á stað, sem er eins vel í sveit settur og Akranes, ætti framangreind starfsemi að gefa það góð- an hagnað, að drjúgur skildingur ætti að verða eftir, þótt séð væri fyrir því, að sumarstarfsemin yrði á engan hátt fram'kvæmd á kostnað skólabyggingar- innar. Þá er það um kennslukrafta skólans. Alþýðuflokkurinn vill vinna að því, að skólinn fái hæfan og góðan stjómara. Og um kennaraval að skólanum munu fulltrúar flo'kksins fara eftir beztu og ábyggilegustu heimildunum, er þeir fá um umsækjendur á hverjum tíma. Sjómannafræðsla: Þegar rætt var um stofnun og bygg- ingu gagnfræðaskóla hér, bar Svein- björn Oddsson fram tillögu þess efnis, að við stofnunina yrði vinnustofa, er væri til þess að kenna í vinnubrögð í sjómennsku, var til þess ætlast, að sjó- menn fengju þar námskeið í hagnýtum vinnubrögðum, og svo var ætlast til þess, að drengjum í Gagnfræðaskóla Akraness yrði kynnt vinnubrögð og starfshættir þeirrar stéttar, er Akranes og öll þjóðin byggir svo mjög afkomu sína á. Nú og á næstunni eru Islendingar að kaupa marga nýja báta og togara; það þarf mannskap á þennan flota; það þarf vélamenn, stýrimenn og skipstjóra. Það verður að viðurkenna, að alltof fáir ungir Akurnesingar eru undir það búnir, að taka að sér slík störf, og höfuðástæðan til þess að svo fáir Ak- urnesingar hafa stundað framhaldsnám í sjómennsku er sú, að hér heimafyrir hafa verið svo slæm skilyrði til að undirbúa sig undir sjómannaskólann. Sjómannanámsskeið í bóklegum fög- um til undirbúnings undir nám við Sjó- mannaskólann í Reykjavík þarf að starfrækja hér á haustin, og þegar hús- næði verður fyrir höndum, verður bezt að hafa námsskeiðið í gagnfræðaskól- anum og á vegum hans. Mun þá mörg- um Akurnesingum vera greiðari gatan í góðar stöður, á hinum komandi flota þjóðarinnar. Haustið 1943 var haldið vélstjóra- námskeið hér á Akranesi; gafst það vel, og er þörf á að sMk námsskeið1 séu haldin við og við. Námsskeiði til undiihúnings minna fiskimannaprófi þarf að koma hér á. í reglugerð um námskeið og próf í siglingafræði utan Reykjavíkur stend- ur eftirfarandi um námstímann: Nám- skeiðin skulu haldin frá byrjun október og eigi skemur en til janúarloka. Heim- ilt er að hafa námskeið á öðrum árs- tíma, en jafnan skulu þau standa yfir að minnsta kosti 4 mánuði. Heppileg- asti tíminn til að halda slíkt námskeið hér væri frá því í miðjum september og fram í miðjan janúar. Þá gætu sjó- menn notað þann tíma ársins til náms- ins, sem þeim er að minnstu gagni, og þyrftu engri vertíð að sleppa til þess að stunda námið. Iðnfræðsla: Iðnaðarmenn hafa að mestu leyti orð- ið sjálfir að bera kostnaðinn af sér- fræðslu sinnar stéttar. Bæirnir hafa styrkt iðnskólana með því að leggja til húsnœði fyrir skólann, og ljós og hita fyrir skólahaldið én endurgjalds, og svo er hér á Akranesi. Ríkið hefur svo lagt fram ákveðna fjárupphæð til iðnfræðslu árlega, og hefur þeim styrk svo verið jafnað niður á skólana eftir reglum, sem þar um gilda. Það er flestum ljóst, að ef iðnaðarmenn eiga að hafa svip- aða aðstöðu til bóklegs náms, sem flest- ar aðrar sérmenntaðar stéttir þessa lands, þá þarf hið opinbera, bæir og ríki, að leggja skólunum meiri styrk en verið hefur. Tillögur eru fyrir um það, að ríkið taki að sér fjárhagslegan rekst- ur iðnskólanna í svipuðu hlutfalli og það annast rekstur ríkisskóla, en um það hvernig þeim tillögum reiðir af, skal engu spáð hér. Sú hugmynd að reka iðnskólana sem dagskóla, og starfrækja þá í 3 til 3% mánuð á vetri hefur náð allmiklu fylgi. Iðnskólinn í Reykjaivík gerði til- raunir í vetur í þessum efnum með nokkrar deildir skólans. Ymsir menn, sem lítið vit hafa á rekstri iðnskóla, álíta, að aðal hindr- unin fyrir því að ekki skuli gripið til þess að reka iðnskólana sem dagskóla sé sú, að meistararnir vilji ekki gefa

x

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.
https://timarit.is/publication/1031

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.